75. spurningaþraut: Djúp vötn og kraftbirtíngarhljómur guðdómsins

75. spurningaþraut: Djúp vötn og kraftbirtíngarhljómur guðdómsins

Auka­spurn­ing­arnar snú­ast báðar um að þekkja konur í sjón.

Hver er stúlkan á mynd­inni hér að ofan?

Og svo hin síð­ari, hver er konan á neðri mynd­inni?

En hér koma aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.   Hvað er dýpsta stöðu­vatn á Íslandi?

2.   En hvað er dýpsta stöðu­vatn í heimi, 1,6 kíló­metri á dýpt, eða eins og tæp­lega tvær Esjur?

3.   Árið 2014 runnu ítölsku bíla­verk­smiðj­urnar Fiat saman við amer­íska bíla­verk­smiðju, þótt hvor um sig fram­leiði áfram bíla undir sínu gamla nafni. Hver er sú amer­íska?

4.   Hver sagði: „Fögur er hlíðin“?

5.   Hver leik­stýrði banda­rísku hroll­vekj­unni The Thing árið 1982? Hún ger­ist á Suð­ur­skauts­land­inu eins og flestir vita.

6.   Bræður tveir, Jak­obs­synir, gerðu á yngri árum garð­inn frægan í spurn­inga­keppn­inni Gettu betur. Annar þeirra fæst nú við íslensk fræði og reyfara­smíð, hinn er sagn­fræð­ingur. Nú hin seinni ár hefur litla systir þeirra iðu­lega verið í fréttum. Hvað heita bræð­urnir?

7.   Nanna Kristín Magn­ús­dóttir lék og stjórn­aði fram­halds­þáttum í sjón­varp­inu í fyrra sem náðu veru­legum vin­sældum. Hvað hétu þeir?

8.   Skáldsagan Heims­ljós eftir Halldór Laxness hefst á því að ungur sveinn liggur meira og minna rúm­fastur og lætur sig dreyma um skáld­skap og kraft­birtín­g­ar­hljóm guð­dóms­ins. Hvað heitir hann?

9.   Film­stjarna hefur leikið í marg­vís­legum myndum, hún hefur til dæmis verið kærasta Spidermans í tveim myndum en svo fékk hún Ósk­arsverð­laun kvenna fyrir mynd­ina La la land. Hvað gæti hún heitið?

10.   Við þorpið Waterloo var háð orr­usta mikil árið 1815 og þar stýrði frönskum her Napóleon keis­ari en breskum her Wellington her­togi. En oft gleym­ist að einnig tók þátt í orr­ust­unni þýskur, eða öllu heldur, prúss­neskur her, og hver stýrði honum?

Hér eru svörin:

1.   Jök­ulsár­lón, 280 metra djúpt. Hér var gefið upp rangt svar til að byrja með, því miður. 

2.   Bajkal-vatn í Síberíu.

3.   Chrysler.

4.   Gunnar Hámund­ar­son, bóndi á Hlíð­ar­enda.

5.   John Carpenter.

6.   Ármann og Sverrir.

7.   Pabba­helgar.

8.   Ólafur Kárason og kallar sig Ljós­vík­ing.

9.   Emma Stone.

10.   Blücher.

Hérna er þrautin frá í gær.

En svörin við auka­spurn­ing­unum eru þessi:

Stúlkan á efri mynd­inni heitir Nadia Comăneci, rúm­ensk fim­leika­stjarna á ólymp­íu­leik­unum 1976, en konan á neðri mynd­inni er Leni Riefen­sthal, kvik­mynda­leik­stjóri.

Hér er öll myndin af henni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár