Spurningakeppni 2: Hvað veistu?

Tíu nýjar spurn­ingar um allt milli him­ins og jarðar

Spurningakeppni 2: Hvað veistu?

Hér eru tíu spurn­ingar um hvað­eina milli him­ins og jarðar. Svörin eru að finna fyrir neðan mynd­ina af kon­unni. Auka­spurn­ingin hljóðar raunar svo: Hver er hún?

1.  Hvanna­dals­hnjúkur í Öræfajökli er hæsti staður á Íslandi. En hvaða staður er hæstur utan Öræfa­jök­uls?

2.  Sú bíó­mynd, sem rakað hefur saman mestu fé, var frum­sýnd í fyrra. Henni leik­stýrðu tveir banda­rískir bræður. Hvað heitir þessi mynd?

3.  Hvað heitir höf­uð­borgin í Portúgal?

4.  Þegar fyrst var farið að rækta ban­ana voru þeir nokkuð ólíkir bön­unum nútím­ans, sem hafa verið mjög „kyn­bættir“. Þetta gerð­ist á einni af stærstu eyjum heims­ins, hún er nærri átta sinnum stærri en Ísland. Hvað heitir hún?

5.  Fyrir fáeinum komst í fréttir korn­ung stúlka frá Pakistan sem barð­ist fyrir rétt­indum stúlkna til mennt­unar og hafði orðið fyrir árás í heima­landi sínu vegna þess. Hún fékk frið­ar­verð­laun Nóbels fyrir bar­áttu sína. Hvað heitir hún? - for­nafnið dugar.

6. Hvað heitir eldri sonur Mar­grétar 2. Dana­drottn­ingar, krón­prins­inn í Danmörku?

7.  Ronja ræn­ingja­dóttir er ein vin­sælasta per­sóna Astrid Lindgren. Hvað heitir ræn­ing­inn faðir hennar?

8.  Hvað nefn­ist þjóð­ar­trú Japana?

9.  Hvaða emb­ætti á Íslandi á sér lengsta órofna sögu, eða síðan 1760?

10. George R. R. Martin er höf­undur bókanna sem sjón­varps­þætt­irnir Krúnu­leik­arnir (Game of Thrones) voru gerðir eftir. Hvað þýða R-in tvö í nafni hans?

Svörin eru:

1. Bárð­ar­bunga

2. Avengers: Endgame

3. Lissabon

4. Nýja Gínea

5.  Malala (og Yousafzai að eft­ir­nafni)

6.  Friðrik

7.  Matthías

8.  Sjintó

9.  Embætti land­læknis

10.  Raymond Richard

Og svarið við auka­spurn­ing­unni: Hver er á mynd­inni? er Billie Eilish söng­kona

Spurn­inga­keppni frá því í gær er svo hérna.

Sú næsta er hins vegar hvorki meira né minna en hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár