67. spurningaþraut: Hvar ætluðu Bandaríkjamenn að sprengja atómsprengju, og fleira

67. spurningaþraut: Hvar ætluðu Bandaríkjamenn að sprengja atómsprengju, og fleira

Hvaða nafn­frægu per­sónu úr grísku goða­fræð­inni má sjá á mynd­inni hér að ofan?

Þetta var fyrri auka­spurn­ingin.

Hin snýst um neðri mynd­ina og er svona:

Hver er þetta?

En þá eru fyrst hinar sívin­sælu aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Afganistan?

2.   Sam­herj­a­skjölin svo­nefndu snú­ast um meintar mútu­greiðslur fyr­ir­tæk­is­ins til stjórn­mála- og áhrifa­manna í fyrst og fremst einu Afr­íku­ríki. Hvaða ríki er það?

3.   Í Færeyjum kall­ast sá „lög­maður“ sem á Íslandi er nefndur „for­sæt­is­ráð­herra“. Hver hefur lengst allra í nútíma gegnt þessu starfi?

4.   Jóhann Jónsson orti frægt ljóð sem hefst svo: „Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað?“ Hvað heitir ljóðið?

5.   Vivianne Miedema heitir ung fót­bolta­kona sem nú spilar með Arsenal. Hún er ógur­legur marka­skor­ari og skorar nálega eitt mark í leik, bæði með félags­liði sínu og lands­liði. Fyrir hvaða lands­lið spilar hún?

6.   Rosalind Franklin var breskur vís­inda­maður sem lést úr krabba­meini aðeins 37 ára. Það var árið 1957. Hún var harmdauði sínu fólki en ann­ars var hún ekki sér­lega þekkt. Löngu síðar kom í ljós að hún hafði átt mjög mik­il­vægan þátt í stór­kost­legri vís­inda­upp­götvun, en heið­ur­inn af þeirri upp­götvun féll fyrst og fremst í skaut tveggja karla. Á síð­ustu árum hefur hlutur Rosalind Franklin þó verið dreg­inn fram í dags­ljósið. Um hvað sner­ist hin umrædda vís­inda­upp­götvun?

7.   Árið 1958 börðu banda­rískir ráða­menn saman svo­kall­aða „Áætlun 119A“ sem sner­ist um að sprengja kjarn­orku­sprengju á ákveðnum stað til að sýna mátt og megin Banda­ríkj­anna. Sem betur fer var áætl­unin lögð á hill­una en hvar átti að sprengja sprengj­una?

8.   Árið 2016 hófust á Netflix sýn­ingar á sjón­varps­þátta­röð um Elísa­betu Eng­lands­drottn­ingu og fjöl­skyldu hennar. Röðin heitir The Crown og sló í gegn. Í fyrstu tveimur þátta­röð­unum var Elísabet leikin af ... ja, hvað hét hún, leik­konan sú?

9.   Á árunum 1799-1837 var uppi skáld eitt í Rúss­landi. Skáldið hefur verið tal­inn hold­gerv­ingur róm­an­tísku stefn­unnar í Rúss­landi og fyrsta sann­kall­aða stór­skáldið þar í landi. Verk skálds­ins eru fjöl­mörg en ætli verk eins og Leitin að Ljúdmílu fögru, Spaða­drottn­ingin og Evgení Onegín séu ekki þekkt­ust hér? Skáldið lét lífið í asna­legu ein­vígi. Hvað hét þetta skáld?

10.   Hvaða breska hljóm­sveit sló í gegn árið 1992 með lag­inu Creep?

Svör:

1.   Kabúl.

2.   Namibíu.

3.   Atli Dam.

4.   Söknuður.

5.   Hollands.

6.   DNA.

7.   Á tungl­inu.

8.   Claire Foy.

9.   Alex­ander Púsjkin.

10.   Radi­ohead.

Svör við auka­spurn­ingum:

Pró­meþeifur.

Coco Chanel.

Einmitt hér er svo að finna þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár