Sex málum lauk með starfslokum geranda

Tilkynnt var um sjö til­felli um kyn­ferð­is­legrar áreitni eða ofbeldi innan Orku­veitu Reykja­víkur á árunum 2018 til 2021. Sex af þeim lauk með starfs­lokum ger­anda og einu með skrif­legri áminn­ingu.

Tilkynnt hefur verið um sjö til­vik kyn­ferð­is­legrar áreitni eða ofbeldis innan Orku­veitu Reykja­víkur (OR) síð­ustu fjögur ár. Í tveimur til­vikum var ger­and­inn starfs­maður verk­taka. Tilvikin eru á tíma­bil­inu apríl 2018 til apríl 2021 en síðan þá hefur ekk­ert atvik verið til­kynnt.

Þetta kemur fram í svari Orku­veitu Reykja­víkur við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Í einu til­viki lauk mál­inu með skrif­legri áminn­ingu og sátt þol­anda og ger­anda. Í hinum til­vik­unum öllum lauk mál­inu með starfs­lokum ger­anda, hvort sem um var að ræða verk­taka eða starfs­mann, að því er fram kemur í svar­inu.

Gera vinnustaðagreiningu árlega

[links]„Hjá OR sam­stæð­unni er í gildi við­bragðs­á­ætlun við ein­elti, ofbeldi, kyn­ferð­is­legri eða kyn­bund­inni áreitni. Hún fylgir hér með svar­inu. Við­bragðs­á­ætl­unin var unnin í sam­starfi við Líf og sál sál­fræði­þjón­ustu og í sam­ráði við Vinnu­eft­ir­lit rík­is­ins. Hún er end­ur­skoðuð reglu­lega, síð­ast á yfir­stand­andi ári,“ segir enn fremur í svar­inu.

Orku­veitan bendir á í svar­inu að fyr­ir­tækið geri ítar­lega vinnu­stað­ar­grein­ingu árlega meðal allra starfs­manna fyr­ir­tækj­anna í sam­stæð­unni. Þátttaka sé jafnan meiri en 95 pró­sent. Meðal ann­ars er spurt hvort starfs­maður hafi orðið fyrir ein­elti eða kyn­ferð­is­legri áreitni. Nið­ur­stöð­urnar eru birtar opin­ber­lega í ársskýrslu Orku­veitu Reykja­víkur. Fram kemur í nið­ur­stöð­unum að 1 pró­sent starfs­fólks sagð­ist hafa orðið fyrir ein­elti eða kyn­ferð­is­legri áreitni árið 2019 og 0,2 pró­sent í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár