Pósturinn nýtti hlutabótaleiðina fyrir 125 starfsmenn

Íslands­póstur, opin­bert hluta­fé­lag, nýtti hluta­bóta­leið stjórn­valda fyrir 125 starfs­menn í apríl. Birgir Jónsson for­stjóri segir að magn­minnkun í erlendum pakka­send­ingum og inn­lendum bréfum hafi leitt til þess að verk­efnum fækk­aði.

Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts.
Birgir Jónsson, for­stjóri Íslands­pósts. Mynd: Pósturinn

Alls voru 125 starfs­menn Íslands­pósts í minnk­uðu starfs­hlut­falli í apr­íl­mán­uði, en opin­bera hluta­fé­lagið nýtti sér hluta­bóta­leið stjórn­valda. Birgir Jónsson for­stjóri Íslands­pósts stað­festir þetta í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans og segir nokkrar ástæður fyrir því að Póst­ur­inn nýtti sér þetta úrræði.

Í fyrsta lagi segir hann að nán­ast allar erlendar send­ingar hafi horfið úr kerfi fyr­ir­tæk­is­ins í kjöl­far COVID-19 og að tekju­tapið af þeim sökum verði alla­vega hálfur millj­arður á árinu, sem sé mikið högg fyrir rekst­ur­inn. „Við vitum í raun ekki hvenær eða hvort allt þetta magn kemur til baka enda alls óvíst hvað tekur við í fram­hald­inu, bæði þegar litið er á sam­göngur og einnig vilja eða getu fólks til að panta erlendis frá á kreppu­tíma,“ segir Birgir.

Einnig segir hann að orðið hafi meiri sam­dráttur í bréfum en gert var ráð fyrir, með til­heyr­andi tekju­tapi. For­stjór­inn segir að inn­lendar pakka­send­ingar hafi auk­ist nokkuð vegna aukn­ingar í net­verslun, en það vegi þó ekki upp tekju­tapið nema að litlum hluta.

Magn­minnkunin hafi leitt til þess að verk­efni hafi minnkað eða jafn­vel horfið hjá hluta starfs­manna, og að auki hafi verið ómögu­legt fyrir hluta starfs­manna að sinna störfum sínum vegna til­mæla almanna­varna og sótt­varna­læknis, til dæmis vegna fjölda­tak­mark­ana og lokun mötu­neyta.

„Hluta­bóta­leiðin er hugsuð til þess að verja ráðn­ing­ar­sam­band og með því að nýta okkur hana keyptum við okkur tíma til að sjá hvernig málin þró­ast hjá okkur, við erum að von­ast til þess að magnið erlendis frá vaxi aftur en ef ekki þá munum við þurfa að grípa til erf­iðra aðgerða enda er ekki hægt að hafa starfs­fólk án verk­efna og ekk­ert fyr­ir­tæki getur verið með fólk á launum ef það eru ekki tekjur á móti,“ segir Birgir í svari sínu.

Hann segir alla starfs­menn sem voru á hluta­bóta­leið­inni nú komna aftur til starfa, en engin trygg­ing væri fyrir því að erlenda magnið kæmi allt til baka þrátt fyrir að aukn­ing hefði verið merkj­an­leg und­an­farnar vikur.

„Við sjáum ekki fyrir okkur að nýta þetta úrræði frekar en hefur verið gert, þetta var fyrst og fremst gert með það í huga að hjálpa okkur að taka mesta höggið og sjá hvernig málin þró­uð­ust þannig að við gætum tekið betri ákvarð­anir þegar fram líða stundir,“ segir Birgir.

Hann segir að hafa verði í huga að þrátt fyrir að Póst­ur­inn hafi verið að rétta úr kútnum á síð­ustu mán­uðum hafi verið mik­ill tap­rekstur hjá fyr­ir­tæk­inu á und­an­förnum árum og eins og staðan sé í dag sé fyr­ir­tækið „mjög brot­hætt“ og þoli illa mikil skakka­föll í rekstr­inum.

Fyrirtæki en ekki stofnun

Ein­hverjum kann að þykja það skjóta skökku við að rík­is­fyr­ir­tæki eins og Íslands­póstur nýti sér hluta­bóta­úr­ræðið, en Birgir segir að það verði að „horfa til þess að Póst­ur­inn er fyr­ir­tæki en ekki stofnun og stjórn­endum ber skylda til þess að reka það sem slíkt og nýta öll úrræði til þess að hámarka hag­kvæmni í rekstr­inum.“

Hann bætir við að úrræðið hafi ekki verið nýtt á fyrsta árs­fjórð­ungi og hafi því ekk­ert að gera með jákvæða afkomu Íslands­pósts á fyrsta hluta árs­ins.

„Póst­ur­inn hefur verið að grípa til ýmissa aðgerða til að hag­ræða í rekstr­inum og mun halda því áfram, lyk­il­stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins hafa lagt mikla áherslu á að verja þann góða árangur sem fyr­ir­tækið hefur náð og afþökk­uðu til að mynda kjara­samn­ings­bundnar launa­hækk­anir á þessum miklu óvissu­tímum. Við munum halda áfram að vinna að því að þjón­usta við­skipta­vini okkar sem best á sama tíma og við ætlum okkur að skila skil­virkara og öfl­ugra fyr­ir­tæki í öllum þáttum rekstr­ar­ins,“ segir Birgir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár