58. spurningaþraut: Hvað er þessi maður, með leyfi, að bardúsa?

58. spurningaþraut: Hvað er þessi maður, með leyfi, að bardúsa?

Eins og venju­lega eru fyrst lagðar fyrir yður tvær auka­spurn­ingar:

Hvað er að ger­ast á mynd­inni hér að ofan?

Hver er tón­list­ar­konan á mynd­inni hér að neðan?

Þá eru það aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.   Hver er elsti starf­andi stjórn­mála­flokkur á Íslandi?

2.   Hvað heitir stærsta borgin í Kanada?

3.   Leikkona ein, ensk að ætt og upp­runa, heitir Emilia Clarke. Fyrir hvaða hlut­verk er hún lang­sam­lega þekkt­ust?

4.   Hvað heitir sundið milli dönsku eyj­anna Sjálands og Fjóns?

5.   Bergþóra Snæ­björns­dóttir vakti heil­mikla athygli fyrir skáld­sögu sem hún gaf út fyrir jólin 2019. Hvað heitir bókin?

6.   Hver skrif­aði á hinn bóg­inn skáld­sög­una Anna Karenína?

7.   Hversu mörg karöt getur gull verið?

8.   Manchester United, Liverpool og Arsenal hafa unnið enska meist­ara­tit­il­inn í fót­bolta oftar en önnur lið. En hvaða lið er í fjórða sæti?

9.   Hlýri heitir fiskur einn sem býr meðal ann­ars við Íslands­strendur. Hann er náfrændi ann­ars fisks, sem fleiri þekkja með nafni. Hver er frænd­inn?

10.   Við lok fyrri heims­styrj­aldar 1918 var illa komið fyrir ýmsum þegnum stríðs­að­ila, ekki síst Aust­ur­rík­is­manna og Þjóð­verja, en í löndum þeirra bjuggu menn við skort svo nálg­að­ist hung­ursneyð. Kona ein um þrí­tugt tók það þá til bragðs að betla á götum úti svo hún ætti fyrir mat handa sér og börnum sínum. Þetta þurftu margir að gera en í hennar til­felli var það merki­legt, því aðeins skömmu áður hafði hún verið mjög vel stæð. Faðir hennar var nefni­lega Emil nokkur Jellinek bíla­á­huga­maður og -sölu­maður sem átti hug­mynd­ina að vand­aðri bíla­teg­und, sem kom fyrst á sjón­ar­sviðið 1901. Hann fékk að skíra bíl­ana í höf­uðið á þess­ari dóttur sinni, og þrátt fyrir ýmsa fyr­ir­tækja­sam­runa er enn í dag not­ast við nafn hennar. Hvað hét hún? Hér er spurt um for­nafn ein­göngu.

Svörin:

1.   Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn.

2.   Toronto.

3.   Hún lék Daenerys Tar­g­ar­yen í sjón­varps­þátt­unum Game of Thrones.

4.   Stóra belti.

5.   Svíns­höfuð.

6.   Lev Tolstoj.

7.   24.

8.   Everton.

9.   Stein­bítur.

10.   Mercedes.

Á efri mynd­inni er verið að hlaða Berlín­ar­múr­inn 1961.

Sjá hér alla mynd­ina:

En tón­list­ar­konan heitir Nanna Bryndís Hilm­ars­dóttir sem syngur og spilar með Of Monsters and Men-flokknum.

Hér er svo þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár