Fjórar tilkynningar um kynferðislega áreitni borist til RÚV

Brugðist hefur verið við fjórum til­kynn­ingum um kyn­ferð­is­lega áreitni í sam­ræmi við við­bragðs­á­ætlun RÚV á síð­ustu fjórum árum.

Samkvæmt skrán­ingum RÚV hafa fjórar til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­lega áreitni borist á síð­ast­liðnum fjórum árum. Þetta kemur fram í svari útvarps­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans.

„Brugðist hefur verið við þeim í sam­ræmi við við­bragðs­á­ætlun og leyst úr málum á grunni hennar. Við­bragðs­á­ætl­unin er end­ur­skoðuð reglu­lega, síð­ast í ágúst síð­ast­liðnum,“ segir í svar­inu. Kyn­ferð­is­leg áreitni er skil­greind í við­bragðs­á­ætl­un­inni sem hvers kyns hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann til­gang eða þau áhrif að mis­bjóða virð­ingu við­kom­andi einkum þegar hegð­unin leiðir til ógn­andi, fjand­sam­legra, nið­ur­lægj­andi, auð­mýkj­andi eða móðg­andi aðstæðna. Hegðunin getur verið orð­bundin, tákn­ræn og/eða lík­am­leg.

Fram kemur hjá RÚV að spurt sé um þessi mál í árlegri vinnu­staða­grein­ingu og fræðsla um þau, við­bragðs­á­ætlun og verk­ferla sé hluti af fræðslu til starfs­fólks RÚV. Við­bragðs­á­ætlun RÚV gegn ein­elti, ofbeldi, kyn­ferð­is­legri og kyn­bund­inni áreitni er aðgengi­leg á innri og ytri vef RÚV.

[links]Í við­bragðs­á­ætl­un­inni segir að hver sem telur sig hafa orðið fyrir ein­elti, ofbeldi, kyn­ferð­is­legri eða kyn­bund­inni áreitni á vinnu­stað, eða hafa rök­studdan grun eða vit­neskju um slíka hegðun, skuli upp­lýsa næsta yfir­mann, annan stjórn­anda, mannauðs­stjóra eða annan sem við­kom­andi treystir. Fyllsta trún­aðar skuli gætt við með­ferð slíkra mála og vinnsla þeirra vera í sam­ráði við þann sem til­kynnir. Gagnlegt sé að skrá þau atvik sem til­kynn­ingin bygg­ist á og einnig hverjir séu mögu­lega til vitnis. Ef við­kom­andi vill fá ráð­gjöf utan vinnu­stað­ar­ins sé hægt að leita beint til Áfalla- og sál­fræði­m­ið­stöðv­ar­innar (ÁSM) og fá tíma hjá sál­fræð­ingi.

Þegar til­kynnt er um ein­elti, ofbeldi, kyn­ferð­is­lega eða kyn­bundna áreitni eru tvær leiðir færar. Sá sem fer með úrlausn máls­ins ákveður við­brögðin í sam­ráði við þann er til­kynnir. Farvegur máls getur verið form­legur eða óform­legur og eru þessir kostir kynntir starfs­manni er til­kynnir.

Hægt er að lesa við­bragðs­á­ætl­un­ina hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár