86. spurningaþraut: „Flugskeytin eru komin af stað, halleljúja!“

86. spurningaþraut: „Flugskeytin eru komin af stað, halleljúja!“

Auka­spurn­ingar eru að þessu sinni aðeins tvær. Sú fyrri er svona:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

Og hver er karl­inn á mynd­inni hér að neðan?

En aðal­spurn­ingar eru þessar helstar:

1.   Í hvaða landi (ekki borg) hafa sum­ar­ólymp­íu­leik­arnir oft­ast verið haldnir?

2.   Í hvaða kvik­mynd eftir sögu Stephen Kings hljómar á örlaga­stundu setn­ingin: „The missi­les are flying, hall­elu­jah, hall­elu­jah“ eða „Flug­skeytin eru komin á loft, hall­elúja, hall­eljúa“?

3.   Samvæmt hinum gamla Beaufort-kvarða um vind­hraða var mest gert ráð fyrir 12 vind­stigum. Hvað kall­að­ist slíkt veður sam­væmt kvarð­anum?

4.   Árið 2002 lék Ingvar E. Sig­urðs­son leik­ari í Hollywood-kvik­mynd­inni K-19: The Widowmaker, sem fjall­aði um slys um borð í sov­éskum kjarn­orkukaf­báti. Aðal­hlut­verkin léku þeir Harrison Ford og Liam Neeson en Ingvar lék yfir­vél­stjóra kaf­báts­ins. Hver leik­stýrði þess­ari mynd?

5.   Hvað þýðir E-ið í nafni Ingvars E. Sig­urð­ars­sonar?

6.   Hvaða ár var síð­ast engin kona á Alþingi Íslend­inga? Hér má skeika tveim árum til eða frá.

7.   Serena Williams heitir öfl­ug­asta tenn­is­kona heims­ins síð­ustu 20 árin eða svo. Lengst af hefur einn harð­asti keppi­nautur hennar verið systir hennar, sem einnig er eða var í fremstu röð. Hvað heitir hún?

8.  Hvaða fjörður, flói eða vík er á milli Langa­ness og Mel­rakka­sléttu?

9.   Í hvaða sæti lenti Hatari með lagið Hatrið mun sigra í Eurovision árið 2019?

10.   Fyrsti eig­in­legi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn á Íslandi varð til með lögum árið 1919 þegar ákveð­inni stétt var gert skylt að ráð­stafa 5 pró­sentum launa sinna í sér­stakan líf­eyr­is­sjóð. Hvaða stétt var hér um að ræða?

Gáið að því að hérna er þrautin frá í gær.

En svörin við spurn­ing­unum eru:

1.   Banda­ríkj­unum.

2.  The Dead Zone.

3.   Fárviðri.

4.   Kathryn Bigelow.

5.   Eggert.

6.   Það var árið 1956, svo rétt má vera allt frá 1954-1958.

7.   Venus.

8.   Þistil­fjörður.

9.   Tíunda.

10.   Emb­ætt­is­menn.

Á efri mynd­inni er söng­stjarnan Aretha Franklin.

En á neðri mynd­inni er brasil­íska fót­bolta­stjarnan Zico. 

Flestum er Zico ógleym­an­legur í ögn yngri útgáfu, sem sé meðan hann var ögn yngri og spengi­legri, og spil­aði með frægum lands­liðum Brasilíu á HM 1978, 1982 og 1986, sjá mynd­ina hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár