Milljarðafjárfestingar Íslandspósts

Íslands­póstur sam­þykkti 700 millj­óna króna fjár­fest­ingu á meðan dag­legur rekstur fyr­ir­tæk­is­ins var fjár­magn­aður með yfir­drátt­ar­lánum. Margt virð­ist benda til þess að lausa­fjár­vanda Íslands­pósts megi ekki aðeins að rekja til póst­send­inga.

Íslandspóstur ohf. ákvað að leggjast í stækkun á flutningamiðstöð fyrirtækisins árið 2017 fyrir tæpar 700 milljónir á meðan daglegur rekstur var fjármagnaður með yfirdráttarlánum. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag en blaðið fékk aðgang að fundargerðum Íslandspósts frá árinu 2013. Í heildina hefur Íslandspóstur varið rúmlega 5,8 milljörðum króna í fjár­fest­ingar í fast­eign­um, lóð­um, áhöld­um, tækjum og bif­reið­um frá árinu 2006. Á móti hafa eignir fyrir rúmar 600 millj­ónir króna verið seld­ar.

Stórar fjárfestingar samþykktar þrátt fyrir slæma rekstarafkomu

Upphaflega áætlanir Íslandspósts um stækkun flutningamiðstöðvarfyrirtækisins að Stórhöfða gerðu ráð fyrir því að framkvæmdirnar yrðu allt að þrefalt dýrari en raun varð. Í fundargerðum fyrirtækisins kemur fram að það hafi legið lengi fyrir að núverandi flutningamiðstöð væri of smá í sniðum en gríðarleg aukning hefur orðið í erlendum sendingum hingað til lands á síðustu árum.

Á fundi stjórnar í apríl 2015 voru hugmyndir um stækkun miðstöðvarinnar fyrst viðraðar. Þá var miðstöðin 5.600 fermetrar en áætlanir gerðu ráð fyrir að hún þyrfti að stækka um 3.300 fermetra hið minnsta fyrir árið 2025.

Rúmu ári síðar á fundi stjórnar í júní 2016 voru tillögudrög að viðbyggingu kynntar. Ræddi stjórn þá hvort réttlætanlegt væri að Íslandspóstur færi í svo viðamiklar framkvæmdir í ljósi rekstrarafkomu ársins 2015 en þá tapaði fyrirtækið 118 milljónum. Tveimur mánuðum síðar voru kynntar tvær tillögur að stækkun. Önnur þeirra gerði ráð fyrir framkvæmdum upp á 1,8 milljarð en hin miðaði við 2,2 milljarða.

Á fundi stjórnar í nóvember 2017 var ákveðið að byggja við flutningamiðstöðina en áætlaður kostnaður við framkvæmdina var 698 milljónir króna. Á sama tíma stóðu yfir framkvæmdir við byggingu nýs pósthúss á Selfossi en áætlað var að sú framkvæmd kostaði 608 milljónir króna.

Í desember 2017 samþykkti stjórnin heimild til allt að 1,25 milljarða. Í apríl 2018 var síðan samþykkt heimild fyrir 1,75 milljarða láni. Var það hugsað til að endurfjármagna lánin frá í desember árið áður og til að fjármagna 500 milljóna yfirdráttarlán. Á þeim tíma sem framkvæmdin var samþykkt stóð handbært fé í 215 milljónum króna eftir slæmt rekstrarár, segir í umfjöllun Fréttablaðsins.

Stjórnsýsluúttekt á Íslandspósti hefur verið samþykkt

[links]Mikið hefur verið fjallað um Íslandspóst á síðustu mánuðum eftir að Alþingi samþykkti að veita Íslandspóst 1,5 milljarða neyðarlánsheimild til að forða fyrirtækinu frá þroti. Af þeirri upphæð hefur félagið nú þegar fengið 500 milljónir. Ekki liggur fyrir hvernig og hvort fyrirtækið geti endurgreitt það lán. Fjár­laga­nefnd Alþingis sam­þykkti á fundi sínum í janúar að senda beiðni um stjórn­sýslu­út­tekt á mál­efnum Íslands­pósts til rík­is­end­ur­skoð­anda en stjórn­­­sýslu­út­­­tekt felur í sér mat á frammi­­stöðu stofn­ana og fyr­ir­tækja í eig­u ­­rík­­is­ins. Við ­­mat á frammi­­stöðu er meðal ann­­ars litið til með­­­ferðar og nýt­ingar á ríkisfé og hvort hag­­kvæmni sé gætt í rekstri.

Forsvarsmenn Íslandspósts hafa sagt að lausafjárvanda fyrirtækisins stafi meðal annars af samdætti í bréfum innan einkaréttar, afgreiðslutregðu stjórnvalda í gjaldskrár hækkunum og fjölgun erlendra sendinga. Aftur á móti hafa fjölmiðar fjallað um hvernig fjárfestingar Íslandspóst í dótturfélögum, offjárfestingar í byggingum og vanáætlaðar gjaldskrár samkeppnisrekstur gætu einnig átt í hlut.

Í heildina hefur Íslandspóstur varið rúmlega 5,8 milljörðum króna í fjár­fest­ingar í fast­eign­um, lóð­um, áhöld­um, tækjum og bif­reið­um frá árinu 2006. Á móti hafa eignir fyrir rúmar 600 millj­ónir króna verið seld­ar. Nettófjár­fest­ing á tíma­bil­inu er því rúmir fimm millj­arðar króna. Þetta má lesa úr árs­skýrslum Íslands­pósts frá árinu 2006.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár