84. spurningaþraut: Í hvernig litri treyju var Valtýr?

84. spurningaþraut: Í hvernig litri treyju var Valtýr?

Á mynd­inni hér að ofan má sjá Bryn­hildi Guð­jóns­dóttur í hlut­verki sínu í sýn­ingu í Borg­ar­leik­hús­inu fyrir nokkrum árum. Hvað var hún að leik í svo ótótt­legum bún­ing?

Og síð­ari auka­spurn­ingin er ein­fald­lega þessi:

Hver er á mynd­inni?

En hér eru aðal­spurn­ingar:

1.   Í hvaða skáld­sögu Halldórs Laxness segir frá bónd­anum Steinari undir Steina­hlíðum?

2.   Hver leik­stýrði kvik­mynd­inni Nói albínói?

3.   Keyri maður frá Djúpa­vogi og austur og norður, hver er þá næsti þétt­býl­is­staður sem maður kemur að?

4.   Hvað hét fyrri kona Ólafs Ragnars Gríms­sonar for­seta?

5.   Amiina hét hljóm­sveit ein sem stofnuð var á Íslandi laust fyrir síð­ustu alda­mót og hefur unnið mikið með Sigur Rós. Upp­haf­lega var Amiina alveg ákveðin teg­und af hljóm­sveit, og þess má sjá merki í fullu nafni hljóm­sveit­ar­innar upp­runa­lega, en síðan hefur það nú breyst. En hvernig hljóm­sveit var Amiina í byrjun?

6.   Hver tók við sem for­sæt­is­ráð­herra Íslands eftir að Bjarni Bene­dikts­son fórst í elds­voða á Þing­völlum 1970?

7.   Hver skrif­aði bók­ina „Ástin ein tauga­hrúga. Enginn dans við Ufsa­klett“?

(Spurn­ingin hér að ofan mun vera þús­undasta spurn­ingin í þess­ari þrauta­hr­inu, hafi ein­hver áhuga á því.)

8.   Liv Berg­þórs­dóttir var lengi for­stjóri fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Nova. En hún var líka stjórn­ar­for­maður í öðru, ekki síður áber­andi fyr­ir­tæki þau sömu ár. Hvaða fyr­ir­tæki var það?

9.   Hvað heitir höf­uð­borg Norður-Írlands?

10.   Í hvernig litri treyju var Valtýr?

Og þá eru þau hér, svörin:

1.   Para­dís­ar­heimt.

2.   Dagur Kári.

3.   Breið­dals­vík.

4.   Guðrún Þor­bergs­dóttir.

5.   Strengja­sveit.

6.   Jóhann Hafstein.

7.   Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir.

8.   WOW.

9.   Belfast.

10.   Grænni. Hér er vísað til þjóð­sögu um morð­ingj­ann „Valtý á grænni treyju“.

Hér er þrautin frá í gær.

Og svörin við auka­spurn­ingum:

Bryn­hildur var að leika Njál á Berg­þórs­hvoli.

Neðri myndin sýnir Hildi Guðna­dóttur tón­skáld, sjá hér:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár