66. spurningaþraut: Shakespeare, fótbolti, forsætisráðherra, ópera, hvað viljiði meira?

66. spurningaþraut: Shakespeare, fótbolti, forsætisráðherra, ópera, hvað viljiði meira?

Auka­spurn­ingar eru tvær að þessu sinni.

Á mynd­inni hér að ofan, hvaða fólk má sjá þarna? Athugið að þarna eru tveir ein­stak­lingar, þótt hinar ýmsu vélar kunni að klippa mynd­ina mis­vel.

En um neðri mynd­ina er líka spurt, ein­fald­lega: Hver er þetta?

1.   Hvað hét banda­ríska stór­borgin New York áður en hún hét New York?

2.   Hver samdi óper­una Il Trovatore?

3.   Víð­frægur en umdeildur banda­rískur kvik­mynda­leik­stjóri vinnur nú að mynd um upp­risu Jesúa frá Nasaret og reyndar er það ekki í fyrsta sinn sem hann fæst við líf Jesúa. Síðasta mynd hans hét hins vegar Hacksaw Ridge og fjall­aði um sjúkra­liða í banda­ríska hernum í síð­ari heims­styrj­öld sem vildi ekki bera vopn. Hvað heitir þessi leik­stjóri?

4.   Hvað hét fyrsti for­sæt­is­ráð­herra Íslands?

5.    Hvað heitir for­maður verka­lýðs­fé­lags­ins Eflingar?

6.   Móðir for­manns­ins var í ára­tugi virtur og vin­sæll útvarps­þulur. Hvað heitir hún?

7.   Lið Chelsea varð enskur meist­ari í fót­bolta um dag­inn, það er að segja í kvenna­flokki. Með lið­inu leikur 27 ára varn­ar­jaxl sem spilar undir fána Noregs enda hefur hún verið búsett þar alla sína ævi og móðir hennar er norsk. Faðir hennar er hins vegar Íslend­ingur og frægur íþrótta­þjálf­ari í Noregi. Hvað heitir hún?

8.   Í leik­riti Shakespe­ares, Lé kóngi, segir frá gömlum kon­ungi sem hyggst skipta ríki sínu milli dætra sinna þriggja en heimtar í stað­inn að þær smjaðri fyrir sér. Sú yngsta neitar að gera það og af því sprettur mikil flétta, því karl gerir hana arf­lausa um leið, en svo kemur auð­vitað í ljós að hún er sú eina sem elskar karl­hróið í raun og veru. Hvað heitir þessi yngsta dóttir Lés?

9.   Um hvaða konu var sagt að feg­urð hennar væri slík að hennar vegna væri þús­und skipum hrint í sjó? Með því var átt við að stríð braust út vegna hennar, og fjöldi skipa stefndi til borg­ar­innar Tróju að frelsa hana úr klóm brott­náms­manns.

10.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Ung­verja­landi?

1.   Nýja Amster­dam.

2.   Verdi.

3.   Mel Gibson.

4.   Jón Magn­ús­son.

5.   Sólveig Anna Jóns­dóttir.

6.   Ragn­heiður Ásta Pét­urs­dóttir.

7.   María Þór­is­dóttir.

8.   Cordelía.

9.   Helena fagra.

10.   Búdapest.

Á mynd­inni hér ögn ofar er vit­an­lega engin önnur er breska kvik­mynda­leik­konan Emma Watson, sem sló fyrst í gegn í hlut­verki Hermione Granger í Harry Potter-mynd­unum.

En á mynd­inni efst eru þau Björk Guð­munds­dóttir og Eyþór Arnalds að leika og syngja með hljóm­sveit­inni Tappi tík­arrass.

Hér er öll myndin sem skjá­skotið var tekið af:

En hér er svo þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár