Fing­ur­koss Björk Elí­as­dóttir gefur pabba sínum, Elíasi Gunn­laugs­syni, fing­ur­koss gegnum glugg­ann. Hann er fyrr­ver­andi sjó­maður og elsti íbúi dvalar- og hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins Hraun­búða. Björk lítur dag­lega til pabba síns en þarf að láta duga að veifa og senda honum fing­ur­kossa, þar sem hann heyrir orðið lítið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Samheldni og náungakærleikur áberandi í Eyjum

Íbúar í Vest­manna­eyjum virð­ast bregð­ast við ástand­inu sem þar hefur skap­ast vegna COVID-19 með æðru­leysi og von um að allt fari á besta veg. Þar hafa meira en hund­rað íbúa greinst með kór­óna­veiruna og á þriðja hund­rað er í sótt­kví. Dagsferð Heiðu Helga­dóttur ljós­mynd­ara til Eyja breytt­ist í langa helg­ar­ferð þar sem hún varð veð­ur­teppt í Eyjum. Það kom ekki að sök, því Eyjamenn tóku henni opnum örmum og leyfðu henni að fylgj­ast með óvenju rólegu mann­líf­inu þar þessa dag­ana. Hún segir sam­heldni þeirra og sam­kennd áber­andi, eins og Hlynur lög­reglu­maður, sem fór með henni víða um Eyjarnar, sagði: „Þetta er afskap­lega létt og gott sam­fé­lag, allir eru mjög sam­huga. Við ætlum bara að klára þetta saman.“

Skimað fyrir COVIDHjörtur Krist­jáns­son, sótt­varna­læknir í Suð­ur­um­dæmi, hefur verið í Eyjum að skima fyrir veirunni.
Sjómaður í sótt­kvíHéðinn Karl Magn­ús­son var búinn að vera í sótt­kví í tólf daga þegar Heiða ljós­mynd­ari rakst á hann í sínum dag­lega bíltúr. Hann býr svo vel að eiga „man cave“ niðri á bryggju ásamt vinum sínum, þar sem hann hefur haldið til í sótt­kvínni. Hann hafði því dundað sér við að park­et­leggja og haft í nógu að snú­ast, en en var þó far­inn að hlakka veru­lega til að losna úr sótt­kvínni.
Beðið eftir lækn­inumErlendur Gunn­ars­son – Elli Gunna – bíður eftir tíma hjá lækni á heilsu­gæsl­unni.
HeimakærDaníel Edward og Jóhanna Björg með dóttur sína Kristínu Rós. Daníel hefur enga vinnu þessa dag­ana, þar sem hann vinnur á bar sem búið er að loka eins og öðru. Þau segj­ast engar áhyggjur …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár