78. spurningaþraut: Hér gefst fólki í fyrsta sinn færi á að rýna í kort

78. spurningaþraut: Hér gefst fólki í fyrsta sinn færi á að rýna í kort

Auka­spurn­ingar:

Hvað heitir konan á efri mynd­inni?

Og á neðri mynd­inni sjáum við landa­kort. Hvað heitir það sund eða þá fjörður sem skerst þarna inn í landið?

Hér eru svo tíu af ýmsu tagi.

1.   Samkvæmt þeim upp­lýs­ingum sem bestar eru um plötu­sölu í ver­öld­inni hefur engin kona selt jafn mikið af plötum og Madonna. En hvaða kona er í öðru sæti?

2.   Sigldi maður úr Norð­ur­sjó og norður fyrir hið danska Jótland og í átt að Gauta­borg í Svíþjóð, þá liggur leiðin um tvö inn­höf eða haf­svæði sem bera sér­stök nöfn. Hvað heita þau?

3.   Hvað nefnd­ist eyjan Sri Lanka meðan það var enn nýlenda Breta?

4.   Celcius hét maður sá sem þró­aði þann hita­mæli, sem víð­ast er not­aður í ver­öld­inni nú. Hverrar þjóðar var hann?

5.   Stærsta sólin sem við vitum um nefn­ist „Steph­en­son 2-18“. Hún er tölu­vert stærri en Sólin okkar. Hversu mörgum sinnum meira er þver­mál hennar en okkar Sólar? 2,2 sinnum meira, 22 sinnum meira, 220 sinnum meira eða 2.200 sinnum meira?

6.   Rit­höf­undur einn fædd­ist árið 1947 og er einn sá sölu­hæsti og vin­sæl­asti í heimi. Hann hafði - þegar síð­ast frétt­ist - gefið út 61 skáld­sögu og auk þess margar bækur með 200 smá­sögum, sem sumar eru nálega í skáld­sögu­lengd. Dugnaður hans er ótrú­legur, hvað sem öðru líður. Hvað heitir hann?

7.   Hvað hét Ellý Vil­hjálms fullu nafni?

8.   Eitt þekktasta lag Ellýar er „Sveitin milli sanda“ sem hún syngur án orða. Hver samdi þetta ágæta lag?

9.   Hvað heitir vara­for­seti Banda­ríkj­anna?

10.   Hvaða íslenski rit­höf­undur skrif­aði til dæmis skáld­sög­urnar Leigj­and­ann og Gunnlað­arsögu?

Svörin eru hér:

1.   Rihanna.

2.   Skagerak og Kattegat.

3.   Ceylon.

4.   Sænskur.

5.   Þessi sól er 2.200 sinnum meiri að þver­máli en Sólin okkar. Ef hún væri í sól­kerf­inu okkar myndi hún ná út fyrir braut Sat­úrnusar.

6.   Stephen King.

7.   Henný Eldey.

8.   Magnús Blöndal Jóhanns­son.

9.   Mike Pence.

10.   Svava Jak­obs­dóttir.

Konan á efri mynd­inni er Bríet Bjarn­héð­ins­dóttir.

Á neðri mynd­inni má sjá Bospórussund milli Svarta­hafs og Marm­ara­hafs. Stór­borgin Istanbúl stendur við það sunn­an­vert, sjá:

Og hér er þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár