50. spurningaþraut: Tíu léttar spurningar um síðari heimsstyrjöld

50. spurningaþraut: Tíu léttar spurningar um síðari heimsstyrjöld

Hér koma 10 aðal­spurn­ingar og tvær auka­spurn­ingar allar um sama efnið af því þrautin endar á núlli, hún er sú fimm­tug­asta í röð­inni.

Auka­spurn­ing­arnar eru þessar:

Hvað er að ger­ast á efri mynd­inni, eða þó öllu heldur, hvar er hún tekin?

Og á neðri mynd­inni er flug­vél, banda­rísk sprengju­flug­vél af gerð­inni Boeing B-17, en hvað voru slíkar vélar kall­aðar?

Þá eru það hinar tíu:

1.   Á fyrstu klukku­tímum heims­styrj­ald­ar­innar gerði gam­alt þýskt orr­ustu­skip fall­byssu­árás á virki í borg­inni ... ja, hvaða borg?

2.   „Næt­ur­norn­irnar“ voru þær oft kall­aðar, kon­urnar sem flugu að næt­ur­þeli gömlum og úreltum sprengju­flug­vélum yfir lönd óvin­anna og létu sprengj­unum rigna af miklu hug­rekki. Flug­floti hvaða ríkis treysti konum svo glatt til átaka?

3.   Hvað var hún kölluð, sprengjan sem Banda­ríkja­menn not­uðu til ger­eyða Hirósjíma í lok styrj­ald­ar­innar?

4.   Fjöl­margar skipa­lestir sigldu frá Íslandi til Rúss­lands með vistir handa Stalín. Sumar urðu fyrir miklum árásum af hendi Þjóð­verja en aðrar sluppu betur. Hvað var hún nefnd, sú skipa­lest sem varð fyrir mestu tjóni?

5.   Hver var æðsti hers­höfð­ingi Banda­manna í Evrópu síð­ustu miss­eri stríðs­ins?

6.   Þjóð­verjar lögðu undir sig mörg lönd í síð­ari heims­styrj­öld. Hernám eins þeirra var sýnu auð­veld­ara en ann­arra, því það tók bara einn dag, þann 9. apríl 1940. Hvaða land var Þjóð­verjum svo auð­velt við­fangs?

7.   Ung Gyð­inga­stúlka, Anna Frank, er óneit­an­lega ein­hver eft­ir­minni­leg­asta mann­eskja stríðs­ins og skyggir á flestalla hers­höfð­ingja. Í hvaða landi fædd­ist hún?

8.   Í raun voru aðeins sex ríki í Evrópu hlut­laus í stríð­inu: Tyrkland, Svíþjóð, Sviss, Spánn, Portúgal og ... hvað var það sjötta?

9.   Hvar gerðu Japanir óvænta árás á banda­ríska flot­ann í byrjun des­em­ber 1941?

10.   Hvaða land­svæði var það síð­asta sem Þjóð­verjar lögðu undir sig í stríð­inu, og þá er átt við sem þeir höfðu aldrei haldið áður í stríð­inu?

Svörin:

1.   Danzig, sem nú heitir Gdansk.

2.   Sov­ét­ríkj­anna.

3.   Snáðinn, eða Little Boy.

4.   PQ-17.

5.   Dwight D. Eisenhower - eft­ir­nafnið er alveg nóg.

6.   Danmörk.

7.   Í Þýska­landi.

8.   Írland.

9.   Pearl Harbor á Hawaii-eyjum.

10.   Ródos og aðrar Tylft­ar­eyjar í Eyja­haf­inu, sem Þjóð­verjar tóku af Ítölum eftir að Ítalir sneru við blað­inu í styrj­öld­inni í byrjun hausts 1943.

Efri myndin er tekið við gryfj­una þar sem lík Hitlers og eig­in­konu hans voru brennd við neð­an­jarð­ar­byrgi Hitlers í stríðs­lok. Rússar eru að sýna her­mönnum ann­arra þjóða stað­inn.

Flug­vélin var kölluð fljúg­andi virki.

Hér er svo þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár