Fjárlaganefnd samþykkir stjórnsýsluúttekt á Íslandspósti

Fjár­laga­nefnd hefur sam­þykkt beiðni um stjórn­sýslu­út­tekt á starf­semi Íslands­pósts. Í auka­fjár­lögum er heim­ild til að end­ur­lána Íslands­póst allt að 1500 millj­ónir en Rík­is­end­ur­skoðun hefur bent á að orsök fjár­hags­vanda fyr­ir­tæk­is­ins sé enn ógreind

Fjárlaganefnd Alþingis samþykkti á fundi sínum í gær að senda beiðni um stjórnsýsluúttekt á málefnum Íslandspósts til ríkisendurskoðanda. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag. Stjórn­sýslu­út­tekt felur í sér mat á frammi­stöðu stofn­ana og fyr­ir­tækja í eig­u ­rík­is­ins. Við ­mat á frammi­stöðu er meðal ann­ars litið til með­ferðar og nýt­ingar á ríkisféi og hvort hag­kvæmni sé gætt í rekstri.

Orsök fjárhagsvanda Íslandspósts ógreind

[links]Íslandspóstur hefur nú þegar fengið 500 milljóna króan lán frá ríkinu til að mæta bráðasta lausfjárvanda fyrirtæksins. Í aukafjárlögunum sem samþykkt voru 14. desember er ákvæði umum heimild til að endurlána allt að 1500 milljónir til Íslandspóst en þó með ströngum skilyrðum. Þar segir að skil­yrði lán­veit­ing­ar­innar sé að lánið verði veitt á mark­aðs­for­sendum með full­nægj­andi trygg­ing­um. Ekk­ert liggur þó fyrir um hvernig Íslands­póstur ætlar að greiða umrædd lán til baka.

Í umsögn rík­is­end­ur­skoð­unar um fjár­auka­lögin ­segir að ­Rík­­is­end­­ur­­skoðun telji að það sé óheppi­­legt að ekki liggi nákvæm­­lega fyrir hvernig fyr­ir­hugað sé að taka á rekstr­­ar­­vanda Íslands­­­pósts þannig að til­­skil­inn árangur náist „áður en tekin er ákvörðun um fram­lög úr rík­­is­­sjóði til félags­­ins.“ Þá sé orsök fjárhagsvandans alls ógreind. Ekki liggi fyrir hvort hann stafi af samkeppnisrekstri eða starfsemi innan einkaréttar.

Rík­is­end­ur­skoðun virð­ist vera á þeirri skoðun að ekki liggi fyrir hvort að fjár­­hags­vand­inn sé vegna einka­rétt­­ar­hluta starf­­sem­innar (þ.e. dreif­ingu árit­aðra bréfa undir 50 grömm­um), vegna alþjón­ust­u­kvaða sem lagðar eru á fyr­ir­tækið eða vegna sam­keppn­is­­starf­­semi sem það stund­­ar. „Þeir mög­u­­leikar sem fyrir hendi eru á að takast á við vand­ann hljóta að ráð­­ast að miklu leyti af nið­­ur­­stöðu slíkrar grein­ing­­ar,“ segir í umsögn­inni.

Fjárlaganefnd hefur samþykkt beiðni um stjórnsýsluúttekt á starfsemi Íslandspósts en mark­mið stjórn­sýslu­end­ur­skoð­unar er að stuðla að úrbótum þar sem horft er til­ á­kveð­inn­i ­at­riða þar á meðal með­ferðar og nýt­ingar rík­is­fjár, hvort hag­kvæmni og skil­virkni gætir í rekstri stofn­ana og fyr­ir­tækja í eig­u ­rík­is­ins og hvort fram­lög rík­is­skins skili þeim árangri. Í lög­unum segir að við mat á frammi­stöðu skal meðal ann­ars líta til þess hvort starf­semi sé í sam­ræmi við fjár­heim­ild­ir, þá lög­gjöf sem gildir um hana og góða og við­ur­kennda starfs­hætti.

Slæm rekstrarstaða

Íslands­­­­­póstur hefur ekki staðið undir sér und­an­farin ár meðal ann­­­ars vegna mik­ils sam­­­dráttar í bréfa­­­send­ingum og nið­­­ur­greiðslu erlendra póst­­­­­send­inga. Dreif­ing­­­ar­­­dögum póst­­s­ins hefur verið fækkað og póst­­­­­burð­­­ar­­­gjald hefur þre­fald­­­ast á tíu árum. Eft­ir­lits­að­ilar hafa hins vegar bent á að slæma rekstr­­­ar­­­stöðu Íslands­­­­­pósts sé ekki aðal­­­­­lega að rekja til auk­ins kostn­aðar við alþjónustu. Í athuga­­­semdum Póst- og fjarskipstastofnunnar við skýrslu um rekstr­­­ar­skil­yrði Íslands­­­­­pósts, frá árinu 2014, er meðal ann­­­ars bent á að hund­ruð millj­­­óna hafi tap­­­ast vegna lán­veit­inga til dótt­­­ur­­­fé­laga Íslands­­­­­pósts í sam­keppn­is­­­rekstri. Íslands­­­­­póst­­­­­ur, m.a. vegna fjár­­­­­fest­ingu í prent­smiðju Sam­­­skipta og láns til­­ ePósts dótt­­­ur­­­fé­lags Íslands­­­­­póst­­s.

Vilja að utanaðkomandi fyrirtæki geri óháða endurskoðun

Félag atvinn­u­rek­enda hefur ítrekað óskað eftir því að gerð verði óháð úttekt á rekstri Íslandspóst. Ólaf­­ur Stephensson, fram­­kvæmda­­stjóri Félags atvinnurekanda, hefur bent á að Póst- og fjarskiptastofnun telji það ekki hlutverk sitt að rannsaka rekstrarvandræði Íslandspósts að þá sé Ríkisendurskoðun vanhæf þar sem stofnunin endurskoði reikninga Íslandspóst.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisendurskoðandi segir svo ekki vera og segir að fjárhagsendurskoðun Ríkisendurskoðunar leggi ekki matá innri verkefni fyrirtækis .„Fjárhagsendurskoðunin felur meðal annars í sér frágang á reikningum til birtingar og skattlagningar ef um þá er að ræða. Slík vinna felur ekki í sér að lagt sé mat á innri verkefni hlutaðeigandi fyrirtækis eða stofnunar og hvort unnið sé eftir þeim lögum og reglum sem gilda,“ segir Skúli Eggert í samtali við Fréttablaðið í dag.

Ólafur Steph­ens­son segir það ánægju­legar fréttir að fjár­laga­nefnd hafi sam­þykkt stjórn­sýslu­út­tekt , í sam­tali við Frétta­blaðið í dag. Hann telur þó enn að rétt­ara væri að fá utan­að­kom­andi fyr­ir­tæki til gera óháða end­ur­skoðun á Íslands­pósti. „Þótt farið sé í þessa vinnu má velta fyrir sér, með þeim fyr­ir­vara að ég hef ekki séð umrædda beiðni, hvort ekki sé rétt að fá utan­að­kom­andi fyr­ir­tæki til að gera óháða end­ur­skoðun sem snýr að reikn­ings­skilum og upp­lýs­inga­gjöf fyr­ir­tæk­is­ins,“ segir Ólafur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár