Tuttugu og fimm tilkynningar um kynferðislega áreitni eða ofbeldi innan HÍ

Á árunum 2017-2020 bár­ust fagráði Háskóla Íslands 25 til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi. Málin varða ýmist starfs­fólk, nem­endur eða sam­skipti milli starfs­fólks og nem­enda, en meiri­hluti þeirra hefur átt við um sam­skipti milli nem­enda.

Fagráði Háskóla Íslands (HÍ) bár­ust alls 25 til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi á árunum 2017 til 2020, að því er fram kemur í svari frá skól­anum við fyr­ir­spurn Kjarnans.

„Mál geta ýmist varðað starfs­fólk, nem­endur eða sam­skipti milli starfs­fólks og nem­enda, en meiri­hluti þess­ara mála hefur varðað sam­skipti milli nem­enda. Í sumum til­vikum lýkur máli með sátt milli aðila en sum mál hafa rektor eða eftir atvikum aðrir stjórn­endur tekið til með­ferðar í kjöl­far nið­ur­stöðu fagráðs­ins,“ segir í svar­inu.

Samkvæmt HÍ er skól­inn með skýra verk­ferla í málum er varða kyn­ferð­is­lega og kyn­bundna áreitni og ofbeldi.

[links]„Háskól­inn setti sér verk­lags­reglur um þennan mála­flokk árið 2014. Þær voru end­ur­skoð­aðar árið 2018, þar á meðal ákvæði um með­ferð kvart­ana. Árið 2014 var jafn­framt sett á fót fagráð Háskóla Íslands sem hefur það hlut­verk að fjalla um mál er varða brot starfs­fólks og nem­enda Háskóla Íslands. Fagráðið er skipað þremur aðilum og er í verk­lags­reglum kveðið skýrt á um að for­maður þess sé aðili með fag­þekk­ingu og reynslu af með­ferð mála af þessu tagi og sé ekki í föstu starfi við HÍ.“

Fram kemur í svar­inu að áhersla sé lögð á fræðslu til stjórn­enda, starfs­fólks og nem­enda við HÍ um kyn­ferð­is­lega og kyn­bundna áreitni og ofbeldi og ekki síst að kynna verk­lags­regl­urnar og fagráð HÍ svo fólk viti hvert það eigi að leita, komi slík mál upp. Enn fremur sé lögð áhersla á þennan mála­flokk í jafn­rétt­is­á­ætlun HÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár