Launakostnaður 61 prósent af heildargjöldum Íslandspósts

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um starf­semi Íslands­pósts kemur fram að laun og launa­tengd gjöld hafi hækkað veru­lega á síðustu árum hjá fyr­ir­tæk­inu. Laun for­stjóra Íslands­pósts hækk­uðu tvisvar í fyrra og um 43 pró­sent á innan við ári.

Launa­kostn­aður var 61 pró­sent af heild­ar­gjöldum Íslands­póst árið 2018. Í fyrra voru 743 stöðu­gildi hjá Íslands­pósti og var starfs­manna­velta um 37 pró­sent. Rík­is­end­ur­skoðun hefur birt skýrslu um starf­semi Íslands­póst en þar kemur fram að félagið þurfi að tryggja að fjöldi og sam­setn­ing mannauðs hjá félag­inu hald­ist í hendur við breyt­ingar á starf­sem­inni. Fjöldi stöðu­gilda hjá Íslands­póst hefur almennt ekki þró­ast í takt við síminnk­andi umsvif í kjarna­starf­semi félags­ins ef litið er til síð­ustu tíu ára, sam­kvæmt skýrsl­unni.

Laun og launatengd gjöld hækkað veruleg á síðustu árum

[links] Fjár­hags­vandi Íslands­póst á árinu 2018 leiddi til þess að félagið stefndi í greiðslu­vanda þegar við­skipta­banki þess lok­aði fyrir frek­ari lán­veit­ing­ar. Í kjöl­farið fékk rík­is­sjóður heim­ild frá Alþingi í lok síð­asta árs til að veita fyr­ir­tæk­inu einn og hálfan millj­arð í neyð­ar­lán. Fjár­­­­­laga­­­­­nefnd Alþingis sam­­­­­þykkti í kjöl­farið í jan­úar á þessu ári beiðni til Rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoð­anda um að unnin yrði stjórn­­­­­­­­­sýslu­út­­­­­­­­­tekt á starf­­­­­semi Íslands­­­­­­­­­póst­­s. Sú skýrsla Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar var birt í dag.

Í skýrsl­unni kemur fram að tals­verðar svipt­ingar hafi verið í rekstri Íslandspósts und­an­farin ár. Árin 2016 og 2017 var ágætur hagn­aður af rekstri félags­ins en sam­kvæmt skýrsl­unni komu áhrif af minnk­andi bréfamagni ekki fram í tekjum félags­ins fyrr en árið 2018. Þá hafi laun og launa­tengd gjöld hækkað veru­lega á síðustu árum á sama tíma og fjárfest­ingar hafa auk­ist. Samkvæmt skýrsl­unni var launa­kostn­aður 61 pró­sent af heild­ar­gjöldum fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra.

Hjá Íslandspósti störfuðu að með­al­tali 962 starfs­menn í 743 stöðugildum á árinu 2018. Á árunum 2009 til 2014 fækk­aði stöðu­gildum jafnt og þétt eða um 15 pró­sent og fóru þau úr 848 í 721. Frá árinu 2015 fjölgaði stöðu­gildum hins­vegar aftur og voru orðin 823 á árinu 2017, 14 pró­sent aukn­ing, en fækk­aði í 743 á árinu 2018.

Blað­berum hefur fækkað um þriðj­ung hjá fyr­ir­tæk­inu en stöðugildum í pósthúsum og við flutn­inga og útkeyrslu hefur hins vegar fjölgað töluvert á tímabil­inu. Sama á við um stöðugildi í póstmið­stöð þótt í minna mæli sé.

Í skýrsl­unni segir að félagið þurfi að tryggja að fjöldi og sam­setn­ing mannauðs hjá félag­inu hald­ist í hendur við breyt­ingar á starf­sem­inni. „Fjöldi stöðugilda hjá Íslandspósti ohf. hefur almennt ekki þróast í takt við síminnk­andi umsvif í kjarna­starf­semi félags­ins ef litið er til síðustu 10 ára,“ segir í skýrsl­unni. [adspot]

Laun forstjóra Íslandspósts hækkuðu um 43 prósent á innan við ári

Kjarninn greindi frá því í mars síð­ast­liðnum að Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Íslands­pósts, hafi hækk­aði tví­vegis í launum á árinu 2018. Fyrst hækk­uðu laun hans í 1.992 þús­und krónur á mán­uði fyrsta jan­úar 2018 og svo aftur um þrjú pró­sent 1. maí sama ár. Eftir það voru laun hans 2.052 þús­und krónur á mán­uði.

Laun Ingi­mundar hækk­uðu um tæp 43 pró­sent frá miðju ári 2017, þegar ákvörðun um laun hans var færð frá kjara­ráði til stjórnar Íslands­pósts. Þetta kom fram í svar­bréfi for­manns stjórnar Íslands­pósts við fyr­ir­spurn Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hagsáð­herra, um upp­lýs­ingar um hvernig stjórn Íslands­pósts hafi brugð­ist við til­mælum fyr­ir­renn­ara Bjarna í starfi um að sýna hóf­semi við ákvörðun launa og starfs­kjara for­stjóra.

Frétta­blaðið greindi jafn­framt frá því í febr­úar síð­ast­liðnum að sé litið aftur til árs­ins 2014 þá hafa laun stjórn­ar­manna Íslands­póst hækkað ár hvert. Hækkunin hefur verið á bil­inu ell­efu til tólf pró­sent ár hvert. Auk þess segir í umfjöll­un­inni að hafi til­laga stjórnar um hækkun launa sinna verið sam­þykkt á aðal­fundi Íslands­póst í fyrra þá hafa laun stjórn­ar­manna hækkað um 65 pró­sent frá árinu 2014.

Enn fremur greidd­i Ís­lands­póstur 29,5 millj­ónir króna fyrir fimm jeppa og einn fólks­bíl árið 2015, sem for­stjóri og fram­kvæmda­stjórar fyr­ir­tæk­is­ins hafa til umráða sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ing­um. Í svari Íslands­póst við fyr­ir­spurn DV segir að fyr­ir­tækið hafi á að skipa öfl­ug­t ­stjórn­enda­teymi og það eigi við um stjórn­endur sem og aðra starfs­menn ­fyr­ir­tæk­is­ins, að það verði að vera sam­keppn­is­hæft í launum til að eiga kost á að laða til síns hæfa starfs­menn.

Íslandspóstur ætti að draga sig úr samkeppni við einkaaðila

Félag atvinnu­rek­enda sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu um skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar í dag. Í til­kynn­ingu segir að í skýrsl­unni komi fram að fyr­ir­komu­lag Íslands­pósts, að einka­réttur á bréfum undir 50 grömmum standi undir öllum sam­eig­in­legum og föstum kostn­aði sem teng­ist honum en sam­keppn­is­rekstur beri enga hlut­deild í sam­eig­in­legum föstum kostn­aði jafn­vel þótt hann nýti sér sömu fram­leiðslu­þætt­ina, skekki aug­ljós­lega sam­keppn­is­stöðu keppi­nauta Íslands­pósts.

„Ekki verður annað séð en að með þessu stað­festi Rík­is­end­ur­skoðun í raun alvar­leg sam­keppn­is­brot í rekstri Íslands­pósts. FA telur mik­il­vægt að breyt­ingar verði gerðar á rekstri Íslands­pósts til að rétta af þessa stöðu,“ segir Ólafur Stepehen­sen, fram­kvæmda­stjóri FA.

Jafn­framt segir í til­kynn­ing­unni að félagið fagni þeirri til­lögu Rík­is­end­ur­skoð­unar að stjórn­völd móti eig­enda­stefnu fyrir Íslands­póst en í skýrsl­unni segir að í þeirri vinnu þurfi að taka til athug­unar hvort fela eigi öðrum en félag­inu að sinna einum eða fleiri starfs­þáttum þess. „FA leggur áherslu á að stjórn­völd setji skýr ákvæði um það í eig­enda­stefnu Íslands­pósts að svo lengi sem fyr­ir­tækið sé í rík­i­s­eigu dragi það sig út úr sam­keppni við einka­að­ila á marg­vís­legum mörk­uðum,“ segir í til­kynn­ing­unni

Þá segir í til­kynn­ing­unni að Rík­is­end­ur­skoðun telji að of margir starfi hjá Íslands­póst, miðað við þann sam­drátt sem hafi orðið í kjarna­starf­semi félags­ins und­an­farna ára­tugi. „Stór hluti starfs­manna Íslands­pósts er í vinnu við verk­efni sem ríkið á ekki að vera að sinna,“ segir Ólafur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pósturinn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár