63. spurningaþraut: Númer hvað verður Vilhjálmur, og fleira

63. spurningaþraut: Númer hvað verður Vilhjálmur, og fleira

Auka­spurn­ingar:

Úr hvaða tölvu­leik er per­sónan hér að ofan?

Og hver mál­aði mynd­ina hér að neðan af frú einni með hreysi­kött?

En þá eru það aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.   Hvað heitir aðal­mark­vörður karla­liðs Liverpool í fót­bolta?

2.   Ef fram fer sem horfir, þá verður Vil­hjálmur prins, sonur Díönu Spencer og Karls prins, ein­hvern tíma í fram­tíð­inni kon­ungur Bret­lands. Vil­hjálmur númer hvað mun hann þá verða?

3.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Valletta?

4.   Írland hefur unnið Eurovision söngvakeppn­ina oftar en nokkuð annað land. Hversu oft?

5.   Golfleik­ar­inn kunni Tiger Woods var ekki skírður Tiger, heldur er það gælu­nafn hans. Hvað er hið rétta for­nafn golfleik­ar­ans?

6.   Og talandi um golf. Árið 2017 var golfleik­ari í fyrsta sinn val­inn íþrótta­maður árs­ins á Íslandi. Hver var það?

7.   Hvert er til­kall þýsku her­flug­vél­ar­innar Messerschmitt 262 til frægðar?

8.   Hver lék Judy Garland í bíó­mynd frá í fyrra? Myndin hét ein­fald­lega Judy.

9.   Við hvaða eyju er forn­gríska skáld­konan Saffó ævin­lega kennd?

10.   Fyrir nokkru síðan fóru þrjár ung­verskar systur mik­inn á skák­mótum heims­ins og sýndu ræki­lega fram á að konur geta vel keppt á jafn­rétt­is­grund­velli við karla í skák. Þær báru ætt­ar­nafnið Polgar og sú yngsta reynd­ist þeirra lang­best og var um tíma í hópi allra sterk­ustu skák­manna heims. Hvað heitir hún að for­nafni?

1.   Allison.

2.   Vil­hjálmur fimmti.

3.   Á Möltu.

4.   Sjö sinnum.

5.   Eldrick.

6.   Ólafía Þórunn Krist­ins­dóttir.

7.   Fyrsta þotan sem tekin var í almenna notkun með góðum árangri í hern­aði.

8.   Renée Zellweger.

9.   Lesbos.

10.   Judit.

Og svörin við auka­spurn­ingum:

Persónan er úr tölvu­leiknum Assassin's Creed.

Leonardo da Vinci mál­aði frúna og hreysi­kött­inn.

Hér er svo þraut frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár