Átta málum lauk með starfslokum geranda hjá Isavia

Alls komu ell­efu mál er varða kyn­ferð­is­legt áreiti eða kyn­bundið ofbeldi á borð stjórn­enda Isavia-sam­stæð­unnar á árunum 2017 til 2020.

Ellefu mál sem snúa að kyn­ferð­is­legu áreiti eða kyn­bundnu ofbeldi komu á borð stjórn­enda Isavia-sam­stæð­unnar á árunum 2017 til 2020. Þremur málum lauk með sátt og átta málum með starfs­lokum ger­anda.

Þetta kemur fram í svari Isavia við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Isavia ohf. ann­ast upp­bygg­ingu og rekstur Kefla­vík­ur­flug­vallar. Dótt­ur­fé­lög þess Isavia ANS og Isavia Inn­a­lands reka ann­ars vegar flug­leið­sögu­þjón­ustu á einu stærsta flug­stjórn­ar­svæði heims og hins vegar net inn­an­lands­flug­valla á Íslandi. Þessu til við­bótar rekur dótt­ur­fé­lagið Frí­höfnin ehf. fimm versl­anir í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar á Kefla­vík­ur­flug­velli. Hjá Isavia og dótt­ur­fé­lögum vinnur hópur sem telur um 1.000 manns.

„Ofbeldi, ein­elti eða önnur sál­fé­lags­leg áreitni, þar með talið kyn­bundin og kyn­ferð­is­leg áreitni, er ekki undir neinum kring­um­stæðum umborin hjá Isavia,“ segir í svar­inu.

Þegar upp koma mál af þessu tagi er við­bragðs­á­ætlun Isavia virkjuð. Samkvæmt fyr­ir­tæk­inu er við­bragðs­á­ætlun sem þessi tekin reglu­bundið til end­ur­skoð­unar eins og allar áætl­anir hjá Isavia. „Ein slík end­ur­skoðun er í gangi þessar vik­urnar og er ekki lokið,“ segir í svari Isavia.

Meðvirkni starfsmanna fordæmd

Fram kemur í við­bragðs­á­ætl­un­inni að í starfs­manna­stefnu Isavia sé lögð rík áhersla á að bæði lík­am­legt og and­legt heilsu­far starfs­manna, gagn­kvæma virð­ingu, umburð­ar­lyndi og stuðn­ing þeirra á meðal. Við­bragðs­á­ætlun við ein­elti og annarri sál­fé­lags­legri áreitni sé frek­ari útfærsla á því mark­miði og gildir fyrir allar starfs­stöðvar Isavia. Það sé stefna Isavia að starfs­menn vinni í anda sam­starfs og sýni þannig sam­starfs­fólki sínu alltaf kurt­eisi og virð­ingu í sam­skiptum. Einelti og önnur sál­fé­lags­leg áreitni, svo sem kyn­bundin og kyn­ferð­is­leg áreitni, verður undir engum kring­um­stæðum umborin. Með­virkni starfs­manna í slíkum til­vikum sé jafn­framt for­dæmd.

[links]„Við­bragðs­á­ætlun þessi á við um allar starfs­stöðvar Isavia og jafnt um starfs­menn, stjórn­endur og verk­taka sem starfa á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. Mun Isavia bregð­ast við ábend­ingum um ein­elti, áreitni eða ótil­hlýði­lega hátt­semi í sam­ræmi við við­bragðs­á­ætlun þessa og í sam­starfi við atvinnu­rek­anda utan­að­kom­andi ein­stak­lings sem á í sam­skiptum við starfs­menn Isavia. Við mat á því hvort við­bragðs­á­ætlun sé virkjuð skiptir ekki máli hvort ger­andi sé starfs­maður eða til dæmis við­skipta­vinur,“ segir meðal ann­ars í áætl­un­inni.

Þegar mál telst nægj­an­lega upp­lýst skuli mannauðs­stjóri taka ákvörðun, í sam­ráði við aðra stjórn­endur eða vinnu­vernd­ar­full­trúa vinnu­stað­ar­ins, til hvaða aðgerða verði gripið í sam­ræmi við alvar­leika máls hverju sinni.

„Þegar atvik eða hegðun telst vera ein­elti, kyn­ferð­is­leg áreitni, kyn­bundin áreitni, ofbeldi eða önnur ótil­hlýði­lega hegðun verður brugð­ist við eftir eðli máls með því að veita ger­anda til­tal, áminn­ingu, til­færslu í starfi eða honum sagt upp störfum. Þolanda og ger­anda verður veitt við­hlít­andi aðstoð. Haldi þol­andi og ger­andi áfram störfum er lögð áhersla á að breyt­ingar verði gerðar á vinnu­staðnum eins og kostur er, svo sem breyt­ingar á vinnu­skipu­lagi, verk­ferlum, stað­setn­ingu innan starfs­stöðva og svo fram­vegis,“ segir enn fremur í við­bragðs­á­ætl­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár