Íslensk stjórnvöld hafa ekki boðið namibískum stjórnvöldum aðstoð

Það er mat íslenskra stjórn­valda að grípa ekki að sinni til sér­stakra ráð­staf­ana til að sporna við mögu­legum orð­spors­hnekki lands­ins vegna Sam­herj­a­máls­ins. Þau hafa ekki boðið namibískum stjórn­völdum aðstoð sína, og engar slíkar beiðnir hafa borist.

Hluti ríkisstjórnar Íslands.
Hluti rík­is­stjórnar Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Hvorki utan­rík­is­ráðu­neytið né atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hafa fengið beiðnir um sér­staka aðstoð frá namibískum stjórn­völdum í kjöl­far Sam­herj­a­máls­ins, og slík aðstoð hefur ekki verið boðin. Þetta kemur fram í svari þeirra við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Þann 19. nóv­em­ber 2019 kynnti rík­is­stjórn Íslands aðgerð­ar­á­ætlun til að auka traust á íslensku atvinnu­lífi. Þetta var gert í kjöl­far opin­ber­ana á málum tengdum Samherja og athæfi þess fyr­ir­tækis í Namibíu, sem sner­ust meðal ann­ars um meintar mútu­greiðslur fyrir aðgengi að fisk­veiði­kvóta.

Aðgerð­ar­á­ætl­unin var birt á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Einn lið­ur­inn í henni bar nafnið „við­brögð erlendis“ og undir honum kom fram að rík­is­stjórn hefði und­ir­búið við­brögð vegna hugs­an­legs orð­spors­hnekkis.

[adspot]Síðustu daga hafa fjöl­miðlar í Namibíu greint frá því að tveir af þremur tog­urum sem Samherji hefur verið með í Namibíu hafi verið siglt annað, og yfir 200 skip­verjar á þeim skildir eftir í óvissu um fram­tíð sína. Þriðji og síð­asti tog­ar­inn hefur verið kyrr­settir í Namibíu eftir að hann varð upp­vís að ólög­legum veiðum, sem skip­stjóri hans hefur játað, en fréttir þar­lendra frétta­miðla benda til þess að Samherji sé að reyna allt sem í sínu valdi stendur til að koma þeim tog­ara einnig burt.

Það varð mögu­legt í gær þegar kyrr­setn­ingu tog­ar­ans, Heinaste, var aflétt sam­hliða því að Samherji greiddi sekt vegna brota skip­stjór­ans.

Hafa ekki þurft að bregðast við mögulegum orðsporshnekki

Þar sem Samherji er stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki Íslands og meint brot varða atferli þess í alþjóða­við­skiptum, beindi Kjarninn fyr­ir­spurnum til við­eig­andi ráðu­neyta um hvort að íslensk stjórn­völd hefðu gripið til ein­hverra aðgerða vegna þessa til að vernda orð­spor Íslands, líkt og talað var um í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni í nóv­em­ber.

Í svörum sem bár­ust í gær sagði að allt frá því að Sam­herj­a­málið kom upp hafi íslensk stjórn­völd, með aðstoð Íslands­stofu og almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­is­ins BCW, fylgst grannt með erlendri fjöl­miðlaum­fjöllun og umræðum á sam­fé­lags­miðlum sem teng­ist því. „Umfjöll­unin var tölu­verð fyrstu dag­ana og beind­ist þá fyrst og fremst að Namibíu og þætti þar­lendra ráða­manna í mál­inu en svo dró jafnt og þétt úr henni. Hvorki utan­rík­is­ráðu­neytið né sendi­skrif­stofur hafa fengið telj­andi fyr­ir­spurnir eða athuga­semdir vegna máls­ins og Íslands­stofa ekki heldur. Í ljósi þessa er það mat stjórn­valda að grípa ekki að sinni til sér­stakra ráð­staf­ana til að sporna við mögu­legum orð­spors­hnekki. Verði breyt­ing á verður þetta mat end­ur­skoðað enda voru við­brögð und­ir­búin um leið og málið kom upp.“

Aðspurð hvort að íslensk stjórn­völd hafi boðið namibískum stjórn­völdum ein­hvers­konar aðstoð vegna máls­ins var svarið nei. Hvorki utan­rík­is­ráðu­neyt­inu né atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu hefði borist beiðnir um sér­staka aðstoð frá namibískum stjórn­völdum vegna máls­ins og hún því ekki verið boðin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár