Stjórnsýsluúttekt á RÚV

Rík­is­end­ur­skoð­andi hefur ákveðið að gera stjórn­sýslu­út­tekt á RÚV en úttektin mun taka til fjár­mögn­unar, reikn­ings­skila og sam­keppn­is­rekst­urs Rík­is­út­varps­ins. Úttektin er að frum­kvæði Rík­is­end­ur­skoð­unar og sú fyrsta sem gerð er á RÚV í 24 ár.

Rík­is­end­ur­skoðun hyggst gera stjórn­sýslu­út­tekt á Rík­is­út­varp­inu. Úttektin mun ná til fjár­mögn­unar og reikn­ings­skila og sam­keppn­is­rekstur RÚV. Stjórn­sýslu­út­tekt felur í sér mat á frammi­stöðu stofn­ana og fyr­ir­tækja í eig­u ­rík­is­ins. Við ­mat á frammi­stöðu er meðal ann­ars litið til með­ferðar og nýt­ingar á rík­is­féi og hvort hag­kvæmni sé gætt í rekstri. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Ríkisendurskoðandi átti frumkvæðið að úttektinni

Rík­is­end­ur­skoðun átti frum­kvæði að úttekt­inni en ekki eru veittar upp­lýs­ingar um ein­staka athug­anir og úttektir fyrr en end­ur­skoðun eða stjórn­sýslu­út­tekt er lokið. Skúli Eggert Þórð­ar­son, rík­is­end­ur­skoð­andi segir, í sam­tali við Frétta­blaðið, ýmsar ástæður séu fyrir því kanni fjár­hags­stöðu, hag­kvæmni og skil­virkni emb­ætta umfram það sem hefð­bundin fjár­hagsend­ur­skoðun leiði í ljós.

Samkvæmt lögum um rík­is­end­ur­skoð­anda getur Rík­is­end­ur­skoðun gert stjórn­sýslu­út­tektir hjá öllum þeim aðilum sem fjár­magna starf­semi sína með rík­isfé, ríkið á að hálfu eða meira eða njóta fram­laga úr rík­is­sjóði vegna þjón­ustu sem þeir veita.

Fyrsta stjórnsýsluúttektin í 24 ár

Ekki hefur verið gerð stjórn­sýslu­út­tekt á Rík­is­út­varp­in­u í 24 ár, sam­kvæmt umfjöllun Frétta­blaðs­ins. Síð­asta úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar var árið 1995 að ósk fjár­laga­nefndar Alþingis en þar áður var slík úttekt gerð árið 1988. 

Magnús Geir Þórð­ar­son, útvarps­stjóri RÚV, segir, í sam­tali við Frétta­blaðið, að eðli­legt sé að Rík­is­end­ur­skoðun ráð­ist í úttekt núna en engin slík úttekt hefur farið fram síðan RÚV var gerð að opin­beru hluta­fé­lagi árið 2007. „Þessi tíma­punktur er að mörgu leyti ágætur, rúm tíu ár eru liðin frá ohf-væð­ingu og RÚV hefur verið rekið halla­laust frá árinu 2014,“ segir Magnús.

Hann segir jafn­framt að RÚV muni að sjálf­sögðu aðstoða Rík­is­end­ur­skoðun við verkið. „Rík­is­end­ur­skoðun ber ábyrgð á end­ur­skoðun árs­reikn­inga RÚV en það er auð­vitað hið besta mál að fá dýpri grein­ingu á til­teknum fjár­hags­legum atriðum frá ohf-væð­ingu og við munum að sjálf­sögðu aðstoða við verkið eins og óskað er eftir,“ segir Magnús.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár