59. spurningaþraut: Reikistjarna, Eiffel-turninn, Blóð-María og dularfullur teiknari

59. spurningaþraut: Reikistjarna, Eiffel-turninn, Blóð-María og dularfullur teiknari

Hér eru auka­spurn­ing­arnar tvær:

Hver er mað­ur­inn á mynd­inni hér að ofan?

Hvað heitir dýrið á mynd­inni að neðan?

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða reiki­stjarna sól­kerf­is­ins er númer tvö í röð­inni frá sólu?

2.   Hversu hár er Eiffel-turn­inn í París - fyrir utan loft­netið sem nú stendur efst á turn­inum? Hér má muna 10 metrum til eða frá.

3.   Maður nokkur starfar við fjöl­miðla og gæti með réttu gengið þar undir nafn­inu Georg Jóhanns­son, en kýs að nota önnur tvö af fjórum nöfnum sínum. Hver er mað­ur­inn?

4.   „Blóð-María“ - yfir hvaða ríki ríkti hún sem drottn­ing á 16. öld?

5.   Hvaða ráð­herra­emb­ætti gegndi Álf­heiður Inga­dóttir um skeið í rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur eða 2009-2010?

6.   Hvað eiga kvik­mynda­stjarnan Charlize Theron og sjón­varps­grínist­inn Trevor Noah alveg sér­stak­lega sam­eig­in­legt?

7.   Hvað hét hinn mjög svo áhrifa­mikli upp­töku­stjóri Bítlanna?

8.   Árið 1977 kom út í Danmörku ný útgáfa af ævin­týra­sagna­bálki J.R.R.Tolkiens, Lord of the Rings. Hverjum kafla bók­ar­innar fylgdi teikn­ing eftir lista­mann sem kall­aði sig Ingahild Grathmer, en reynd­ist við nán­ari athugun heita allt öðru nafni. Hver var - eða er - hin drátt­haga Ingahild Grathmer?

9.   Hvað heitir höf­uð­borg Fil­ipps­eyja?

10.   Hversu mörg kíló eru í einu tonni?

Svör:

1.   Venus.

2.   300 metra - svo rétt er allt frá 290-310.

3.   Helgi Seljan. Hann heitir fullu nafni Georg Helgi Seljan Jóhanns­son.

4.   Englandi.

5.   Heil­brigð­is­ráð­herra.

6.   Þau eru bæði fædd í Suður-Afríku.

7.   George Martin.

8.   Margrét II drottn­ing.

9.   Manila.

10.   Þúsund.

Karl­mað­ur­inn á kaffi­hús­inu er Andres Baader (1943-1977), þýskur hryðju­verka­maður.

Dýrið heitir snjó­hlé­barði. Hlébarði dugar ekki.

En hér er þrautin frá í gær.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár