Konur sögðu frá þjálfara sem áreitti þær um árabil

Fim­leika­sam­band Íslands hefur ráð­ist í mikla vinnu til að bregð­ast við málum er varða kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi á und­an­förnum árum. Fimm til­felli hafa verið til­kynnt til sam­bands­ins síðan árið 2016 og eru þau rakin hér.

Fim­leika­sam­band Íslands (FSÍ) hefur fengið til­kynn­ingar um fimm til­felli er varða kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi inn á borð til sín á síð­ustu fjórum til fimm árum. Á vef sam­bands­ins er sér­stakur til­kynn­ing­ar­hnappur þar sem hægt er að til­kynna mál til sér­staks fagráðs.

Þetta kemur fram í svari FSÍ við fyr­ir­spurn Kjarnans.

„Stjórn FSÍ hefur á síð­ustu miss­erum lagt mikla áherslu að búa til þannig umhverfi að ef iðk­endur hafa upp­lifað erf­iða lífs­reynslu geti þeir leitað til sam­bands­ins og við stutt þá og brugð­ist við,“ segir í svar­inu.

[adspot]

Þjálfara sagt upp störfum eftir tilkynningar

Fram kemur hjá FSÍ að í lok árs 2016 hafi sam­bandið fengið ábend­ingu frá fagteymi þeirra um ósæmi­lega hegðun þjálf­ara í lands­liðs­verk­efni á vegum sam­bands­ins. Í kjöl­farið hafi málið verið til­kynnt til Íþrótta-og Ólymp­íu­sam­bands Íslands (ÍSÍ) en þjálf­ar­inn var þá að störfum við þjálfun í félagi innan þeirra raða.

Samkvæmt FSÍ var stjórn við­kom­andi félags upp­lýst um málið og þjálf­ar­inn boð­aður á fund hjá FSÍ þar sem honum hafi verið til­kynnt að málið hefði borist á borð stjórnar og að hann kæmi ekki til greina sem þjálf­ari í verk­efnum á vegum sam­bands­ins aftur. Málið hafi sömu­leiðis verið til­kynnt til barna­verndar.

Í lok árs 2017 hafði félagið sjálft fengið fleiri til­kynn­ingar um þjálf­ar­ann og var honum í fram­hald­inu sagt upp störfum, að því er fram kemur í svar­inu. FSÍ hafi þá aftur komið inn í málið til að styðja við félagið, safnað upp­lýs­ingum og til­kynnt hann aftur til barna­verndar, sem hafi leitt til rann­sóknar hjá lög­reglu. Þjálf­ar­inn sem um ræðir er af erlendu bergi brot­inn og flutt­ist af landi brott í fram­hald­inu, að því er fram kemur hjá FSÍ.

Endurskoðuðu siðareglur sambandsins í kjölfarið

Eftir reynslu sam­bands­ins af þessu máli ákvað stjórn FSÍ að stofna óháða aga- og siða­nefnd sem starfar sem leið­bein­andi nefnd fyrir iðk­endur og félögin. Í henni sitja lög­maður, læknir og sál­fræð­ingur. Hægt er að til­kynna mál til nefnd­ar­innar og fá ráð nafn­laust, kjósi við­kom­andi það.

Samhliða stofnun aga- og siða­nefndar FSÍ, voru siða­reglur sam­bands­ins end­ur­skoð­aðar og í kjöl­farið sendar til félag­anna, þeim til leið­sagnar.

Fleiri mál áttu eftir að koma inn á borð sam­bands­ins. Fram kemur hjá FSÍ að í byrjun árs 2018 hafi lands­liðs­kona leitað til þeirra með mjög erf­iða lífs­reynslu í keppn­is­ferð á vegum FSÍ, þar sem henni hafi verið nauðgað af kepp­anda frá öðru landi.

Samkvæmt FSÍ voru við­brögð stjórnar við þeim fréttum þau „að allt kapp var lagt á að standa við bakið á kon­unni, henni veittur sá stuðn­ingur sem hana vant­aði og við hvöttum hana ein­dregið til að segja sína sögu og vorum til staðar fyrir hana og hjálp­uðum henni við und­ir­bún­ing og fram­setn­ingu“.

Eitt mál nú til meðferðar hja aga- og siðanefnd FSÍ

Í fyrra leit­uðu síðan konur til FSÍ vegna erf­iðrar reynslu á árunum 2008 til 2013 þar sem félags­þjálf­ari þeirra áreitti þær kyn­ferð­is­lega um ára­bil. „Þegar að svo langt var liðið frá þessum erf­iðu atburðum var þjálf­ar­inn, sem var af erlendu bergi brot­inn, fluttur af landi brott og var því ákveðið, í sam­ráði og sam­vinnu við félagið, að til­kynna málið til sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta­hreyf­ing­ar­innar, sem hafði nýlega hafið störf. Þar fengu kon­urnar ráð­gjöf og sál­fræði­þjón­ustu. Félagið sem um ræðir hafði á sínum tíma brugð­ist við til­kynn­ingu þeirra með því að segja þjálf­ar­anum upp störfum,“ segir í svari FSÍ.

Nýjasta til­kynn­ingin barst á borð stjórnar fyrir stuttu. Samkvæmt FSÍ á félags­þjálf­ari að hafa nýtt sér yfir­burða­stöðu sína gagn­vart iðkanda. Málið hafi verið til­kynnt til aga- og siða­nefndar sam­bands­ins og sé þar til með­ferðar.

Krefjast nú sérstakt þjálfaraleyfis

[links]FSÍ seg­ist hafa farið í mikla vinnu til að bregð­ast við málum sem þessum – bæði sem komið hafi upp hér á landi sem og í fim­leika­hreyf­ing­unni erlendis.

„Tekið var inn í samn­inga við lands­liðs­þjálf­ara FSÍ að óskað er eftir leyfi til upp­flett­ingar í saka­skrá og slíkt er gert áður en samn­ingur er klár­aður.

Árið 2017 var tekin ákvörðun um að fræða þjálf­ara í fim­leikum enn frekar og ákveðið að setja upp kerfi þar sem kraf­ist er sér­staks þjálf­ara­leyfis til að þjálfa ólíka iðk­enda­hópa. Eitt af skil­yrð­unum til að fá þjálf­ara­leyfi er að þjálf­arar mæta á fræðslu­dag FSÍ sem hald­inn er á hverju hausti, þar sem tekin eru fyrir mál­efni líð­andi stundar í sam­fé­lag­inu hverju sinni,“ segir í svari FSÍ. Í fyrra, á fræðslu­degi árs­ins 2020, voru sam­skipti við iðk­endur, siða­reglur FSÍ og trans­börn í íþróttum í brennid­epli.

Vilja setja aukinn kraft í forvarnir og greiningu á stöðu mála

Þing Fim­leika­sam­bands Íslands árið 2020 fagn­aði því að opin umræða hefði átt sér stað um það ofbeldi sem hefur lið­ist í fim­leika­hreyf­ingum víðs vegar um heim­inn, því aðeins með hisp­urs­lausri umræðu væri hægt að sporna við því að slíkt ofbeldi lið­ist í fram­tíð­inni.

„Iðkendur eiga rétt á öruggu umhverfi án alls ofbeldis. Við ætlum öll að taka höndum saman um að ofbeldi í hvaða formi sem er innan fim­leika­hreyf­ing­ar­innar verði ekki liðið. Við erum öll sam­mála um að standa sam­eig­in­lega vörð um fag­lega með­höndlun á þeim málum sem upp kunna að koma og við hvetjum jafn­framt alla iðk­endur og aðra innan hreyf­ing­ar­innar til að til­kynna til aga­nefndar Fim­leika­sam­bands­ins ef þeir upp­lifa ofbeldi af ein­hverju tagi við fim­leika­iðkun. Til að fyr­ir­byggja að iðk­endur og aðrir innan hreyf­ing­ar­innar verði fyrir ofbeldi og áreitni ætlum við að stuðla að menn­ingu virð­ingar og jafn­ingja­sam­skipta og setja auk­inn kraft í for­varnir og grein­ingu á stöðu þess­ara mála hér á landi,“ segir í ályktun þings­ins síðan í fyrra.

Þá felur sam­þykkt aðgerð­ar­á­ætlun sam­bands­ins meðal ann­ars í sér að farið verði í rann­sókn á and­legri líðan iðk­enda innan sam­bands­ins til að hægt sé að meta næstu skref á þess­ari veg­ferð og standa við­ræður yfir við háskóla­sam­fé­lagið um sam­starf.

Á nýaf­stöðnu Fim­leika­þingi þann 4. sept­em­ber síð­ast­lið­inn fékk stjórn FSÍ sam­skipta­ráð­gjafa Íþrótta­hreyf­ing­ar­innar til að halda erindi með það að mark­miði að kynna vel fyrir félög­unum hvernig þjón­usta hennar virkar í þeim til­gangi að auð­velda félögum að til­kynna mál af þessu tagi til hennar núna og síðar meir, ef ein­hver væru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár