51. spurningaþraut: Hvaðan kemur Beta Israel? og sitthvað fleira

51. spurningaþraut: Hvaðan kemur Beta Israel? og sitthvað fleira

Auka­spurn­ingar: Partur af hvaða plötu­umslagi er það brot af mynd sem sést hér að ofan?

Og hver er ungi pilt­ur­inn hér að neðan?

En þær tíu:

1.   Í ríki einu tók að þró­ast sér­stakt sam­fé­lag Gyðinga fyrir rúmum 1.500 árum. Það hefur verið kallað Beta Ísrael og þró­að­ist í algjörri ein­angrun, án nokk­urra tengsla við önnur Gyð­inga­sam­fé­lög þangað til á 20. öld. Eftir að Ísra­els­ríki var stofnað voru mátt­ar­völd þar lengi efins um hvort telja ætti sam­fé­lag þetta „ekta Gyðinga“ en ákváðu að lokum að svo væri, og voru Gyð­ing­arnir í Beta Ísrael þá fluttir til Ísrael. Hvaða ríki er þetta?

2.   Og fyrst ég nefni sér­kenni­lega græðlinga á Gyð­inga­trú, þá hlýt ég að geta hér um að ein­hvern tíma kringum 800-900 eftir Krist tók býsna öflug þjóð, sem nefn­ist Khazarar, Gyð­inga­trú, löngu eftir að Gyðingum var sópað burt frá Palest­ínu. Hvar bjuggu Khazarar? (Landa­mæri nútíma­ríkja voru þá ekki til, en óhætt að Khazarar hafi fyrst og fremst búið í einu ríki sem vér þekkjum nú.)

3.   Hver er fremsti golfleik­ari í karla­flokki um þessar mundir, skv. opin­berum stiga­lista?

4.   Hver skrif­aði leik­ritið Kirsu­berja­garð­inn?

5.   Hver var leik­hús­stjóri Borg­ar­leik­húss­ins í Reykja­vík þangað til í febr­úar síð­ast­liðnum?

6.   Hver var fyrsti mað­ur­inn í íslenskri sögu sem vitað er til að hafi heitið Dufþakur?

7.   Hvað heitir Lína langsokkur réttu nafni? Athugið að hún heitir mörgum nöfnum en hið fyrsta dugir alveg.

8.   Hver er talin stærsta bjarn­ar­teg­und á jörð­inni - þótt reyndar muni litlu og þeirri næstu?

9.   Hversu oft eiga múslimar að biðj­ast fyrir á sól­ar­hring?

10.   Eitt af fræg­ustu - eða alt­ént virt­ustu - dag­blöðum heims er prentað á föl­bleikan pappír. Hvað heitir það?

   Svörin:

1.   Eþíópíu.

2.   Rúss­landi. Svæðið þar sem Khazarar bjuggu náði vissu­lega inn í Mið-Asíu og einnig inn í hina núver­andi Úkraínu, en langstærstur hluti af ríki þeirra var í Rúss­landi.

3.   Rory McIlroy.

4.   Anton Tjekhov.

5.   Kristín Eysteins­dóttir.

6.   Einn af þrælum Hjör­leifs land­náms­manns, skv. frá­sögn Landnámu, sem drápu „eig­anda“ sinn en voru síðan drepnir af Ingólfi Arn­ar­syni.

7.   Sig­ur­lína. Allt nafn hennar er reyndar Sig­ur­lína Rúllug­ard­ína Nýlend­ína Krúsi­munda Efraíms­dóttir langsokkur.

8.   Hvíta­björn.

9.   Fimm sinnum.

10.   Financial Times í London.

Plötu­umslagið á efri mynd­inni er Like a Virgin með Madonnu.

Þessi hér:

Pilt­ur­inn á neðri mynd­inni heitir Donald John Trump.

Hér eru spurn­ingar frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár