Kyrrsetningu á Heinaste aflétt og Arngrímur ekki lengur í farbanni

Íslenski skip­stjór­inn sem verið hefur í far­banni í Namibíu ætti að óbreyttu að geta farið frá land­inu síðar í dag. Samherji mun greiða sekt sem hann var dæmdur til í morgun. Samhliða hefur kyrr­setn­ingu á skip­inu Heinaste verið aflétt.

Arngrímur Brynjólfsson og Heinaste.
Arn­grímur Brynj­ólfs­son og Heinaste. Mynd: Samsett.

Eins og staðan er nú mun Arn­grímur Brynj­ólfs­son, skip­stjóri á skip­inu Heinaste sem Samherji gerði út við strendur Namibíu, verða frjáls ferða sinna síðar í dag. Arn­grímur hefur verið í far­banni frá því í nóv­em­ber eftir að hann var hand­tek­inn vegna ólög­legra veiða Heinaste í namibískri lög­sögu.

Lagt var hald á vega­bréf Arngríms þegar hann var hand­tek­inn en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans mun hann fá það afhent, að óbreyttu, síðar í dag. Arn­grímur, sem er 67 ára, ját­aði sök í mál­inu fyrir helgi, en málið sner­ist um að skipið sem hann stýrði hefði verið við veiðar á hrygn­ing­­ar­­svæði undan ströndum Namib­­íu. Í dag var hann svo dæmdur til að greiða tæpar átta millj­ónir króna í sekt eða sæta tólf ára fang­els­is­vist, að því er kom fram í namibískum fjöl­miðlum. Heim­ildir Kjarnans herma að búið sé að fall­ast á sekt­ar­greiðslu og að sektin verði greidd síðar í dag.

Samhliða var kröfu ákæru­valds­ins í Namibíu um að fá að leggja hald á Heinaste, sem er risa­vax­inn verk­smiðju­tog­ari sem not­aður hefur verið til að veiða hrossa­makríl í land­helgi Namibíu, vísað frá dómi.

[adspot]Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur kyrr­setn­ingu skips­ins einnig verið aflétt og það getur því, að óbreyttu, farið frá Namibíu.

Skip Samherja að fara og skipverjar skildir eftir í óvissu

Namibískir fjöl­miðlar hafa greint frá því und­an­farna daga að spill­ing­ar­lög­reglan í Namibíu hafi ráð­lagt þar­lendum stjórn­völdum að leyfa skipum Samherja ekki að fara frá land­inu nema að hún verði látin vita. Þrátt fyrir það hafa tvö af þremur skipum Samherja í land­inu, Geysir og Saga, farið þaðan á und­an­förnum dögum.

Á mánu­dag var greint frá því að Geys­i hefði verið siglt frá Namib­íu. Skipið yfir­gaf landið á sunnu­dags­kvöld og skildi yfir 100 sjó­menn eftir í óvissu. Namibian Sun sagði á mánu­dag að sjó­menn­irnir hefðu ekki fengið að vita neitt í aðdrag­anda þess að skipið sigldi á brott utan þess að þær upp­lýs­ingar feng­ust að það myndi snúa til baka þegar það fengi úthlutað nýjum fisk­veiði­kvóta.

Þetta var í annað sinn á örfáum dögum sem fregnir bár­ust frá Namibíu þess efnis að skip í eigu Samherja væru að hverfa frá land­inu. Á föstu­dag var greint frá því í miðl­inum New Era að skipið Saga, sem siglir undir merkjum dótt­ur­fé­lags Samherja á Kýpur og hefur um ára­bil veitt hrossa­makríl í lög­sögu Namibíu, hefði fyr­ir­vara­laust siglt frá land­inu. Þá fengu sjó­menn­irnir á Sögu, sem eru um 120 tals­ins, sms-skila­boð um að þeir þyrfti að sækja eigur sínar um borð án tafar vegna þess að skipið væri á leið til Kanarí­eyja í við­gerð. Einn sjó­mann­anna sagði við New Era að van­inn væri sá að um 15 skip­verjar færu alltaf með Sögu þegar það færi í við­gerð. Annar sagð­ist hafa fengið þau svör hjá útgerð­inni að skipið myndi ekki snúa aftur næstu sex mán­uði.

Ásakanir um sölu Heinaste á hrakvirði

Þriðja skip Samherja í Namibíu er svo Heinaste, sem verið hefur kyrr­settur í land­inu. Það er í eigu namibísk félags sem íslenska sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­fyr­ir­tækið Sam­herji á stóran hlut í í gegnum dótt­­ur­­fé­lag sitt Esju Holding. Aðrir eig­endur eign­­ar­halds­­­fé­lags Heinaste eru namibísk félög, meðal ann­­ars Arctic Nam Invest­ments. Saman eiga namibísku félögin 42 pró­­sent í félag­inu en eina eign þess er áður­­­nefndur tog­­ari, Heinaste.

[adspot]New Era greindi frá 20. jan­úar að minn­i­hluta­eig­endur í Esju Holding hefðu ásakað Sam­herja um sið­­lausa hegðun með því að reyna að selja Heinaste á hrakvirði til ann­­ars félags. Í mið­l­inum er haft eftir Vigrilio De Sousa, stjórn­­­ar­­for­­manni Arctic Nam Invest­ments, að Sam­herji sé að reyna að selja sjálfum sér Heinaste á 19 millj­­ónir Banda­ríkj­andala með við­­skiptafléttu sem inn­i­heldur einnig rús­s­­neskt fyr­ir­tæki. Skipið var keypt á 28 millj­­ónir Banda­­ríkja­dala fyrir tveimur árum síðan og því er verð­mið­inn nú um þriðj­ungi lægri en hann var þá.

De Sousa sagði enn fremur að Sam­herji hafi fjar­lægt alla namibíska stjórn­­endur út úr stjórn félags­­ins sem á Heinaste. Hann grunar að þetta sé gert til þess að auð­velda enn frekar sölu tog­­ar­ans risa­­vaxna á hrakvirð­i.

Sam­herji ætlar að draga úr starf­semi sinni í Namibíu

Sam­herji greindi frá því í yfir­lýs­ingu sem birt­ist á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins um miðjan jan­úar að það væri að draga úr starf­­­semi sinni í Namibíu um þessar mundir með það að mark­miði að hætta alfarið rekstri í land­inu. Það væri hins vegar ljóst að það myndi taka ein­hvern tíma.

Síðan þá hafa hlut­irnir gerst hratt. Nokkrum dögum eftir að sú til­kynn­ing var send út var greint frá því að namibíska rík­­is­út­­­gerðin Fishcor, sem stýrt var af mönnum sem sitja í fang­elsi fyrir að hafa þegið mútur frá Sam­herja, hefði ekki átt fyrir launum fyrir des­em­ber og jan­ú­ar­mán­uð. Til að bregð­­ast við þeirri stöðu var 25 þús­und tonna kvóti af hrossa­­mak­ríl færður til útgerð­­ar­innar til að úthluta gegn greiðslu. Alls vinna meira en þús­und manns hjá Fischor, sem gerir útgerð­ina að næsta stærsta atvinn­u­rek­anda í hafn­­ar­bænum Lüderitz í Namib­­íu.

[links]Fyrr­ver­andi sjá­v­­­ar­út­­­vegs­ráð­herra Namib­­íu, Bern­hard Esau, úthlut­aði alls um 360 þús­und tonnum af hrossa­­mak­ríl­kvóta til Fishcor frá árinu 2014 og fram á síð­­asta ár. Hluti þess kvóta var seldur til Sam­herja og grunur leikur á að íslenski sjá­v­­­ar­út­­­vegs­ris­inn hafi greitt mútur til að fá þann kvóta á lægra verði en eðli­­legt hefði ver­ið. Þær mút­u­greiðslur fóru meðal ann­­ars til fyrr­ver­andi stjórn­­­ar­­for­­manns Fishcor, James Hatuikulipi, áður­­­nefnds Esau og aðila þeim tengd­­um.

The Namibian greindi frá því 20. jan­úar að inn­­an­hús­­menn í sjá­v­­­ar­út­­­vegi telji að Fishcor ætli sér að nota tog­ar­ann Heinaste, sem var kyrr­­settur af namibískum yfir­­völdum í fyrra, til að veiða hinn nýút­­hlut­aða kvóta. Heinaste er að mestu í eigu Sam­herja. Bennet Kangumu, stjórn­­­ar­­for­­maður Fishcor, vildi þó ekki stað­­festa þetta í sam­tali við blað­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár