73. spurningaþraut: Hver var næstfyrsta konan í Biblíunni?

73. spurningaþraut: Hver var næstfyrsta konan í Biblíunni?

Auka­spurn­ingar:

Hvað er það sem sést á efri mynd­inni?

Og hver er karl­inn á neðri mynd­inni?

1.   Getafix heitir öld­ungur einn, hann veit lengra nefi sínu, eins og sagt er, en er einkum vel að sér um jurta­fræði hvers konar og kann öðrum betur að brugga ýmis lyf og krafta­mixt­úrur um þeim. Til að ná sér í jurtir til að setja í pott sinn gengur hann yfir­leitt með litla sigð á sér. Vinir hans njóta mjög kunn­áttu hans og eru þar tveir fremstir í flokki. Hvað kall­ast Getafix á íslensku?

2.   Í kringum 1980 voru bresku íþrótta­menn­irnir Sebast­ian Coe og Steve Ovett fremstir í heimi í sínum greinum og var mikil keppni millum þeirra. Í hvaða greinum kepptu þeir? Hér þarf þokka­lega nákvæmt svar.

3.   Hver gaf út plöt­una Kópacabana árið 2010 um heimabæ sinn, Kópavog?

4.   Eðli máls­ins sam­kvæmt er Eva fyrsta konan sem minnst er á í Bibl­í­unni. En hvaða kona er næst nefnd til sögu í bók­inni þeirri arna? Konan sú er reyndar ekki nefnd með nafni, en hún er þarna samt.

5.   Hún fædd­ist árið 1954, ólst upp í mik­illi fátækt og sætti ýmsu harð­ræði í æsku, en var afar staffírug, óþrjót­andi orku­búnt og reynd­ist stór­snjöll á því sviði sem hún valdi sér. Árið 1986 komst hún í mikla áhrifa­stöðu í heima­landi sínu og hélt þeirri stöðu allt til 2011 þegar hún dró sig í hlé. Enn hefur hún þó mikil áhrif á skoð­anir landa sinna á öllu mögu­legu, frá bókum til sam­fé­lags­mála. Hver er hún?

6.   Hvað heitir lengsti fjörður Noregs?

7.   „Þegar við sofnum öll, hvert förum við þá?“ Hver gaf út fyrstu hljóm­plötu sína með þessu nafni? Nafnið var þó auð­vitað á ensku: „When We All Fall Asleep, Where Do We Go?“

8.   Hvað heitir stærsta tunglið í sól­kerfi okkar, nærri 10 pró­sentum stærra að þver­máli en plánetan Merkúr og mun stærra en Tunglið okkar?

9.   Kona ein var þrí­gift og hétu eig­in­menn hennar Þor­valdur, Glúmur og Gunnar. Hún sætti heim­il­is­of­beldi af hendi þeirra allra, þótt í mis­miklum mæli væri. Öllum hefnd­ist þeim fyrir ofbeldið, þótt vel megi segja að refs­ing þeirra allra hafi verið all­miklu meiri en glæp­ur­inn. Hvað hét konan?

10.    Hvað nefn­ist skipa­skurð­ur­inn milli Rauða hafs­ins og Mið­jarð­ar­hafs­ins?

Hér eru svörin:

1.   Sjóð­ríkur - úr bók­unum um Ástrík og félaga.

2.   Milli­vega­lengdum í hlaupa­greinum karla. „Hlaup“ duga ekki ein og sér.

3.   Erpur Eyvind­ar­son, eða Blaz Roca.

4.   „Kain kenndi konu sinnar, og hún varð þunguð og fæddi Henok.“ Ekki fylgir sög­unni hvaðan þessi kona Kains kom, eða hvort hún var systir hans eins og hlýtur eig­in­lega að vera.

5.   Oprah Winfrey.

6.   Sogn­fjörður.

7.   Billie Eilish.

8.   Ganý­medes við Júpíter.

9.   Hall­gerður lang­brók.

10.   Súez-skurður.

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin sýnir hluta af bún­ingi Járn­karls­ins, Iron Man, í kvik­myndum þeim er gjörðar hafa verið um hálf­guð­ina Avengers.

Neðri myndin sýnir hins vegar Bjarna Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra, þann eldri sem það nafn hefur borið.

Þá má hér finna spurn­inga­þraut­ina frá því í gær­morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár