71. spurningaþraut: Af einhverjum ástæðum má finna hér þrjár spurningar um lögreglukonur

71. spurningaþraut: Af einhverjum ástæðum má finna hér þrjár spurningar um lögreglukonur

Auka­spurn­ing­arnar:

Efri mynd: Hver er mað­ur­inn?

Neðri mynd: Þetta er hluti af umslagi frægrar hljóm­plötu frægrar hljóm­sveitar. Hljóm­sveitin og platan heita sama nafni, nema hvað platan ber að auki núm­erið III til merkis um að vera þriðja breið­skífa hljóm­sveit­ar­innar. Hvað heitir hljóm­sveitin?

Og þá snúum vér oss að aðal­spurn­ing­unum tíu:

1.   Í landi einu heitir stærsta borgin - sem þó er ekki höf­uð­borg - Dar es Salaam. Hvaða land er það?

2.   Hvaða íslenski leik­rita­höf­undur skrif­aði leik­ritið Dagur vonar?

3.   Árið 2010 gáfu Friðrik Dór, Blaz Roca og Henrik Biering út lag sem naut heil­mik­illa vin­sælda. „Nóttin byrjar hér,“ segir meðal ann­ars í lag­inu, og „Látum tím­ann líða og dettum í'ða.“ Hvað heitir þetta lag?

4.   Hvað heitir lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu? Hér má sleppa föð­ur­nafni, ef fólk vill.

5.   Hvað heitir lög­reglu­konan sem Ilmur Krist­jáns­dóttir leikur í sjón­varps­þátta­röð­inni Ófærð?

6.   Ein af fyrstu íslensku lög­reglu­kon­unum gerð­ist seinna útvarps­maður og stýrir meira að segja útvarps­stöð. Hvað heitir hún?

7.   Eintak hét blað nokk­urt, sem hóf útgáfu sem svo­kallað glans­tíma­rit árið 1993, en breytt­ist svo í viku­blað í upp­hafi næsta árs. Rit­stjórar höfðu verið tveir en nú stóð annar eftir og rit­stýrði blað­inu þar til það lauk sögu sinni um haustið. Hver var sá rit­stjóri?

8.   Ozark heitir amer­ísk sjón­varps­s­ería sem margir munu hafa barið augum. Aðal­kven­hlut­verkið Wendy Byrde er í höndum leikkonu einnar frá New York-borg. Hvað heitir hún?

9.   Eins og allir vita er saffran eða saffron dýrasta krydd í heimi. 95 pró­sent af allri fram­leiðslu þessa rán­dýra krydds er í einu og sama land­inu. Hvaða land er það?

10.   Metternich hét aust­ur­rískur aðals­maður á 19. öld sem var lengi pott­ur­inn og pannan í utan­rík­is­póli­tík þess stór­veldis sem Aust­ur­ríki var þá. En hann er líka kunnur fyrir annað. Sagt er að árið 1832 hafi kunnur karl í Vín­ar­borg fundið upp og hrært í ákveð­inn hlut og fært Metternich, sem lét sér mjög vel líka. Hvort þessi saga er sönn er óvíst, en alt­ént hefur þessi hlutur æ síðan verið einn hinn vin­sæl­asti í heimi af sínu tagi, og sífellt boðið upp á hann í fínum sel­skap. Hvað var þetta?

Svörin eru hér:

1.   Tansaníu.

2.   Birgir Sig­urðs­son.

3.   „Keyrum þetta í gang.“

4.   Halla Bergþóra Björns­dóttir.

5.   Hinrika.

6.   Arn­þrúður Karls­dóttir.

7.   Gunnar Smári Egilsson.

8.   Laura Linney.

9.   Íran.

10.   Sacher-terta.

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri mynd­ina er af Buster Keaton.

Neðri myndin er af hluta plötu­umslags Led Zeppelin III. Þar er meðal ann­ars að finna slagar­ann Immigr­ant Song um vinnu­ferð hljóm­sveit­ar­innar norður til Íslands. Svarið er því Led Zeppelin. Svona leit umslagið í heild út:

Þrautin frá því í gær er hérna.

En að lokum má sjá hér - til bragð­bætis - eina sneið af Sacher-tertu:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár