87. spurningaþraut: Skrímsli með þúsund augu og 1 með hundrað núllum

87. spurningaþraut: Skrímsli með þúsund augu og 1 með hundrað núllum

Auka­spurn­ingar:

Hvað heitir konan á mynd­inni hér að ofan?

Lauf hvaða trjá­teg­undar má sjá á neðri mynd­inni?

Þá eru það aðal­spurn­ing­arnar tíu!

1.   Árið 2007 skil­aði karl nokkur á Bret­landi dokt­ors­rit­gerð í stjörnu­fræði sem nefnd­ist „A Survey of Radial Velocities in the Zodiacal Dust Cloud“. Þetta væri nú ekki í frá­sögur fær­andi nema af því karl þessi var, jafn­framt stjörnu­fræð­inni, gít­ar­leik­ari í frægri hljóm­sveit. Hvað heitir hljóm­sveitin sú?

2.   Hvað heitir fljótið sem fellur til sjávar þar sem borgin New York rís?

3.   Árið 1916 voru þing­kosn­ingar á Íslandi. Í aðdrag­anda kosn­ing­anna bar það til tíð­inda að hinn þáver­andi Sjálf­stæð­is­flokkur klofn­aði og buðu bæði flokks­brotin fram í kosn­ing­unum. Í munni kjós­enda fengu þau nokkuð und­ar­leg nöfn. Hver voru þau?

4.   Í norður frá Reykja­vík séð blasa við þrjú fjöll - Akra­fjall, Skarðs­heiði og Esjan. Hvert þeirra er hæst?

5.   Osló heitir fjöl­menn­asta borg Noregs og Björgvin eða Bergen sú næst­fjöl­menn­asta. En hvaða borg þar í landi er í þriðja sæti?

6.   Fyr­ir­tæki eitt fékk nafn af fræði­heit­inu yfir töl­una 10,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000,​000, það er að segja 1 með 100 núllum fyrir aftan. Reyndar mis­rit­uðu stofn­endur fyr­ir­tæk­is­ins þetta fræði­heiti en mis­rit­unin hefur síðan haldið sér í nafni fyr­ir­tæk­is­ins.

7.   „Til eru fræ sem fengu þennan dóm ...“ Hvaða dóm?

8.   Enski skák­meist­ar­inn Tony heit­inn Miles tal­aði einu sinni um ákveð­inn skák­meist­ara sem „skrímslið með þús­und augun“. Hver var meist­ari þessi?

9.   Rachel Green hét vin­mörg per­sóna ein. Hver fór með hlut­verk hennar?

10.   Við Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands eru tveir fiðlu­leik­arar sem kall­ast „1. konsert­meist­ari“. Nicola Lolli heitir annar þeirra, en hvað heitir hinn?

Svörin:

1.   Queen.

2.   Hudson.

3.   Þversum og langsum.

4.   Skarðs­heiði, hæsti tind­ur­inn er Heið­ar­horn sem er 1.054 metrar.

5.   Þránd­heimur.

6.   Google. Talan heitir í raun googol.

7.   „Að falla í jörð og verða aldrei blóm.“

8.   Garrí Kasparov.

9.   Jennifer Aniston.

10.   Sigrún Eðvalds­dóttir.

Hér eru svo fyrst spurn­ing­arnar frá í gær.

En svörin við auka­spurn­ing­unum eru þau að á efri mynd­inni má sjá Julie Andrews í hlut­verki sínu í kvik­mynda­út­gáfu söng­leiks­ins The Sound of Music (sjá mynd) en á neðri mynd­inni er ein­fald­lega um að ræða birki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár