57. spurningaþraut: Skært lúðrar hljóma!

57. spurningaþraut: Skært lúðrar hljóma!

Fyrri auka­spurn­ing:

Á HM í fót­bolta 2010 voru lúðrar, eins og á mynd­inni hér að ofan, afar vin­sælir meðal sumra áhorf­enda sem blésu óspart í þá, en flestir fengu þó á end­anum nóg af hljóð­unum úr þeim. Hvað voru þessir lúðrar kall­aðir?

Hvað heitir konan á mynd­inni hér að neðan?

Og þá eru það aðal­spurn­ingar tíu:

1.   Upp úr 2010 kom fram á sjón­ar­sviðið í Ameríku söng­kona að nafni Elizabeth Woodridge Grant með seið­andi lögum sem vís­uðu aftur til kvik­mynda­tón­listar sjötta ára­tug­ar­ins. Yrk­is­efnin voru þó sum mjög nútíma­leg, eins og vídeó-leikir, og fjallað var á opin­skárri hátt um fyr­ir­bæri eins og dauð­ann en gert var í þá gömlu daga. Elizabeth Woodridge Grant sló í gegn með plöt­unni Born to Die, en not­aði þó ekki sitt upp­runa­lega nafn. Hvað kallar hún sig?

2.  Hver stofn­aði stjórn­mála­flokk­inn Þjóðvaka á síð­asta ára­tug 20. aldar?

3.   Í hvaða sæti lenti hljóm­sveitin Stjórnin í Eurovision 1990 með „Eitt lag enn“?

4.   Árið 2004 lauk Katrín Jak­obs­dóttir meist­ara­prófi við Háskóla Íslands. Í hvaða grein?

5.   Hvaða enski fót­bolta­þjálf­ari hefur náð bestum árangri með lið sitt í ensku úrvals­deild­inni á þeirri leik­tíð sem nú er að ljúka?

6.   Hversu gam­all er alheim­ur­inn? Hér eru gefin nokkuð voldug skekkju­mörk, sem koma í ljós þegar svarið er skoðað.

7.   Hvert er smæsta ríki Asíu að flat­ar­máli?

8.   En að íbúa­fjölda?

9.   Hver var val­inn „popp­stjarna Íslands“ þann 1. októ­ber 1969?

10.   Vera Ill­uga­dóttir hefur náð miklum vin­sældum með þætti sína „Í ljósi sög­unnar“ í Rík­is­út­varp­inu. Áður hafði hún (sum­part með öðrum) haldið úti vin­sælli blogg­síðu og annarri útvarps­þátta­röð, sem báðar voru kenndar við dýra­teg­undir. Hvaða dýr var hér um að ræða? Hér dugar að nefna annað kvik­indið.

Svörin:

1.   Lana del Rey.

2.   Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir.

3.   Fjórða sæti.

4.   Íslenskum bók­menntum. Svarið „reyfarar“ dugar ekki þar sem þeir eru ekki sér­stök grein innan háskóla­kennsl­unnar, heldur falla undir íslenskar bók­menntir.

5.   Frank Lampard, þjálf­ari Chelsea.

6.   13,8 millj­arða ára. Rétt telst hér vera allt frá 13 til 15.

7.   Maldíva-eyjar.

8.   Maldíva-eyjar.

9.   Björgvin Hall­dórs­son.

10.  Hér er átt við lemúra og leð­ur­blökur.

Svörin við auka­spurn­ingum:

Vúvúzela.

Vigdís Hauks­dóttir.

Hér eru spurn­ingar frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár