Ísfélagið segir gagnrýni ráðamanna á útgerðirnar ekki hafa haft „nein áhrif“

Stjórn­ar­for­maður Ísfélags Vest­manna­eyja segir að aðal­eig­andi félags­ins hafi verið búin að óska eftir því að hætt yrði við millj­arða króna máls­höfðun gegn íslenska rík­inu áður en að leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar gagn­rýndu þær útgerðir sem stóðu að mál­inu.

Guðbjörg Matthíasdóttir er aðaleigandi Ísfélags Vestmannaeyja.
Guðbjörg Matth­í­as­dóttir er aðal­eig­andi Ísfélags Vest­manna­eyja. Mynd: Bára Huld Beck

Gunn­laugur Sævar Gunn­laugs­son, stjórn­ar­for­maður Ísfélags Vest­manna­eyja, segir að hvöss gagn­rýni á Alþingi gagn­vart þeim útgerðum sem stefndu íslenska rík­inu og kröfð­ust 10,2 millj­arða króna vegna úthlut­unar á mak­ríl­kvóta hafi ekki haft nein áhrif á ákvörðun Ísfé­lags­ins að hætta við stefnu sína. Hann segir að Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, aðal­eig­andi Ísfé­lags­ins, hafi þegar verið búin að beina þeirri ósk til stjórnar félags­ins að hætta við máls­höfð­un­ina og að stjórnin hafi sam­þykkt það á þriðju­dag. Sama dag hafi hann greint einum ráð­herra í rík­is­stjórn­inni frá þeirri ákvörðun.

Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Fimm þeirra sjö útgerða sem stefnt höfðu íslenska rík­inu í mál­inu til­kynntu síð­degis í gær að þær hefði fallið frá mál­sókn­inni.

Fyr­ir­tækin sem um ræðir eru Eskja, Gjög­ur, Ísfé­lag Vest­manna­eyja, Loðnu­vinnslan og Skinn­ey-­Þinga­nes. Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­in Hug­inn og Vinnslu­­­stöðin skrif­uðu ekki undir til­kynn­ing­una.

[adspot]Í Morg­un­blað­inu er einnig rætt við Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar, sem segir að til standi að halda stjórn­ar­fund í dag og fara yfir málið. Degi áður hafði hann sagt við sama blað að útgerð­irnar sem um ræðir hefðu verið beittar rang­indum og að þær, sem væru frum­kvöðlar í mak­ríl­veið­um, gætu ekki verið söku­dólgar í mál­inu. Þær hafi átt „lög­boð­inn rétt“ til þess kvóta sem þær fengu ekki.

Hörð gagnrýni á Alþingi

Kjarn­inn greindi frá því um helg­ina að útgerð­irnar sjö væru að krefj­ast 10,2 millj­arða króna úr rík­is­sjóði í mál­inu auk hæstu mögu­legu vaxta. Lang­hæsta krafan var frá Ísfé­lagi Vest­­manna­eyja, sem krafð­ist tæp­­lega 3,9 millj­­arða króna auk vaxta úr rík­­is­­sjóði.

Eskja krafð­ist þess að fá rúm­­lega tvo millj­­arða króna í bæt­­ur, Loðn­u­vinnslan og Skinn­ey-­­Þinga­­nes vildu rúman millj­­arð króna og Vinnslu­­stöðin í Vest­­manna­eyjum krefst þess að fá tæpan millj­­arð króna auk vaxta. Hug­inn vill fá 839 millj­­ónir króna og Gjög­­ur, sem er næst stærsti eig­andi Síld­­ar­vinnsl­unnar (Sam­herji er stærsti eig­and­inn) krafð­ist 364 millj­­óna króna. Í stefnu Gjög­­urs var einnig kraf­ist bóta vegna kostn­aðar við að leigja afla­heim­ild­ir á ár­un­um 2015 til 2018.

[links]Katrín Jak­obs­dóttir for­­­sæt­is­ráð­herra flutti munn­­­lega skýrslu um áhrif COVID-19 far­ald­­­ur­s­ins og um við­brögð stjórn­­­­­valda við þeim áhrifum á Alþingi á þriðju­dag. Þar gerði hún kröfu útgerð­anna að umtals­efni. „Ég vil segja það að hér að ég hef verið gríð­­­ar­­­lega ánægð með þá sam­­­stöðu sem maður hefur skynjað í sam­­­fé­lag­inu í því að takast á við veiruna. Bæði fyr­ir­tæki og fólk hafa þar sýnt mikla ábyrgð. Flokkar á Alþingi hafa sýnt mikla ábyrgð. Þetta er dýr­­­mætt. En þá verður maður líka reiður þegar fyr­ir­tæki í sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegi gera kröfu á ríkið upp á ríf­­­lega tíu millj­­­arða vegna mak­rílút­­­hlut­un­­­ar.“

Katrín sagði þetta ekki góða leið til að efla sam­­­stöðu í sam­­­fé­lag­inu. „Það er ekki góð leið til að vera á sama báti í gegnum þetta ferða­lag sem við erum stödd í. Þó ég telji að ríkið hafi góðan mál­­­stað í þessu máli þá finnst mér eðli­­­legt að þessi fyr­ir­tæki íhugi það að draga þessar kröfur á til baka. Nú reynir nefn­i­­­lega á ábyrgð okkar allra.“

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra bætti við á sama vett­vangi að ef svo ólík­­­lega færi að ríkið myndi tapa mál­inu þá væri það ein­falt mál í hans huga að reikn­ing­­­ur­inn vegna þess yrði ekki sendur á skatt­greið­end­­­ur. „Reikn­ing­­­ur­inn vegna þess verður þá að koma frá grein­inni. Það er bara svo ein­falt,“ sagði hann. 

„Nú verða allir að leggja lóð á vogaskálarnar“

Í til­kynn­ingu útgerð­anna fimm sem hættu við mál­sókn í gær sagði að áhrif heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar muni hafa víð­tæk áhrif á rík­is­sjóð og allt íslenskt sam­fé­lag. „Fyrir end­ann á því verður ekki enn séð, því mið­ur. Það er hins vegar á svona stundum sem styrk­leikar íslensks sam­fé­lags koma vel í ljós. Víð­tæk sam­staða og bar­áttu­hugur hafa ein­kennt sam­fé­lagið síð­ustu vikur og mán­uði. Nú verða allir að leggja lóð á vog­ar­skál­ar. Af þessum sökum hafa und­ir­rituð fimm sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki tekið þá ákvörðun að falla frá kröfum á hendur íslenska rík­inu vegna ágrein­ings um úthlutun afla­heim­ilda í mak­ríl.“

Til­kynn­ingin var send út af Sig­ur­birni Magn­ús­syni lög­manni, sem er einnig stjórn­ar­for­maður Árvakurs og faðir Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra. Ísfé­lagið og tengd félög eru stærstu ein­stöku eig­endur Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár