Þolandi greindi frá 40 ára gömlu máli

Fyrir 10 árum var óskað eftir fundi með for­svars­fólki GSÍ vegna kyn­ferð­is­of­beldis en um var að ræða ein­stak­ling sem hafði verið mis­not­aður um 40 árum áður af manni sem starf­aði innan golf­hreyf­ing­ar­innar.

Þrjú mál er varða kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi hafa borist á borð stjórn­enda Golf­sam­bands Íslands (GSÍ) á síð­ustu tíu árum. Fyrsta málið varðar gam­alt brot en GSÍ hefur í tveimur málum hvatt aðila til þess að fara með sín mál til sér­staks sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­starfs sem tók til starfa árið 2020.

Þetta kemur fram í svari GSÍ við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Í svar­inu segir að fyrir 10 árum hafi verið óskað eftir fundi með for­svars­fólki GSÍ vegna kyn­ferð­is­of­beldis. „Um var að ræða ein­stak­ling sem hafði verið mis­not­aður um 40 árum áður af manni sem starf­aði innan golf­hreyf­ing­ar­innar. Með fund­inum vildi þol­and­inn upp­lýsa Golf­sam­bandið um brotið og þau áhrif sem atburð­ur­inn hafði haft á líf hans. Þol­and­inn hafði þá þegar leitað aðstoðar fag­að­ila.“

Fram kemur hjá GSÍ að á sama fundi hafi einnig verið upp­lýst um annað fórn­ar­lamb sama ger­anda. „Brota­mað­ur­inn hafði þá verið ákærður og hlaut síðar dóm fyrir kyn­ferð­is­brot gegn þriðja ein­stak­lingnum. Stjórn Golf­sam­bands­ins ákvað í fram­haldi af mál­inu að setja verk­lags­reglur um mál af þessum toga. Þar sagði meðal ann­ars að ef til­kynn­ingar eða erindi bær­ust á borð sam­bands­ins er vörð­uðu hverslags ofbeldi innan golf­hreyf­ing­ar­innar væri við­kom­andi þol­anda bent á að hafa sam­band við fag­að­ila og/eða lög­reglu.“

[adspot]

Úrbótavinna er hafin – GSÍ fordæmir allt ofbeldi og stendur með þolendum

Samkvæmt svari GSÍ tók sér­stakur sam­skipta­ráð­gjafi íþrótta- og æsku­lýðs­starfs til starfa árið 2020 og nú skal öllum málum sem ber­ast Golf­sam­band­inu vísað til hans.

[links]GSÍ hefur í tveimur málum hvatt aðila til þess að fara með sín mál til sam­skipta­ráð­gjafans, eins og áður segir, en þau snúa bæði að sam­skiptum ein­stak­linga við golf­klúbba. Einnig hefur Golf­sam­band Íslands not­ast við for­varn­ar­efni frá ÍSÍ, að því er fram kemur í svar­inu.

„Atburðir síð­ustu vikna hafa leitt það í ljós að bæta má enn frekar ferla, við­brögð og fræðslu innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar bæði hvað varðar for­varnir gegn ofbeldi sem og við­brögð við til­kynn­ingum um atvik og með­höndlun þeirra. Hafin er ýmis úrbóta­vinna til að tryggja að allir innan vébanda hreyf­ing­ar­innar hafi þau tól og tæki sem þarf til að bregð­ast rétt við atvikum er upp koma í starfi hreyf­ing­ar­innar og auka öryggi allra innan hennar,“ segir í svari GSÍ og vísar þarna í umfjöllun um ásak­anir um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi innan KSÍ.

Golf­sam­band Íslands seg­ist að end­ingu for­dæma allt ofbeldi og standa með þolendum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár