85. spurningaþraut: Tiglathpileser, Sinshumulisher, Ashurbanipal og Ninurtatukultīaššur?

85. spurningaþraut: Tiglathpileser, Sinshumulisher, Ashurbanipal og Ninurtatukultīaššur?

Auka­spurn­ingar.

Á efri mynd­inni er ... hvað?

Á neðri mynd­inni er lysti­snekkja, sem virð­ist kannski hel­stil kubbs­leg en þykir þó nokkur meist­ara­smíð. Hún heitir Venus og var smíðuð fyrir einn af kunn­ustu athafna­mönnum heims, en hann fékk þó aldrei að frílista sig um borð í henni. Hver var sá?

Aðal­spurn­ingar tíu:

1.   Hvað heitir söng­kona hljóm­sveit­ar­innar Írafárs?

2.   Nóbels­verð­launa­haf­arnir í bók­menntum eru oft umdeildir, og menn geta rif­ist mikið um hvort þeir eiga verð­launin skilið eður ei. Einn af umdeild­ari verð­launa­höfum síð­ustu ára­tuga fékk verð­launin árið 2016 og fannst sumum ákvörðun Nóbels­nefnd­ar­innar frá­leit. Hver fékk verð­launin það ár?

3.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Ástralíu?

4.   Í ríki einu  mjög á fyrri tíð ríktu kóngar sem höfðu gaman af því að lýsa í löngu máli hve grimmir þeir væru og gjarnan á að höggva and­stæð­inga sína í spað. En kóng­arnir eru líka alræmdir fyrir löng og til­þrifanöfn nöfn síns, en þeir hétu til dæmis Tigl­at­hpileser, Sins­humu­l­is­her, Ashur­banipal og Nin­urta­tukultīaššur. Yfir hvaða forna ríki gátu kóngar þessi?

5.   Á hvaða haf­svæði er eyjan Tristan da Cunha?

6.   Kona ein er nú komin tölu­vert á tíræð­is­aldur en fyrir tæpum 60 árum útskrif­að­ist hún sem einn af fyrstu veð­ur­fræð­ingum Íslend­inga. Hún var síðan yfir­maður veð­ur­fars­deildar Veð­ur­stofu Íslands í ára­tugi við góðan orðstír. Jafn­framt lét hún mjög að sér kveða á vinstri vængnum í póli­tík, sat í ald­ar­fjórð­ung í borg­ar­stjórn Reyja­víkur fyrir Sós­í­alista­flokk­inn og síðar Alþýðu­banda­lagið, var aðstoð­ar­maður ráð­herra um tíma og datt inn á Alþingi einu sinni sem vara­þing­maður. Hvað heitir hún?

7.   Kópa­vogskróníkan hét skáld­saga sem út kom fyrir tveim árum og vakti heil­mikla athygli fyrir fjör­lega frá­sögn og hisp­urs­leysi í lýs­ingum sögu­konu af ást­ar­æv­in­týrum sínum og upp­á­komum ýmsum. Hver skrif­aði þessa bók?

8.   Í hvaða fljóti á Íslandi er Gullfoss?

9.   Einn er sá leik­maður sem hefur spilað fleiri leiki en nokkur annar í ensku Úrvals­deild­inni í karla­flokki. Hvað heitir hann?

10.   Fyrir hvað var Rússinn Viktor Korchnoi þekkt­astur?

Hér er þrautin frá í gær. Reynið yður við hana!

En svörin við þess­ari eru:

1.   Birgitta Haukdal.

2.   Bob Dylan.

3.   Canberra.

4.  Assýr­íu­kóngar voru þeir allir saman.

5.   Suður-Atl­ants­hafi. Ekki dugar Atl­ants­hafið eitt.

6.   Adda Bára Sig­fús­dóttir.

7.   Kamilla Ein­ars­dóttir.

8.   Hvítá.

9.   Gareth Barry.

10.   Skák.

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er til­bú­inn eyja­klasi út af ströndum Dubaí-borgar í Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum. Hann kall­ast Heim­ur­inn og þar stendur til að ríkt fólk geti keypt sér eyjar þessa heimskorts og lifað þar síðan í vellyst­ingum.

Snekkj­una á neðri mynd­inni lét Steve Jobs Apple-smiður byggja handa sér. Á mynd­inni hér við hlið­ina á má einmitt sjá Steve Jobs bregða fyrir ef vel er að gáð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár