68. spurningaþraut: Sykurmolarnir, Bunuel, Fjalla-Eyvindur og ástfangin stúlka

68. spurningaþraut: Sykurmolarnir, Bunuel, Fjalla-Eyvindur og ástfangin stúlka

Auka­spurn­ingar eru þessar:

Í hvaða stríði var hún tekin, sú skelfi­lega en víð­fræga ljós­mynd sem sést hér að ofan?

Og hvað heitir konan á neðri mynd­inni?

1.   Í mjög vin­sælli kvik­mynd, sem gerð var árið 1982, var per­sóna sem eng­inn vissi hvað hét í raun og veru. Gera átti fram­hald af mynd­inni, og þar átti meðal ann­ars að koma í ljós að per­sónan héti Zrek. Ekki varð af fram­halds­mynd­inni, bless­un­ar­lega segja sumir, og því mun per­sónan ævin­lega ganga undir gælu­nafn­inu ... ja, undir hvaða gælu­nafni er per­sónan kunn?

2.   Hvað er útbreiddasta tungu­málið á Indlandi? Þá er vel að merkja ekki átt við ensku þótt ansi margir kunni eitt­hvað í þeirri tungu.

3.   Syk­ur­mol­arnir voru stór­merki­leg hljóm­sveit sem fór heil­mikla sig­ur­för um heim­inn á seinni hluta níunda ára­tug­ar­ins. Björk, Einar Örn Bene­dikts­son gerðu garð­inn frægan með hljóm­sveit­inni, en hún er oft­ast sögð sprottin upp úr annarri hljóm­sveit sem hafði spilað saman í nokkur ár. Hljóm­sveit­ar­með­limum sjálfum fannst tón­list þeirrar hljóm­sveitar orðin of þung og tor­melt og vildu létta sér lund með Syk­ur­mol­unum. Hvað hét þessi „þunga“ hljóm­sveit?

4.   Fyrir hvaða flokk situr Halldóra Mogensen á þingi?

5.   Luis Bunuel var einn af fremstu lista­mönnum Spán­verja á 20. öld. Hvað var hans fag í list­inni?

6.   Hvers son var Fjalla-Eyvindur?

7.   „Ég ætla að skreppa út. Ég verð kannski svolitla stund.“ Þetta mælti einn leið­ang­urs­manna í frægri hóp­ferð, þegar hann fór út úr tjaldi sínu í síð­asta sinn. Leið­ang­urs­menn voru orðnir aðfram­komnir af hungri, þreytu og kulda og þessi til­tekni maður ætl­aði að létta félögum sínum lífið með því að fórna lífi sínu. Hver stjórn­aði þessum illa heppn­aða leið­angri? Hér dugir eft­ir­nafn?

8.   Í hvaða haf­svæði er Gotland?

9.   Hún var ung og ást­fang­inn, en sá sem hún elskaði virt­ist orð­inn henni frá­hverfur og hædd­ist að henni. Ekki bætti úr skák að hún missti föður sinn á voveif­legan hátt um sama leyti. Í örvænt­ingu sinni gekk hún af vit­inu, ráf­aði um og tal­aði óskilj­an­lega þvælu. Skömmu síðar klifraði hún á píl­við­ar­grein við árbakka og þegar hún teygði sig eftir blóm brotn­aði greinin. Hún datt í ána, gerði enga til­raun til að bjarga sér og drukkn­aði. Hvað hét hún?

10.   „Muumuu“ heitir kjóla­teg­und, þetta eru léttir og mjög lit­ríkir kjólar, rúm­lega hné­síðir og yfir­leitt mjög erma­stuttir. Þeir eru upp­runnir í til­teknu ríki Banda­ríkj­anna. Hvaða ríki gæti það verið?

Svörin:

1.   ET.

2.   Hindí.

3.   Kukl.

4.   Pírata.

5.   Hann var kvik­mynda­leik­stjóri.

6.   Jónsson.

7.   Scott hét mað­ur­inn sem stýrði þessum leið­angri á Suð­ur­skautið.

8.   Eystra­salti.

9.   Ófelía.

10.   Havaí.

Svör við auka­spurn­ingum:

Myndin var tekin í Víetnam­stríð­inu.

Konan er Vilborg Dag­bjarts­dóttir skáld­kona og kenn­ari.

Hér er þrautin frá í gær.

Hér að neðan má svo að gamni sjá nokkra dæmi­gerða muumuu-kjóla:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár