Miklar fjárfestingar Íslandspósts og fækkun einkabréfa stuðlað að lausafjárþurrð

Að mati Póst- og fjar­skipta­stofn­unar virð­ist fækkun einka­rétt­ar­bréfa sam­tímis miklum fjár­fest­ingum hafa stuðlað að lausa­fjár­þurrð Íslands­pósts. Stofn­unin seg­ist ekki hafa heim­ildir til að grípa inn í ákvarð­anir for­stjóra og stjórnar Íslands­pósts.

Póst- og fjarskiptastofnun telur að lausafjárvandi Íslandspósts sé tilkomin vegna fækkunar einkaréttarbréfa annars vegar og hins vegar mikilla fjárfestinga fyrirtækisins á sama tíma. Stofnun segir að Íslandspóstur hafi ráðist í miklar fjárfestingar án þess að fjármögnun þeirra hafi verið tryggð. Íslandspóstur lét ekki opinberlega vita af vandanum fyrr en í síðari helming síðasta árs. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.

Forstjóri og stjórn Íslandspósts bera ábyrgð á þeim ákvörðunum

Í lögum um Póst- og fjarskiptastofnun er kveðið á um að stofnunin hafi eftirlit með starfsemi fjarskiptafyrirtækja og póstrekenda og þar með talið fjárhagsstöðu þeirra. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðneytið óskaði eftir því í desember að Póst- og fjarskiptastofnun gerði grein fyrir hvernig eftirlit stofnunarinnar með fjárhagsstöðu Íslandspóst hafi verið háttað. Í svarbréfi stofnunarinnar, sem barst ráðuneytinu í febrúar, segir aftur á móti að eftirlit stofnunarinnar takmarkist við þann hluta sem snýr að einkarétti og alþjónustu, þegar kemur að póstþjónustu. Jafnframt kemur fram í bréfinu að stofnunin hafi ekki heimildir til að grípa inn í með einhverjum hætti þær ákvarðanir sem félagið kann að hafa tekið. Forstjóri og stjórn Íslandspósts beri ábyrgð á þeim ákvörðunum.

Í bréfinu er einnig greint frá því að rekstrarreikningur Íslandspóst fyrir árið 2017 hafi ekki bent til þess að félagið stefndi í alvarlegan lausafjárvanda árið 2018. Samkvæmt árshlutareikningi í september í fyrra var veltufé frá rekstri 12 milljónir króna sem er um 500 milljónum lægra en á sama tíma árið áður. Að mati póst- og fjarskiptastofnun skýrist það af lækkun á hagnaði einkaréttarbréfa. Stofnunin segir að vandinn hafi ekki legið fyrir fyrr en síðla árs 2018.

Miklar fjárfestingar og hækkun launa í fyrra

[links]For­svars­menn Íslands­póst­s hafa sagt að lausa­fjár­vandi ­fyr­ir­tæk­is­ins stafi meðal ann­ar­s af sam­drætti í bréfum innan einka­rétt­ar, afgreiðslutregðu stjórn­valda í gjald­skrár hækk­unum og fjölgun erlendra send­inga. Aftur á móti hefur verið fjallað um í fjöl­miðlum á und­an­förnum mán­uðum hvernig fjár­fest­ingar Íslands­póst í dótt­ur­fé­lög­um, offjár­fest­ingar í bygg­ingum og van­á­ætl­aðar gjald­skrár sam­keppn­is­rekstur gætu einnig átt í hlut.

Frétta­blaðið greindi frá því í febr­úar að á fundi stjórnar Íslands­póst í nóv­em­ber 2017 var ákveðið að stækka flutn­inga­mið­stöð­ fyr­ir­tæk­is­ins en áætl­aður kostn­aður við fram­kvæmd­ina var 698 millj­ónir króna. Á sama tíma stóðu yfir fram­kvæmdir við bygg­ingu nýs póst­húss á Sel­fossi en áætlað var að sú fram­kvæmd kost­aði 608 millj­ónir króna. Í des­em­ber 2017 sam­þykkti stjórn Íslands­póst heim­ild til allt að 1,25 millj­arða. Í apríl 2018 var síðan sam­þykkt heim­ild fyrir 1,75 millj­arða láni. Samkvæmt árs­reikn­ingum Íslands­pósts var það hugsað til að end­ur­fjár­magna lánin frá í des­em­ber árið áður og til að fjár­magna 500 millj­óna yfir­drátt­ar­lán. Á þeim tíma sem fram­kvæmdin var sam­þykkt stóð hand­bært fé í 215 millj­ónum króna eftir slæmt rekstr­ar­ár.

Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Íslands­pósts, hækk­aði tví­vegis í launum á árinu 2018. Fyrst hækk­uðu laun hans í 1.992 þús­und krónur á mán­uði fyrsta jan­úar 2018 og svo aftur um þrjú pró­sent 1. maí sama ár. Eftir það voru laun hans 2.052 þús­und krónur á mán­uði. Laun Ingi­mundar hafa hækkað um tæp 43 pró­sent frá miðju ári 2017, þegar ákvörðun um laun hans var færð frá kjara­ráði til stjórnar Íslands­pósts.

Stjórnsýsluúttekt á starfsemi Íslandspósts

Í sept­em­ber 2018 leit­aði Íslands­póstur síðan á náðir rík­is­ins og fékk 500 millj­ónir króna að láni til að bregð­­ast við lausa­­fjár­­skorti eftir að við­­skipta­­banki þess, Lands­­banki Íslands, hafði lokað á frek­­ari lán­veit­ing­­ar. Nokkrum mán­uðum síð­­­ar, í des­em­ber, sam­­þykkti Alþingi að lána fyr­ir­tæk­inu allt að millj­­arð til við­­bót­­ar.

Í umsögn Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­un­­ar, um auka fjár­­veit­ingu rík­is­ins til Íslands­­­pósts, sagði að ­­­­Rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoðun teldi að það væri óheppi­­­­­legt að ekki liggi nákvæm­­­­­lega fyrir hvernig fyr­ir­hugað sé að taka á rekstr­­­­­ar­­­­­vanda Íslands­­­­­­­­­pósts þannig að til­­­­­skil­inn árangur náist áður en tekin er ákvörðun um fram­lög úr rík­­­­­is­­­­­sjóði til félags­­­­­ins. Þá væri orsök fjár­­­hags­vand­ans alls ógreind, ekki lægi fyrir hvort hann stafi af sam­keppn­is­­­rekstri eða starf­­­semi innan einka­rétt­­­ar. Fjár­­laga­­nefnd Alþingis sam­­þykkti því í jan­úar á þessu ári beiðni til Rík­­is­end­­ur­­skoð­anda um að unnin yrði stjórn­­­sýslu­út­­­tekt á starf­­semi Íslands­­­pósts.

Aðalfundur Íslandspósts á fimmtudaginn

Aðal­­fundur Íslands­­­pósts hefur verið boð­aður þann 15. mars næst­kom­andi í höf­uð­stöðv­um ­fyr­ir­tæk­is­ins. Fund­ur­inn átti að fara fram þann 22. febr­úar síð­ast­lið­inn en honum var frestað að beiðni Bjarna Bene­dikts­­son­­ar, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra. Á aðal­fundi verður birt árs­­skýrsla fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár