62. spurningaþrautin: Hvaða kona söng oftast inn á Bítlalög?

62. spurningaþrautin: Hvaða kona söng oftast inn á Bítlalög?

Myndin hér að ofan er hluti af kvik­myndaplakati frá 2002. Myndin fjall­aði um ævi tón­list­ar­manns og var byggð á ævi aðal­leik­ar­ans. Hver er hann?

Á neðri mynd­inni er skip eitt glæsi­legt sem oft sást á ytri höfn­inni í Reykja­vík til skamms tíma. Hver átti þetta skip þá?

En hér eru aðal­spurn­ing­arnar:

1.   Hvar hófst hin svo­nefnda „Mau Mau“ upp­reisn gerð gegn breskri nýlendu­stjórn 1952?

2.   Í hvaða heims­álfu er kryddið túr­merik upp­runnið?

3.   Hvað heitir kven­dýr sela?

4.   Hver skrif­aði bók­ina Barn nátt­úr­unnar snemma á 20. öld?

5.   Hvar í Svíþjóð bjó lög­reglu­mað­ur­inn Wallander?

6.   Hvaða land klauf sig frá Pakistan árið 1971?

7.   Bogomil Font og Millj­óna­mær­ing­arnir voru vin­sæl dans­hljóm­sveit hér í eina tíð. Hver var Bogomil Font?

8.   Hvaða fram­halds­skóli vann spurn­inga­keppn­ina Gettu betur árið 2020?

9.   Hver var fyrsta konan sem varð for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands?

10.   „Ég mundi aldrei láta konu syngja inn á Bítla­plötu,“ sagði Bít­ill­inn Paul McCartney eitt sinn, en raunin er sú að víst heyr­ist í örfáum konum í bak­röddum í Bítla­lögum, auk þess sem heill kvenna­kór syngur bak­rödd í tveim lögum, og all­margar kven­raddir má og greina í þriðja lag­inu. Fyrsta lag Bítlanna, þar sem greina má kven­raddir í bak­grunn­inum, var hins vegar Yellow Submar­ine, tekið upp um mán­aða­mótin maí-júní, og þar sungu bak­rödd tvær konur. Önnur var söng­konan Marianne Fait­h­full en hina kon­una er spurt um hér. Hana not­uðu Bítl­arnir í fleiri lögum en nokkra aðra, því hún söng í alls þrem Bítla­lögum. Auk Yellow Submar­ine heyrð­ist í henni í All You Need is Love og Birthday. Hver var þessi kona? 

Svörin:

1.   Keníu.

2.   Asíu.

3.   Urta.

4.   Halldór Laxness.

5.   Í bænum Ystad.

6.   Bangla Desj.

7.   Sig­tryggur Bald­urs­son.

8.   MR.

9.   Margaret Thatcher.

10.   Patti Harrison, eig­in­kona George Harrison. Hér eru þau hjónin.

Svörin við auka­spurn­ingum:

Tón­list­ar­mað­ur­inn er Eminem.

Eigandi snekkj­unnar var Paul Allen, stof­andi Microsoft ásamt Bill Gates og þriðja manni sem ég mun spyrja um síðar. Í til­efni dags­ins ætla ég að leyfa ykkur að ráða því hvort þið gefið ykkur rétt fyrir að segja „stofn­andi Microsoft“ þótt þið munið ekki nafn Pauls sál­uga Allens. En slík laus­ung verður ekki alsiða á þessum vett­vangi.

En hér er svo þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár