Mynd: Mannlíf/Hákon Davíð Björnsson

Mest lesna rannsóknarefni ársins: Samherji, misskipting og áreitni

Mest lesna rann­sókn­ar­efni árs­ins sýnir hvernig ungur maður gat farið inn í skóla með fræðslu gegn fíkni­efnum, eftir að hafa aðeins verið edrú í þrjá mán­uði. Sam­herj­a­mál og kyn­ferð­is­leg áreitni voru meðal mest lesnu rann­sókn­ar­efna árs­ins.

1. Stígur fram sem fyrirmynd en þolendur eru enn í sárum

Hlynur Kristinn Rún­ars­son, ungur maður sem dæmdur var fyrir fíkni­efna­smygl í Brasilíu árið 2016, stofn­aði góð­gerð­ar­sam­tök fjórum mán­uðum eftir að hafa hætt að neyta harðra fíkni­efna. Í krafti þeirra sam­taka hóf hann að fara í fram­halds­skóla og fræða ungt fólk um skað­semi fíkni­efna, aðeins þremur mán­uðum eftir að hann sjálfur hætti í neyslu. Engar reglur eru til um það hver fær að fara inn í grunn- og fram­halds­skóla með fræðslu fyrir ungt fólk

Úttekt eftir Ingi­björgu Dögg Kjart­ans­dóttur.

Birtist 4. októ­ber.

2.400 lík­aði við. 

2. Börnin segja frá séra Gunnari

Sex konur sem Stundin ræddi við lýstu því að séra Gunnar Björns­son hefði áreitt sig kyn­ferð­is­lega þegar þær voru á barns- og ung­lings­aldri. Atvikin áttu sér stað yfir meira en þriggja ára­tuga skeið á Ísafirði, Flateyri og Selfossi þegar Gunnar var …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár