Íslandspóstur fær alþjónustuframlag vegna erlendra póstsendinga

Póst- og fjar­skipta­stofnun hefur sam­þykkt umsókn Íslands­pósts um fram­lag úr jöfn­un­ar­sjóði alþjón­ustu vegna erlendra póst­send­inga. Stofn­unin komst að þeirri nið­ur­stöðu að ófjár­mögnuð byrði Íslands­pósts vegna erlendra send­inga nemi 1.463 millj­örðum króna.

Póst- og fjar­skipta­stofnun hefur sam­þykkt umsókn Íslands­pósts um fram­lag úr jöfn­un­ar­sjóði alþjón­ustu vegna erlendra póst­send­inga en vís­aði frá umsókn félags­ins vegna þriggja ann­arra atriða. Stofn­unin komst að þeirri nið­ur­stöðu að ófjár­magnað tap Íslands­pósts vegna erlendra send­inga á árunum 2013 til 2018 sé 1.463 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar.

Krafa upp á 2,6 milljarða

Í októ­ber á síð­asta ári sótti Íslands­póstur um fram­lag úr jöfn­un­ar­sjóði alþjón­ustu vegna fjög­urra þátta, hraða og tíðni send­inga, erlendra bréfa, dreif­ingar í dreif­býli og send­inga fyrir blinda. Alls hljóð­aði krafa Íslands­pósts upp á rúm­lega 2,6 millj­arða á því tíma­bili sem sótt var fram­lag fyrir. Póst- og fjar­skipta­stofnun féllst á umsókn félags­ins varð­andi erlendar póst­send­ingar en vís­aði hinum þremur frá. Stofn­unin vísar meðal ann­ars til þess að Íslands­pósti sé skylt að sinna alþjóð­legum skuld­bind­ingum Íslands vegna aðildar rík­is­ins að Alþjóða­póst­þjón­ustu­sam­band­inu.

Stofn­unin komst að þeirri nið­ur­stöðu að ófjár­mögnuð byrði Íslands­pósts vegna erlendra send­inga sé 1.463 millj­ónir króna tíma­bil­inu 30. októ­ber 2014 til 31. des­em­ber 2018 eða sem nemur 350 millj­ónum króna að með­al­tali á ári, sem jöfn­un­ar­sjóði alþjón­ustu er heim­ilt að greiða. Íslands­póstur hafði sótt um fram­lag upp á 1.640 millj­ónir vegna erlendra bréfa en vegna fyrn­ingar krafna og banns þess efnis að ekki sé heim­ilt að sækja um fram­lag vegna alþjón­ustu vegna þjón­ustu sem heyrir undir einka­rétt. Dreifing póst­send­ingum erlendis frá undir 50 grömm falla undir einka­rétt félags­ins.

Sjóðurinn sem greiða á kostnaðinn ekki til

Í lögum um póst­þjón­ustu er gert ráð fyrir því að til sé jöfn­un­ar­sjóður sem greiði fyrir alþjón­ustu­kostnað alþjón­ustu­veit­anda. Til að standa straum af mögu­legum fram­lögum úr sjóðnum skal inn­heimta jöfn­un­ar­gjald sem lagt er á rekstr­ar­leyf­is­hafa í hlut­falli við bók­færða veltu. Engin slíkur sjóður er hins vegar til í dag.

Í frétt Póst- og fjar­skipta­stofn­unnar er jafn­framt bent á að nú liggi fyrir á Alþingi frum­varp til nýrra laga um póst­þjón­ustu, í því frum­varpi er lagt til að jöfn­un­ar­sjóður sé lagður niður og þess í stað kveðið á um að kostn­aður vegna alþjón­ustu muni verða greiddur úr rík­is­sjóði.

Frumvarp ­sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra, um breyt­ingar á lögum um erlendar póst­send­ingar og raf­rænar send­inga hefur hins vegar verið sam­þykkt á Alþingi. Breyt­ing­arnar heim­ila Íslands­pósti að leggja sér­stakt gjald á við­tak­endur erlendra póst­send­inga. Samkvæmt frum­varp­inu er þetta gert til að bregð­ast við óbættum raun­kostn­aði Póstsins vegna erlendra pakka­send­inga. Jafn­framt verji þetta í raun stöðu rík­is­sjóðs til fram­tíðar litið og koma í veg fyrir að skattfé verði notað til að nið­ur­greiða kostnað vegna send­inga frá útlönd­um.

Íslands­póstur hefur til­kynnt að frá og með 3. júní bæt­ist send­ing­ar­gjald við send­ingar sem koma með Póstinum frá útlöndum. Send­ing­ar­gjaldið verður 400 krónur fyrir send­ingar frá Evrópu en 600 krónur fyrir send­ingar frá löndum utan Evrópu og er því ætlað að standa undir kostn­aði við dreif­ingu.

1,5 millj­arða króna lán frá rík­inu

[links] Ís­lands­­­póst­ur, sem er í eigu ríks­ins og sinnir alþjón­ustu­skyldu, tap­aði 293 millj­­ónum á árinu 2018 en hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins var 216 millj­­ónir árið á und­­an. Fjár­­hags­­staða Íslands­­­pósts hefur verið var­huga­verð um nokkurn tíma en í sept­em­ber í fyrra leit­aði Íslands­póstur á náðir rík­is­ins og fékk 500 millj­ónir króna að láni til að bregð­­ast við lausa­­fjár­­skorti eftir að við­­skipta­­banki þess, Lands­­banki Íslands, hafði lokað á frek­­ari lán­veit­ing­­ar. Nokkrum mán­uðum síð­­­­­ar, í des­em­ber, sam­­­þykkti Alþingi að lána fyr­ir­tæk­inu allt að millj­­­arð til við­­­bót­­­ar.

Frétta­blaðið greindi frá því í mars síð­ast­liðnum að Póst- og fjar­skipta­stofnun teldi að lausa­fjár­vandi Íslands­pósts væri til­kom­inn vegna fækk­unar einka­rétt­ar­bréfa ann­ars vegar og hins vegar mik­illa fjár­fest­inga sem ráð­ist var í á sama tíma og fjár­mögnun þeirra var ekki tryggð. Þetta kom fram í svari stofn­un­ar­innar við erindi sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyts­ins þar sem óskað var eftir því að stofn­unin gerði grein fyrir hvernig eft­ir­liti stofn­un­ar­innar með fjár­hags­stöðu Íslands­pósts hefði verið háttað. Jafn­framt kom fram í svar­inu að þessi vandi hafi ekki verið opin­ber­aður af hálfu Íslands­póst fyrr en á síð­ari helm­ingi síð­asta árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pósturinn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár