„Ég get ekki grátið fyrir innan afgreiðsluborðið“

„Ég upp­lifi þessar bætur sem áverka ofan á áfallið sem við, þau sem lifðum af, vorum þegar að ganga í gegnum,“ segir Vasile Tibor Andor sem lifði elds­voð­ann á Bræðra­borg­ar­stíg af. „Flest okkar misstu allt sem við eigum og heilsu okkar, von og fram­tíð.“

Tibor starfar á Kaffibrennslunni á Laugavegi í Reykjavík.
Tibor starfar á Kaffi­brennsl­unni á Lauga­vegi í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

„Á morgun kemur í ljós hvort að ég geti fagnað hverjum degi aftur,“ sagði Vasile Tibor Andor við blaða­mann Kjarnans dag­inn áður en dómur var kveð­inn upp í mann­dráps­mál­inu á Bræðra­borg­ar­stíg. Tibor hefur vart litið glaðan dag frá því 25. júní í fyrra, frá deg­inum sem kveikt var í heim­ili hans, hann varð inn­lyksa í eld­haf­inu í þrettán mín­útur og ótt­að­ist allan þann tíma um líf sitt. Hann horfði líka á nágranna­konu sína deyja í eld­inum. Og sá á eftir vini sínum stökkva út um glugg­ann til að bjarga lífi sínu. Sá slas­að­ist alvar­lega. Auk ungu kon­unnar sem Tibor sá falla örenda í gólfið á her­berg­is­gang­inum á ris­hæð­inni að Bræðra­borg­ar­stíg 1 lét­ust tveir.

[adspot]

Fjöl­skip­aður hér­aðs­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu að Marek Moszczynski, sem ákærður var fyrir að hafa kveikt í og valda dauða unga fólks­ins, hefði sann­ar­lega kveikt í en að hann hefði verið ósak­hæfur á verkn­að­ar­stundu. Hann mun því ekki fara í fang­elsi heldur sæta gæslu á við­eig­andi stofnun. Á þeirri dvöl eru engin tíma­mörk. Líkt og með aðra sjúk­dóma verður hann útskrif­aður þegar hann þykir hafa náð nægi­lega góðri heilsu.

Fjöl­skyldum fórn­ar­lambanna og íbúum húss­ins sem voru inn­an­dyra er eld­ur­inn kvikn­aði og lifðu af, voru dæmdar miska­bætur. Í til­felli Tibors var farið fram á 5 millj­ónir króna. Nið­ur­staða dóm­ar­anna er hins vegar sú að bætur til hans þyki „hæfi­lega ákveðnar“, eins og það er orðað, 500 þús­und krónur.

Tibor missti allt sitt í elds­voð­anum. Hann missti heim­ili sitt. Hann hlaut reyk­eitrun og bruna­sár. Það eru hins vegar afleið­ingar á hans and­legu líðan sem hann glímir enn við. Það er því ekki jafn mikil bjart­sýni og von í orðum hans nú og dag­inn fyrir dóms­upp­kvaðn­ing­una.

Það er ár liðið frá brun­anum. „Að lifa elds­voð­ann af hefur haft gríð­ar­leg áhrif á mitt líf,“ segir hann í yfir­lýs­ingu til rétt­ar­gæslu­manns síns sem hann hefur leyft Kjarn­anum að vitna til. Allt frá því elds­voð­inn mann­skæði varð hefur hann átt erfitt með að fóta sig frá degi til dags – að finna eitt­hvað jafn­vægi í líf­inu sem gæti talist „eðli­legt“.

En ég get samt ekki sofnað

Tibor sagði ítar­lega frá hinum örlaga­ríka degi, 25. júní 2020, í við­tali við Kjarnann í haust. Hann end­ur­tók svo reynslu sína sem vitni fyrir hér­aðs­dómi í vor. Þá, líkt og nú, sagð­ist hann eiga erfitt með svefn. „Ég fæ enn end­ur­teknar martraðir um að húsið standi í ljósum logum en að eng­inn sé vak­andi til að heyra í reyk­skynjar­anum,“ segir hann um líðan sína í dag. Þess vegna sefur hann ekki á nótt­unni. Hann leggur sig frekar í nokkra tíma yfir dag­inn og svo aftur á milli 3 og 5 á nótt­unni áður en hann fer í vinn­una á kaffi­hús­inu á Lauga­veg­inum þar sem hann hefur starfað í nokkur ár. Hann segir svefn­leysið taka mik­inn toll af lífs­gæðum hans. Læknir hafi ávísað honum svefn­lyfjum. „Skammt­ur­inn er ein tafla fyrir svefn,“ segir hann. „Ég tek tvær, þrjár, fjórar og jafn­vel fimm. En ég get samt ekki sofnað.“

Tibor var inni í her­bergi sínu á ris­hæð Bræðra­borg­ar­stígs 1 er hann heyrði öskur fram af gangi og fann skyndi­lega reykj­ar­lykt. Hann opn­aði hurð­ina og þá mætti honum þykkt, svart reyk­ský og eld­tungur við enda gangs­ins. Stiginn niður á næstu hæð, eina útgöngu­leiðin, var alelda. „Ég á mjög erfitt í hvert skipti sem ég opna hurð­ina úr her­bergi mínu fram á gang,“ segir hann um líðan sína í íbúð­inni sem hann leigir núna. Það sem hann sá einnig er hann opn­aði her­berg­is­hurð­ina á Bræðra­borg­ar­stíg var nágranna­kona hans. Eldurinn hafði læst sig í hana og hún hljóp eftir gang­inum þar til hún féll hreyf­ing­ar­laus á gólfið. „Þessi sjón hefur grafið um sig í huga mér og ég sé hana fyrir mér í hvert skipti sem ég opna hurð,“ segir Tibor. „Stundum sækir að mér sú til­finn­ing að það sé ein­hver í ljósum logum fyrir utan her­bergið mitt og ég verð að opna til að athuga hvort að það sé rétt.“

[links]

Tibor seg­ist stöðugt berj­ast við grát­inn. „Ég get ekki grátið fyrir innan afgreiðslu­borðið á kaffi­hús­inu þar sem ég vinn. Og ég get ekki grátið á almanna­færi. Svo að ég finn mér afsökun til að vera einn og hleypi sorg­inni og ótt­anum út eins lengi og ég get. Svo set ég upp grímuna og fer aftur að vinna.“

Tibor hefur leitað til sál­fræð­ings og fyrst í stað fannst honum það hjálpa. Í dag seg­ist hann ekki vera í slíkri með­ferð en gjarnan vilja hafa ein­hvern til að tala við þegar svart­nættið verður hvað mest.

„Ég finn fyrir reiði og von­leysi þegar ég hugsa um stöðu mína og hinna tutt­ugu „útlend­ing­ana“ sem lifðu elds­voð­ann af,“ skrifar Tibor í yfir­lýs­ingu sinni. Að Bræðra­borg­ar­stíg 1 bjuggu fyrst og fremst erlendir verka­menn sem höfðu þó margir hverjir, ef ekki flestir, búið og unnið á Íslandi árum saman. Ástæðan fyrir því að hann setur orðið „útlend­ingur“ innan gæsalappa er að hans sögn sú að eft­ir­lif­endum brun­ans hafi mætt annað við­horf þar sem þeir eigi ættir að rekja til ann­arra landa en Íslands. Við­brögðin við ofan­flóðum síð­asta vetrar hafi til dæmis að hans mati verið allt önnur. „Þar misstu sumir heim­ili sín og urðu fyrir gríð­ar­legu áfalli vegna nátt­úru­ham­far­anna og sam­fé­lagið tók þeim opnum örmum með fullt af kær­leik og skiln­ingi og bauð þeim aðstoð.“ Honum finnst sam­an­burð­ur­inn á við­brögð­unum við þessum tveimur harm­leikjum slá­andi. „Ég sé ekki lengur eðli­lega fram­tíð fyrir mig á Íslandi.“ Hann viti þó að skuggi áfalls­ins muni fylgja sér hvert sem hann fari.

Hver ber ábyrgð?

Þar sem Marek hafi verið dæmdur ósak­hæfur finnst Tibor eins og eng­inn eigi að bera ábyrgð. Hann hafi von­ast til að finna létti, geta skilið við hinar erf­iðu til­finn­ingar en nið­ur­staðan bjóði ekki upp á það. Hvers­dags­legar kveikjur, sem minna hann stöðugt á harm­leik­inn, sækja stöðugt að honum. „Í hvert skipti sem sím­inn hringir og ég stekk upp og held að þetta sé reyk­skynj­ari. Að finna stöðugt reykj­ar­lykt sem engin er. Að bregða við að heyra í slökkvi­liðs­bíl eða sjúkra­bíl í fjar­lægð. Áður en dóm­ur­inn var kveð­inn upp hafði ég sann­fært sjálfan mig um að dóm­ar­arnir myndu sak­fella brennu­varg­inn og að þar með myndi mál­inu ljúka. En nú sé ég ekki fyrir end­ann á neinu. Enginn ber ábyrgð, engar afleið­ingar fyrir brennu­varg­inn. Dóms­kerfið yppir bara öxlum og lífið á að halda áfram eins og ekk­ert hafi í skorist.“

Samhliða saka­mál­inu var farið fram á miska­bætur fyrir Tibor og hin fórn­ar­lömbin. Hann seg­ist hafa gert sér grein fyrir því að þær yrðu ekki háar. Líkt og framar greinir var farið fram á 5 millj­ónir króna fyrir hans hönd. 500 þús­und þykja hins vegar hæfi­legar bætur að mati dóm­ar­anna. „Þegar lög­fræði­kostn­aður og skattar – já þetta er ekki prent­villa – skattar – hafa verið dregnir frá munu bæt­urnar jafn­ast á við tveggja vikna laun,“ skrifar Tibor í yfir­lýs­ingu sinni. „Hið flókna kerfi að baki því að reikna út hvað er „rétt­látt“ er, að mínu mati, órétt­látt kerfi sem þjónar fyrst og fremst stjórn­völdum til að spara skatt­greið­endum pen­ing. Ég upp­lifi þessar bætur sem áverka ofan á áfallið sem við, þau sem lifðum af, vorum þegar að ganga í gegnum. Flest okkar misstu allt sem við eigum og heilsu okkar, von og fram­tíð að auki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár