Níu mál í formlegt ferli á Landspítalanum á síðustu fjórum árum

Átta málum sem varða kyn­ferð­is­lega áreitni eða áreiti hefur verið lokið á Land­spít­al­anum á und­an­förnum fjórum árum en einu er ólokið.

Níu mál sem skil­greina má sem kyn­ferð­is­lega áreitni eða áreiti hafa farið í form­legt ferli á Land­spít­ala á und­an­förnum fjórum árum. Þeim úrræðum sem almennt er hægt að beita á spít­al­anum í svona málum eru til dæmis form­leg við­vörun, til­flutn­ingur/breyt­ing á starfi, áminn­ing eða upp­sögn.

Þetta kemur fram í svari spít­al­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Átta málum hefur verið lokið og er eitt mál enn í form­legu ferli og ólokið. „Við höfum ekki leyfi til að tala um hvernig ein­stökum málum er lokað eftir því sem ég best veit. Þetta eru 8 mál – fólk innan spít­al­ans veit af þeim, og þau eru það fá að þau gætu verið per­sónu­grein­an­leg,“ segir í svari upp­lýs­inga­full­trúa spít­al­ans.

„Ferlið sem heldur utan um slík til­vik er skil­greint sem verk­lags­regla í gæða­hand­bók spít­al­ans, fjallað er um það á innri vef spít­al­ans og það kynnt fyrir starfs­mönnum í tengslum við sam­skipta­sátt­mála,“ segir jafn­framt í svar­inu.

[links]Samkvæmt skil­greindum verk­ferlum fyrir mál af þessu tagi er starfs­maður sem upp­lifir áreitni hvattur til að til­kynna það til næsta stjórn­anda og/eða mannauðs­stjóra, að því er fram kemur hjá spít­al­anum.

„Í ákveðnum til­fellum tekur stuðn­ings- og ráð­gjafateymi á skrif­stofu mannauðs­mála erindið til skoð­unar. Til­gangur þeirrar skoð­unar er að leggja sam­eig­in­lega mat á það hvort umkvörtun falli undir skil­grein­ingu á ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni eða ofbeldi. Til­gang­ur­inn er einnig að kanna hvaða lausnir séu mögu­legar og styðja þol­anda vilji hann leggja fram form­lega kvörtun. Í öllum til­vikum er lögð áhersla á að trúnað og virð­ingu gagn­vart öllum hlut­að­eig­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár