Heinaste kyrrsett á grundvelli laga um skipulagða glæpastarfsemi

Kyrr­setn­ingu tog­ar­ans Heinaste, sem er í eigu Samherja, var aflétt í fyrra­dag. Í morgun var hann hins vegar kyrr­settur á ný. Sekt sem Samherji greiddi vegna brota skip­stjóra Heinaste var greidd í reiðufé.

Yfirvöld í Namibíu hafa kyrr­sett skipið Heinaste á nýjan leik. Skipið, sem er í eigu Esju Holding, félags sem Samherji á meiri­hluta í, var fyrst kyrr­sett í nóv­em­ber á sama tíma og íslenskur skip­stjóri þess var hand­tek­inn vegna meintra ólög­legra veiða á hrygn­ing­ar­svæði undan ströndum Namibíu.

Skip­stjór­inn, Arn­grímur Brynj­ólfs­son, var í far­banni allt þar til á mið­viku­dag er hann, eftir að hafa játað brot sitt nokkrum dögum fyrr, var dæmdur til sekt­ar­greiðslu. Sektin hljóð­aði upp á 950 þús­und namibískra doll­ara eða um átta millj­ónir íslenskra króna.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans fór dóm­stól­inn fram á að sekt­ar­upp­hæðin væri greidd í reiðufé. Á meðan seðl­arnir voru sóttir í banka mátti Arn­grímur ekki yfir­gefa rétt­ar­sal­inn. Er sektin var svo greidd fékk Arn­grímur vega­bréf sitt að nýju, var laus úr far­banni og kyrr­setn­ingu Heinaste sömu­leiðis aflétt.

Arn­grímur er nú kom­inn heim til Íslands.

Á grundvelli laga um skipulagða glæpastarfsemi

Í morgun, tveimur sól­ar­hringum síðar, herma heim­ildir Kjarnans að lög­reglu­yf­ir­völd í Namibíu hafi kyrr­sett skipið á ný og nú á grund­velli laga um skipu­lagða glæp­a­starf­semi, ekki brota á fisk­veiði­lög­gjöf­inni eins og í fyrra skiptið.

Yfirvöld í Namibíu fóru í byrjun árs fram á að tog­ar­inn yrði gerður upp­tækur. Kröfum þess efnis var hins vegar vísað frá dómi á mið­viku­dag að því er fram kom í namibískum fjöl­miðlum. Kyrr­setn­ingin nú er til bráða­birgða á meðan yfir­völd vinna að form­legri kröfu­gerð sinni.

[adspot]Samherji sendi frá sér til­kynn­ingu í gær þar sem fram kom að unnið væri að því að gera Heinaste út í Namibíu og að tíma­bundið yrði það fólgið í því að leigja skipið namibískum aðilum og tryggja sem flestum úr áhöfn skips­ins áfram­hald­andi vinnu. Þau áform eru nú í upp­námi.

Ráðlagt að leyfa skipunum ekki að fara

Namibískir fjöl­miðlar hafa greint frá því und­an­farna daga að spill­ing­ar­lög­reglan í Namibíu hafi ráð­lagt þar­lendum stjórn­völdum að leyfa skipum Sam­herja ekki að fara frá land­inu nema að hún verði látin vita. Þrátt fyrir það hafa tvö af þremur skipum Sam­herja í land­inu, Geysir og Saga, farið þaðan á und­an­förnum dög­um.

Á mánu­dag var greint frá því að Geys­i hefði verið siglt frá Namib­­íu. Skipið yfir­gaf landið á sunnu­dags­kvöld og skildi yfir 100 sjó­­menn eftir í óvissu. Namibian Sun sagði á mánu­dag að sjó­­menn­irnir hefðu ekki fengið að vita neitt í aðdrag­anda þess að skipið sigldi á brott utan þess að þær upp­­lýs­ingar feng­ust að það myndi snúa til baka þegar það fengi úthlutað nýjum fisk­veið­i­­kvóta.

Þetta var í annað sinn á örfáum dögum sem fregnir bár­ust frá Namibíu þess efnis að skip í eigu Sam­herja væru að hverfa frá land­inu. Á föstu­dag var greint frá því í miðl­inum New Era að skipið Saga, sem siglir undir merkjum dótt­ur­fé­lags Sam­herja á Kýpur og hefur um ára­bil veitt hrossa­mak­ríl í lög­sögu Namib­íu, hefði fyr­ir­vara­laust siglt frá land­inu. Þá fengu sjó­menn­irnir á Sögu, sem eru um 120 tals­ins, sms-skila­boð um að þeir þyrfti að sækja eigur sínar um borð án tafar vegna þess að skipið væri á leið til Kanarí­eyja í við­gerð. Einn sjó­mann­anna sagði við New Era að van­inn væri sá að um 15 skip­verjar færu alltaf með Sögu þegar það færi í við­gerð. Annar sagð­ist hafa fengið þau svör hjá útgerð­inni að skipið myndi ekki snúa aftur næstu sex mán­uð­i.

Ásak­anir um sölu Heinaste á hrakvirði

Þriðja skip Sam­herja í Namibíu er svo Heinaste, sem verið hefur kyrr­sett í land­inu. Það er í eigu namibísks félags sem íslenska sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegs­­­­fyr­ir­tækið Sam­herji á stóran hlut í í gegnum dótt­­­ur­­­fé­lag sitt Esju Holding. Aðrir eig­endur eign­­­ar­halds­­­­­fé­lags Heinaste eru namibísk félög, meðal ann­­­ars Arctic Nam Invest­ments. Saman eiga namibísku félögin 42 pró­­­sent í félag­inu en eina eign þess er áður­­­­­nefndur tog­­­ari, Heinaste.

[adspot]New Era greindi frá 20. jan­úar að minn­i­hluta­eig­endur í Esju Holding hefðu ásakað Sam­herja um sið­­­lausa hegðun með því að reyna að selja Heinaste á hrakvirði til ann­­­ars félags. Í mið­l­inum er haft eftir Vigrilio De Sousa, stjórn­­­­­ar­­­for­­­manni Arctic Nam Invest­ments, að Sam­herji sé að reyna að selja sjálfum sér Heinaste á 19 millj­­­ónir Banda­ríkj­andala með við­­­skiptafléttu sem inn­­i­heldur einnig rús­s­­­neskt fyr­ir­tæki. Skipið var keypt á 28 millj­­­ónir Banda­­­ríkja­dala fyrir tveimur árum síðan og því er verð­mið­inn nú um þriðj­ungi lægri en hann var þá.

De Sousa sagði enn fremur að Sam­herji hafi fjar­lægt alla namibíska stjórn­­­endur út úr stjórn félags­­­ins sem á Heinaste. Hann grunar að þetta sé gert til þess að auð­velda enn frekar sölu tog­­­ar­ans risa­­­vaxna á hrakvirð­i.

Sam­herji ætlar að draga úr starf­­semi

Sam­herji greindi frá því í yfir­­lýs­ingu sem birt­ist á heima­­síðu fyr­ir­tæk­is­ins um miðjan jan­úar að það væri að draga úr starf­­­­semi sinni í Namibíu um þessar mundir með það að mark­miði að hætta alfarið rekstri í land­inu. Það væri hins vegar ljóst að það myndi taka ein­hvern tíma.

Síðan þá hafa hlut­irnir gerst hratt. Nokkrum dögum eftir að sú til­­kynn­ing var send út var greint frá því að namibíska rík­­­is­út­­­­­gerðin Fishcor, sem stýrt var af mönnum sem sitja í fang­elsi fyrir að hafa þegið mútur frá Sam­herja, hefði ekki átt fyrir launum fyrir des­em­ber og jan­ú­­ar­mán­uð. Til að bregð­­­ast við þeirri stöðu var 25 þús­und tonna kvóti af hrossa­­­mak­ríl færður til útgerð­­­ar­innar til að úthluta gegn greiðslu. Alls vinna meira en þús­und manns hjá Fischor, sem gerir útgerð­ina að næsta stærsta atvinn­u­rek­anda í hafn­­­ar­bænum Lüderitz í Namib­­­íu.

[links]Fyrr­ver­andi sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­ráð­herra Namib­­­íu, Bern­hard Esau, úthlut­aði alls um 360 þús­und tonnum af hrossa­­­mak­ríl­kvóta til Fishcor frá árinu 2014 og fram á síð­­­asta ár. Hluti þess kvóta var seldur til Sam­herja og grunur leikur á að íslenski sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­ris­inn hafi greitt mútur til að fá þann kvóta á lægra verði en eðli­­­legt hefði ver­ið. Þær mút­­u­greiðslur fóru meðal ann­­­ars til fyrr­ver­andi stjórn­­­­­ar­­­for­­­manns Fishcor, James Hatuikulipi, áður­­­­­nefnds Esau og aðila þeim tengd­­­um.

The Namibian greindi frá því 20. jan­úar að inn­­­an­hús­­­menn í sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegi teldi að Fishcor ætl­aði sér að nota tog­­ar­ann Heinaste, sem var kyrr­­­settur af namibískum yfir­­­völdum í fyrra, til að veiða hinn nýút­­­hlut­aða kvóta. Heinaste er að mestu í eigu Sam­herja. Bennet Kangumu, stjórn­­­­­ar­­­for­­­maður Fishcor, vildi þó ekki stað­­­festa þetta í sam­tali við blað­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár