69. spurningaþraut: Hér er meðal annars ein spurning um Steingrím J. Sigfússon

69. spurningaþraut: Hér er meðal annars ein spurning um Steingrím J. Sigfússon

Auka­spurn­ing­arnar:

Úr hvaða banda­rísku kvik­mynd er skjá­skotið hér að ofan?

Hvað heitir lyfti­duftið sem sést á mynd­inni hér að neðan?

En aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.   Hver samdi tón­verkið „Dóná svo blá“. Svarið þarf að vera býsna nákvæmt.

2.   Fyrir hvaða kjör­dæmi situr Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis á þingi?

3.   Hvað heitir for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands, KSÍ?

4.   Hvað heitir verð­andi drottn­ing Sví­þjóðar, þegar faðir hennar deyr eða lætur af emb­ætti?

5.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Kína?

6.   Nóbels­verð­launin í bók­mennt­unum er eft­ir­sótt­asti sómi sem rit­höf­undum er sýndur. Ekki fá þó allir verð­launin sem maður skyldi ætla að ættu þau skilið. Eft­ir­far­andi höf­undar eru allir óum­deil­an­lega meðal þeirra sem voru fremstir höf­unda á fyrri hluta 20. aldar: Lev Tolstoj (Rúss­landi), August Strind­berg (Svíþjóð), Knut Hamsun (Noregi), Marcel Proust (Frakk­landi), Franz Kafka (Aust­ur­ríki/Tékk­landi), Virginia Woolf (Englandi), Federico García Lorca (Spáni), James Joyce (Írlandi). Aðeins einn þess­ara höf­unda fékk þó Nóbels­verð­launin. Hver var það?

7.   Hún var ekki í hópi stofn­fé­laga Syk­ur­mol­anna, en gekk þó fljót­lega til liðs við hljóm­sveit­ina og spil­aði á hljóm­borð þar til hljóm­sveitin hætti. Síðan hefur hún feng­ist við sitt af hverju, meðal ann­ars skrifað hand­rit að sjón­varps­þáttum. Hver er hún?

8.   Hvað heitir stærsta eyja Frakk­lands í Mið­jarð­ar­hafi?

9.   Alfred Dreyfus var franskur her­for­ingi sem lenti í miklum hremm­ingum laust fyrir alda­mótin 1900, þegar hann var að ósekju sak­aður um glæp og vöktu rétt­ar­höldin yfir honum gríð­ar­lega athygli. Talið er full­víst að sú stað­reynd að Dreyfus var Gyðingur hafi átt mestan þátt í að farið var af stað með mála­rekstur gegn honum. En um hvað var hann sak­aður?

10.   Hver var spyrill í spurn­inga­keppn­inni „Gettu betur“ síð­ast­lið­inn vetur?

Svörin:

1.   Johann Strauss. „Strauss“ dugar ekki. Hins vegar er ekki þörf á að segja „Johann Strauss yngri“ þótt það væri í sjálfu sér nákvæm­asta svarið.

2.   Norð­austur.

3.   Guðni Bergsson.

4.   Viktoría.

5.   Bejing.

6.   Norð­mað­ur­inn Knut Hamsun.

7.   Margrét Örn­ólfs­dóttir.

8.   Korsíka.

9.   Njósnir.

10.   Krist­jana Arn­ars­dóttir. 

Hérna eru svörin við spurn­inga­þraut gær­dags­ins, en loks eru hér svörin við auka­spurn­ing­unum:

Myndin efst er úr kvik­mynd­inni Butsch Cassidy and the Sundance Kid.

Sjá hér:

Lyfti­duftið er af gerð­inni Royal:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár