82. spurningaþraut: Hvaða hnetum er sérstaklega mælt með í Biblíunni?

82. spurningaþraut: Hvaða hnetum er sérstaklega mælt með í Biblíunni?

Auka­spurn­ingar eru tvær:

Hver er lengst til vinstri á efri mynd­inni - sá sem aðeins sést í hand­legg á?

Af hvaða víð­frægu teg­und er skrið­drek­inn á neðri mynd­inni?

En hér eru svo aðal­spurn­ing­arnar:

1.   Árið 1968 kom út í Þýska­landi bók eftir sviss­neskan hót­el­hald­ara sem einmitt um þær mundir var verið að dæma í fang­elsi fyrir fjár­svik. Bókin hans sló í gegn og gerði honum kleift að borga allar sektir vegna fjársvikanna og lifa síðan í vellyst­ingum upp frá því, enda hefur hann haldið áfram að skrifa, og alltaf lagt út af sömu kenn­ing­unni og fyrsta bókin fjall­aði um. Höf­und­ur­inn heitir  Erich von Däniken, en hver er sú kenn­ing sem hann fjallar um í bókum sínum?

2.   Í  hvaða landi heitir höf­uð­borgin Brat­islava?

3.   Fjöl­menn­ustu ríkin, sem eru að minnsta kosti að hluta í Evrópu, eru Rússland og Tyrkland. En hvaða ríki er í þriðja sæti yfir fjöl­menn­ustu Evr­ópu­ríkin?

4.   Árið 2003 gerð­ist það að kvik­mynd ein var til­nefnd til 11 Ósk­arsverð­launa og vann þau öll. Hvaða sig­ur­sæla kvik­mynd var þetta?

5.   Í fyrstu Mósebók stendur: „Þá sagði [Jakob] faðir þeirra við þá: „Ef svo verður að vera, þá gjörið þetta: Takið af gæðum lands­ins í sekki yðar og færið mann­inum að gjöf lítið eitt af bals­ami og lítið eitt af hun­angi, reyk­elsi og myrru, [síðan ákveðna teg­und af hnetum] og möndlur.““ Hvers konar hnetur nefndi Jakob þarna?

6.   Bretar hafa þann sið að veita fólki, sem þykir hafa unnið ein­hver afrek í starfi sínu, aðals­tign og heita karlar síðan „sir Hit­tog­þetta“ en konur „dame Hit­tog­þetta“. Helstu leik­arar Breta fá gjarnan þessa tign og síð­asta leik­konan sem fékk tit­il­inn „dama“ var útnegnd nú í byrjun árs. Hún hefur reyndar yfir­leitt ekki verið talin í hópi mjög dramat­ískra leikkvenna, heldur er hún enn þekkt­ust fyrir hlut­verk sitt í heldur gal­gopa­legum amer­ískum söng­leik frá 1978. Þá var hún þrí­tug en lék tölu­vert yngri stúlku. Hún er oft talin vera áströlsk en fædd­ist samt á Bret­landi. Hvað heitir þessi dama?

7.   Áberandi stjörnu­hópur á himni er kall­aður Plóg­ur­inn á Bret­landi en Big Dipper, eða Stóri skaft­pott­ur­inn í Norður-Ameríku. Hvað kall­ast stjörnu­hóp­ur­inn á íslensku?

8.   Í fyrra var til­kynnt að hin pólska Olga Tokarczuk hefði hlotið til­tekna við­ur­kenn­ingu þótt sú við­ur­kenn­ing ætti við árið 2018 en ekki 2019. Hún er fimmti Pól­verj­inn sem fær þessa við­ur­kenn­ingu en á undan henni voru þau Henryk Sienkiewicz, Władysław Reymont, Czesław Miłosz og Wisława Szymborska. Hvaða við­ur­kenn­ing var þetta sem Olgu Tokarczuk hlotn­að­ist?

9.   Hver hefur skorað flest mörk fyrir íslenska lands­liðið í fót­bolta í kvenna­flokki?

10.   Hvað er hæsta fjallið í vest­an­verðri Evrópu, það er að segja utan Rúss­lands?

Svörin:

1.   Að hinir fornu guðir mann­kyns­ins hafi í raun verið geim­farar frá öðrum hnöttum.

2.   Slóvakíu.

3.   Þýska­land.

4.   Þriðja Lord of the Rings-mynd: The Return of the King.

5.   Pistasíu­hnetur.

6.   Olivia Newton-John.

7.   Karlsvagn­inn.

8.   Nóbels­verð­laun í bók­menntum.

9.   Margrét Lára Við­ars­dóttir.

10.   Mont Blanc.

Hér er þrautin frá í gær, en svörin við auka­spurn­ing­unum eru þessi:

Stalín vant­aði á mynd­ina.

Hér er hann með félögum sínum: Krústjov, Malenkov, Beria og Molotov.

Skrið­drek­inn kall­að­ist Tiger.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár