77. spurningaþraut: Eitt mesta hraungos sögunnar, hvar varð það?

77. spurningaþraut: Eitt mesta hraungos sögunnar, hvar varð það?

Auka­spurn­ingar:

Hver er reffi­legi ungi mað­ur­inn á efri mynd­inni?

Og hver er stúlkan á neðri mynd­inni?

Hinar tíu af öllu tagi eru aftur á móti þessar:

1.   Í hvaða kjör­dæmi er Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins for­maður?

2.   Hvernig er fram­haldið á þessum orðum: „Baulaðu nú Búkolla mín ...“

3.   Hvað heitir þorpið í Pat­reks­firði?

4.   Hverjir urðu heims­meist­arar í fót­bolta karla árið 1982?

5.   Árið 934 hófst eitt mesta hraun­gos sög­unnar sem mann­kynið hefur orðið vitni að, þótt að lík­indum væru vitnin ekki mjög mörg. Svo mikið er næsta víst að í gos­inu hafi runnið mesta hraun sem runnið hefur í einu gosi á jörð­inni á sögu­legum tíma. Gosið stóð að lík­indum í nokkur ár. Hvar varð þetta gos?

6.   Í íslenskum ævin­týrum eru oft notuð sömu kven­mannsnöfnin, ef nefna þarf til sögu þrjár dætur sem ein­hver á. Ása heitir þá sú fyrst­nefnda, en hvað heita hinar tvær?

7.   Í hvaða landi er bær­inn Tasilaq?

8.   Árið 1975 mætti nýr gít­ar­leik­ari til starfa í hljóm­sveit­inni The Rolling Stones sem þá hafði starfað saman í 13 ár. Flestum aðdá­endum finnst enn að þessi gít­ar­leik­ari sé eig­in­lega nýbyrj­aður, þótt hann hafi nú verið í band­inu í 45 ár. Hvað heitir hann?

9.   Það segir sig nokkuð sjálft að fjórar fjöl­menn­ustu borg­irnar á Spáni eru Madrid, Barcelona, Valencia og Sevilla. En hver er í fimmta sæti?

10.   Hvað heitir áning­ar­stað­ur­inn á Kili?

Svörin eru hér:

1.   Suð­ur­kjör­dæmi.

2.   „... ef þú ert nokk­urs staðar á lífi.“

3.   Pat­reks­fjörður.

4.   Ítalir.

5.   Eldgjá.

6.   Signý og Helga.

7.   Græn­landi.

8.   Ron Wood.

9.   Zaragoza.

10.   Hvera­vellir.

Eisenhowereftir að hafa verið yfir­hers­höfð­ingi Banda­manna í Evrópu í síð­ari heims­styrj­öld og síðan hús­bóndi í Hvíta hús­inu.

Hvað auka­spurn­ingar snertir, þá er ungi dát­inn á efri mynd­inni Dwight D. Eisenhower, sem síðar varð for­seti Banda­ríkj­anna. Stúlkan á neðri mynd­inni er á hinn bóg­inn Beyonce.

Hér er svo þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár