70. spurningaþraut: Allt sem þú veist (vafalítið) um Rómaveldi

70. spurningaþraut: Allt sem þú veist (vafalítið) um Rómaveldi

Þegar númer spurn­inga­þrautar endar á núlli, þá snú­ast allar spurn­ingar um sama efni. Þessi er um Róma­veldi.

Auka­spurn­ing­arnar eru þessar:

Skip eins og á mynd­inni hér að ofan voru brúkuð í róm­verska flot­anum alla tíð heims­veld­is­ins. Hvað kall­að­ist þessi her­skipa­gerð?

Og neðri myndin: Róm­verjar voru miklir meist­arar í að reisa mann­virki eins og sjást á mynd­inni. Til hvers var þetta fer­líki reist?

Aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.   Einn gal­inn róm­verskur keis­ari var sagður hafa gert hest­inn sinn að öld­unga­ráðs­manni eða ræð­is­manni. Það er að vísu rangt, hann gerði það aldrei þótt hann kunni að hafa grín­ast með það, en hvaða keis­ari var þetta?

2.   Annar gal­inn Róm­ar­keis­ari er sagður hafa látið drepa mömmu sína til að hann þyrfti ekki sífellt að hlusta á kvartið í henni - og reyndar dregur eng­inn í efa að þær sögur séu sannar. Hvað hét þessi keis­ari?

3.   Í þjóð­sög­unni um stofnun Róma­borgar segir m.a. frá tví­burum, sem átti að bera út, en ákveðið kven­dýr tók bræð­urna að sér og kom þeim á legg. Hvaða dýr var þetta?

4.   Hvaða frægi Rómverji var drep­inn úr laun­sátri 15. mars árið 44 fyrir Krist?

5.   Skömmu fyrir lok þriðju aldar fyrir Krist gerði grimmur and­stæð­ingur Rómar inn­rás á Ítal­íu­skaga og vann frægan sigur á róm­verska hernum þar sem heitir við Cannae. Róm­verjar unnu þó það stríð að lokum, eins og flest önnur. Hvað hét þessi and­stæð­ingur?

6.   Rúmum tvö hund­ruð árum síðar biðu Róm­verjar annað frægan ósigur, þegar þeir misstu þrjár her­deildir þar sem heitir í Tevtó­borg­ar­skógi. Hvað hét and­stæð­ingur þeirra þar?

7.   Skömmu fyrir lok fyrstu aldar eftir Krist var reist hring­leika­hús eitt mikið í Róma­veldi og stendur sú bygg­ing enn að mestu. Hvað er hring­leika­húsið kallað?

8.   Í hring­leika­hús­inu komu meðal ann­ars fram skylm­inga­þrælar sem börð­ust upp á líf og dauða, blóð­þyrstum áhorf­endum til skemmt­unar. Hvað var aðal­hug­takið sem notað var um slíka skylm­inga­þræla?

9.   Einn var sá Róm­ar­keis­ari sem lét bæði ljúka við hið fræga hof Pantheon í Rómaborg, sem er enn stendur, og reisa múr nokkurn veg­inn á mótum Englands og Skotum, svo róm­verskar lendur í suðr­inu væru óhultar fyrir árásum norð­an­manna. Hvar hét þessi bygg­ingaglaði keis­ari?

10.   Eftir að Rómaborg hafði verið óhult í 800 ár birt­ist við borg­ar­múr­ana germ­anskur þjóð­flokkur árið 410 eftir Krist og lagði borg­ina undir sig. Germanir eða Vestur-Gotar, eins og þeir eru oft­ast kall­aðir, rændu og rupluðu í borg­inni, en héldu svo á brott og end­uðu svo seinna á Spáni þar sem þeir stofn­uðu ríki. Foringi þess­ara Vestur-Gota fékk ekki lengi að njóta auð­æf­anna, sem rænt var úr borg­inni, því hann lést skömmu eftir að her hans hélt þaðan. Til að gröf hans fengi að vera í friði létu höfð­ingjar Vestur-Gota stífla á nokkra og veita henni úr far­vegi sínum um skeið, og var for­ing­inn graf­inn á árbotn­inum. Síðan var ánni veitt aftur í far­veg sinn, yfir gröf­ina, og allir þrælar og verka­menn drepnir sem höfðu unnið við fram­kvæmd­irnar, svo eng­inn væri til frá­sagnar um hvar gröfin væri. Enda hefur hún aldrei fund­ist. Hvað hét þessi for­ingi Vestur-Gota?

Hér eru svörin:

1.   Caligula.

2.   Nero.

3.   Úlfur.

4.   Caesar.

5.   Hannibal.

6.   Arminius.

7.   Colosseum.

8.   Gladi­ator.

9.   Hadri­anus.

10.   Alaric.

Og skipin köll­uð­ust galeiður.

Og mann­virkið var til að flytja vatn.

Hér er þraut frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár