Bæturnar aðeins „dropi í hafi“ miðað við tjónið

Rétt­ar­gæslu­maður þeirra sem lentu í brun­anum á Bræðra­borg­ar­stíg síð­asta sumar metur nú stöð­una með umbjóð­endum sínum en miska­bætur voru mun lægri í dómi hér­aðs­dóms en óskað var eftir.

Guð­brandur Jóhann­es­son, rétt­ar­gæslu­maður brota­þola í Bræðra­borg­ar­stígs­mál­inu, segir í sam­tali við Kjarnann að nið­ur­staða hér­aðs­dóms í máli ákæru­valds­ins á hendur Marek Moszczynki hafi ekki komið á óvart en hann var sýkn­aður af refsi­kröfu ákæru­valds­ins fyrir brennu, til­raun til mann­dráps og þrefalt mann­dráp þann 3. júní síð­ast­lið­inn. Hann var met­inn ósak­hæfur og gert að sæta vistun á við­eig­andi rétt­ar­gæslu­stofnun.

Var Marek gert að greiða fyrr­ver­andi íbúum á Bræðra­borg­ar­stíg skaða- og miska­bætur, sem nema allt frá 500 þús­und krónum upp í 11 millj­ónir.

„Fyrir suma umbjóð­endur mína eru þessar bætur aðeins dropi í hafi miðað við það tjón sem þeir hafa orðið fyrir,“ segir Guð­brandur en hann kynnti nið­ur­stöð­una fyrir umbjóð­endum sínum strax sama dag og dómur féll. Vegna þess hve margir þeir eru af mis­mun­andi þjóð­ernum þá tók nokkra daga að upp­lýsa þá um málið með hjálp túlka.

„Þeim fannst þetta svo sem við­búið ef vísað er til þess­ara mats­gerða sem lágu fyrir í mál­inu. Þannig að þetta kom ekki það mikið á óvart,“ segir hann og bætir því við að mats­menn hafi verið sam­mála um að þessi verkn­aður Mareks hafi ekki verið skipu­lagður fyr­ir­fram – heldur algjör­lega handa­hófs­kenndur – og því ekki ástæða til að efast um nið­ur­stöðu mats­ins.

Bætur lágar vegna dómvenju

Guð­brandur bendir á að fall­ist hafi verið á allar skaða­bóta­kröfur umbjóð­enda hans. Miska­kröfur hafi hins­vegar verið lækk­aðar í öllum til­fellum.

[links]Hann segir að sumir umbjóð­enda hans munu óska eftir end­ur­mati á miska­bótum ef mál­inu verður áfrýjað af hálfu verj­anda Mareks. Kjarninn greindi frá því í vik­unni að rík­is­sak­sókn­ari ætl­aði ekki að áfrýja dómnum.

„Það er ekki hægt að setja tölu á manns­líf, en að mínum dómi eru dæmdar miska­bætur fyrir fjöl­skyld­urnar í lægri kant­inum. Miska­bætur í öðrum sam­bæri­legum málum hafa verið á bil­inu 1 til 3 millj­ónir, þannig bæt­urnar voru við neðri mörk hvað það varðar. Þannig ef mál­inu verður áfrýjað, þá verður kraf­ist end­ur­mats á þeim bótum, auk hækk­unar á miska­bótum fyrir aðra umbjóð­endur sam­hliða.“

Varanlegt andlegt og líkamlegt tjón metið ári síðar

Bendir Guð­brandur á annan bótalið sem nefn­ist „var­an­legt and­legt og lík­am­legt tjón“ en slíkt tjón er metið einu ári eftir slys.

„Það er næsti fasi sem ég mun fara í. Þegar ár er liðið frá tjóns­at­burði er fyrst til­efni til að meta and­legt og lík­am­legt tjón þeirra umbjóð­enda sem eru að kljást við var­an­legar afleið­ingar. En margir af umbjóð­endum mínum eru enn að vakna upp á nótt­inni, eru með mik­inn kvíða, fá end­ur­lit af atburðum og eru með marg­vís­leg ein­kenni áfallastreiturösk­unar. Ef nið­ur­staða mats­gerðar er að umbjóð­endur mínir séu með var­an­legt tjón, þá er komið til­efni til að beina kröfum að Marek, bóta­sjóði – og jafn­vel hús­eig­and­anum.“ Til greina kemur, að sögn Guð­brands, að sækja bætur til HD verks, félags­ins sem átti Bræðra­borg­ar­stíg 1.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár