64. spurningaþraut: Nýlenduveldi, bæði í Ameríku og Afríku, koma hér við sögu

64. spurningaþraut: Nýlenduveldi, bæði í Ameríku og Afríku, koma hér við sögu

Fyrri auka­spurn­ingin: Hvað er að ger­ast á mynd­inni hér að ofan?

Sú seinni er eig­in­lega eft­ir­hreytur frá spurn­ingum um dag­inn um þjóð­fána. Hver er sem sé fán­inn hér fyrir neðan?

En aðal­spurn­ing­arnar eru þessar:

1.   Jurt ein hér á landi er kölluð „katt­ar­auga“ en er þó enn þekkt­ari undir öðru nafni. Hvað er það?

2.   Hvað hét yfir­maður hinna þýsku SS-sveita?

3.   Árið 1917 keyptu Banda­ríkja­menn nokkrar eyjar í Karí­ba­hafi sem Evr­ópu­ríki eitt hafði haldið sem nýlendu í rúmar tvær aldir og meðal ann­ars stundað þar umfangs­mikið þræla­hald um tíma. Nú kall­ast eyj­arnar Banda­rísku jóm­frúr­eyjar. Hvaða Evr­ópu­ríki hafði áður haft eyj­arnar sem nýlendu?

4.   Þýska­land fór fremur seint að sækj­ast eftir nýlendum í Afríku, en lét loks til skarar skríða og sex Afr­íku­lönd nú á dögum eru að meira eða minna leyti fyrr­ver­andi þýskar nýlendur. Nefnið að minnsta kosti eitt þess­ara landa.

5.   Hvað heitir næst stærsta borgin í Svíþjóð á eftir höf­uð­borg­inni Stokk­hólmi?

6.   John Simon Ritchie hét tón­list­ar­maður sem spil­aði í einni fræg­ustu hljóm­sveit heims rétt upp úr 1975. Hann var kunnur fyrir róstu­samt líf­erni og var grun­aður um að hafa stungið unn­ustu sína til bana. Hann lést síðan eftir ofneyslu eit­ur­lyfja aðeins 21s árs að aldri. Ritchie er reyndar miklu þekkt­ari undir öðru nafni - við­ur­nefni sem hann tók sér þegar hann gekk til liðs við hljóm­sveit­ina fyrr­nefndu. Hvað var hann kall­aður?

7.   Hver lék aðal­hlut­verkið í kvik­mynd­inni „Kona fer í stríð“?

8.   Árið 827 gerðu her­sveitir Araba og Berba inn­rás á Sikiley frá Norður-Afríku undir for­ystu Asad ibn al-Fura og þær náðu hluta eyj­ar­innar á sitt vald. Tæpri öld síðar höfðu múslimar náð allri Sikiley á sitt vald, og héldu eyj­unni í 250 ár eða svo. Seint á 11. öld voru þeir burt reknir af inn­rás­ar­liði Normanna. En þótt múslimar yrðu að halda á brott, þá skildu þeir eftir á Sikiley svo­lítið sem svo breidd­ist út um alla Ítalíu og margir halda síðan að sé ítalskt að upp­runa. Hvað var það?

9.   Vömb, keppur, laki og vinstur. Hvað er þetta?

10.   Eitt allra vin­sælasta lagið á Vest­ur­löndum og raunar víðar árið 2019 var „Old Town Road“ sem hefur verið lýst sem kán­tri-rappi. Hver flutti þetta lag?

1.   Gleym-mér-ei.

2.   Heinrich Himmler.

3.   Danmörk.

4.   Kamerún, Tógó, Rúanda, Búrúndí, Tansanía og Namibía.

5.   Gauta­borg.

6.   Sid Vicious.

7.   Halldóra Geir­harðs­dóttir.

8.   Pasta. Spagetti telst líka vera rétt.

9.   Hólf í maga jórt­ur­dýra.

10.   Lil Nas X.

Myndin hér efst er brot af frægri ljós­mynd sem tekin var á því and­ar­taki þegar næt­ur­klúbba­eig­and­inn Jack Ruby myrti Lee Harvey Oswald, mein­tan morð­ingja John F. Kennedys Banda­ríkja­for­seta árið 1963.

Flaggið er þjóð­fáni Kyrra­hafs­eyj­a­rík­is­ins Vanuatu.

Hér er öll myndin af morð­inu á Lee Harvey Oswald.

Og hér eru svo spurn­ing­arnar frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár