„Hold the press!“

Blaða­menn sem fylgj­ast með mót­mælum í Banda­ríkj­unum hafa orðið fyrir hörðum árásum lög­reglu. Meira en sex­tíu hafa verið hand­teknir við störf sín og tugir fengið að finna fyrir gúmmí­kúlum, táragasi og kylfum þar sem þeir reyna að flytja fréttir af vett­vangi mót­mæl­anna. Forseti lands­ins er í stríði við fjöl­miðla, sem hann sakar um að grafa undan sér, en tvö ár eru síðan Banda­ríkin komust fyrst á lista yfir hættu­leg­ustu ríki heims fyrir blaða­menn.

„Hold the press!“
Trump sussar á blaða­mann Donald Trump Banda­ríkja­for­seti þagg­aði niður í frétta­manni á blaða­manna­fundi í Washington 5. júní síð­ast­lið­inn. Mynd: AFP

U.S. Press Freedom Tracker er verk­efni á vegum tvennra sam­taka sem standa vörð um tján­ing­ar­frelsi vest­an­hafs: Freedom of the press foundation og Committee to protect journalists. Hlutverk þeirra er að skrá­setja og taka saman til­kynnt brot gegn fjöl­miðla­fólki, hvort sem um er að ræða árásir ein­stak­linga, hópa eða yfir­valda.

Frá því að mót­mælin vegna dauða George Floyd hófust á dög­unum er búið að skrá vel á fimmta hund­rað brota gegn blaða­mönnum og í lang­flestum til­vikum er það lög­reglan sem hefur ráð­ist gegn þeim. 

Þegar þetta er skrifað eru nýj­ustu stað­festu tölur frá 15. júní en þá var búið að skrá alls rúm­lega 430 til­vik sem flokk­ast svona: „59+“ hand­tökur, 92 lík­ams­árásir (þar af 57 af hendi lög­reglu), 54 til­vik þar sem táragasi var beitt gegn fjöl­miðlum, 32 til­vik þar sem piparúða var beitt, 90 urðu fyrir gúmmí­kúlum eða öðrum svip­uðum skotum, unnin voru 57 skemmd­ar­verk á tækni­bún­aði fjöl­miðla …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár