Jón Þór ætlar að óska eftir stjórnsýsluúttekt á Íslandspósti

Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, ætlar að leggja fram skýrslu­beiðni til Rík­is­end­ur­skoð­anda um stjórn­sýslu­út­tekt á Íslands­pósti þegar þing kemur saman á ný í lok jan­úar. Jón Þór óskar eftir að aðrir þing­menn verði með á skýrslu­beiðn­inni.

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata.
Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Þór Ólafsson þing­maður Pírata ætlar að leggja fram skýrslu­beiðni til Rík­is­end­ur­skoð­anda um stjórn­sýslu­út­tekt á Íslands­pósti þegar þing kemur saman þann 21. jan­úar næst­kom­andi. Stjórn­sýslu­út­tekt felur í sér mat á frammi­stöðu stofn­ana og fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins. Við mat á frammi­stöðu er meðal ann­ars litið til með­ferðar og nýt­ingar á rík­is­féi og hvort hag­kvæmni sé gætt í rekstri. Jón Þór til­kynnti þetta í dag og óskaði einnig eftir því að aðrir þing­menn yrðu með á skýrslu­beiðn­inni.

Ríkisendurskoðun telur það óheppilegt að ekki liggi fyrir hvernig á að taka á rekstrarvanda Íslandspósts

[links]Fyrir jól sam­þykkti Alþingi 500 millj­óna króna lán til­ Ís­lands­póst­s ­vegna bágrar fjár­hags­stöðu þrátt fyrir að ekki liggi fyrir grein­ing á því hvað valdi þeim mikla rekstr­ar­vanda fyr­ir­tæk­is­ins. Í umsögn Rík­is­end­ur­skoð­unar um fjár­auka­lögin sem sam­þykkt voru 14. des­em­ber segir að Rík­is­end­ur­skoðun telji að það sé óheppi­legt að ekki liggi nákvæm­lega fyrir hvernig fyr­ir­hugað sé að taka á rekstr­ar­vanda Íslands­pósts þannig að til­skil­inn árangur náist „áður en tekin er ákvörðun um fram­lög úr rík­is­sjóði til félags­ins.“

Rík­is­end­ur­skoðun virð­ist vera á þeirri skoðun að ekki liggi fyrir hvort að fjár­hags­vand­inn sé vegna einka­rétt­ar­hluta starf­sem­innar (þ.e. dreif­ingu árit­aðra bréfa undir 50 grömm­um), vegna alþjón­ustu­kvaða sem lagðar eru á fyr­ir­tækið eða vegna sam­keppn­is­starf­semi sem það stund­ar. „Þeir mögu­leikar sem fyrir hendi eru á að takast á við vand­ann hljóta að ráð­ast að miklu leyti af nið­ur­stöðu slíkrar grein­ing­ar,“ segir í umsögn­inni.

Til við­bótar við það fé sem ríkið ætlar að lána Íslands­pósti í fjár­auka­lögum er enn frek­ari lán­veit­ing fyr­ir­huguð á árinu 2019. Í fjár­lögum þess árs er heim­ild til að end­ur­lána allt að 1,5 millj­örðum króna til Íslands­pósts til að auka eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins vegna fyr­ir­liggj­andi lausa­fjár­vanda þess. Þar segir að skil­yrði lán­veit­ing­ar­innar sé að lánið verði veitt á mark­aðs­for­sendum með full­nægj­andi trygg­ing­um. Ekk­ert liggur þó fyrir um hvernig Íslands­póstur ætlar að greiða umrædd lán til baka.

Íslandspóstur afskráði ePóst án samþykkis Samkeppniseftirlitsins

Íslands­­­póstur hefur ekki staðið undir sér und­an­farin ár meðal ann­­ars vegna mik­ils sam­­dráttar í bréfa­­send­ingum og nið­­ur­greiðslu erlendra póst­­­send­inga. Dreif­ing­­ar­­dögum póst­s­ins hefur verið fækkað og póst­­­burð­­ar­­gjald hefur þre­fald­­ast á tíu árum. Eft­ir­lits­að­ilar hafa hins vegar bent á að slæma rekstr­­ar­­stöðu Íslands­­­pósts sé ekki aðal­­­lega að rekja til auk­ins kostn­aðar við alþjón­ustu. Í athuga­­semdum Póst- og fjar­skip­sta­stofn­unnar við skýrslu um rekstr­­ar­skil­yrði Íslands­­­pósts, frá árinu 2014, er meðal ann­­ars bent á að hund­ruð millj­­óna hafi tap­­ast vegna lán­veit­inga til dótt­­ur­­fé­laga Íslands­­­pósts í sam­keppn­is­­rekstri. Íslands­­­póst­­­ur, m.a. vegna fjár­­­fest­ingu í prent­smiðju Sam­­skipta og láns til­ ePósts dótt­­ur­­fé­lags Íslands­­­póst­­s.

Greint var frá því í dag að Íslands­póstur hlaut ekki sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins áður en dótt­ur­fyr­ir­tæki þess, ePóstur, var sam­einað móð­ur­fé­lag­inu. Í sátt sem fyr­ir­tækið gerði við Sam­keppn­is­eft­ir­litið í febr­úar 2017 segir að ekki megi sam­eina dótt­ur­fé­lög móð­ur­fé­lag­inu nema sam­þykki eft­ir­lits­ins liggi fyr­ir. Fyr­ir­tækið ePóstur var stofnað árið 2012 og í heild hefur Íslands­póstur lán­aði ePóst, dótt­ur­fyr­ir­tæki sínu, til­ rúmar 300 millj­ónum króna en lánið hefur nær enga vexti bor­ið. Í ­fyrr­nefndri sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir að reikna skuli vexti á lán­in. Séu lánin látin bera mark­aðsvexti má reikna með að tap Íslands­póst af ePósti nemi hátt í hálfan millj­arð króna.

Félag atvinnurekenda telur að Ríkisendurskoðun sé vanhæf þar sem stofnunin endurskoði reikninga Íslandspósts

Félag atvinnu­rek­enda hefur sent Sig­urði Inga Jóhanns­syni, sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra, erindi og hvatt til þess að ráðu­neyti hans óski eftir óháðri úttekt á rekstri Íslands­pósts. Ólaf­ur Steph­ens­sen, fram­kvæmda­stjóri FA telur að ef ráð­ist verður í úttekt þá yrði að fá utan­­að­kom­andi aðila til verks­ins. Hann bendir á að Póst- og fjar­­skipta­­stofnun telji það ekki sitt hlut­verk að rann­saka slíkt og þá er Rík­­is­end­­ur­­skoðun van­hæf þar sem stofn­unin end­­ur­­skoði reikn­inga Íslands­­­pósts.

Í lögum um Rík­is­end­ur­skoð­andi segir að Rík­is­end­ur­skoð­andi skal upp­lýsa Alþingi og stjórn­völd um mál­efni sem varða rekstur og fjár­reiður rík­is­ins, leiða í ljós frá­vik frá lögum og reglum á því sviði og gera til­lögur að úrbótum, bættri stjórn­sýslu, skýr­ari ábyrgð og betri nýt­ingu rík­is­fjár.

Stjórn­sýslu­end­ur­skoðun Rík­is­end­ur­koð­andi, sú skoðun sem Jón Þór seg­ist ætla að óska eftir, felur í sér mat á frammi­stöðu hefur eft­ir­lit með. Markmið stjórn­sýslu­end­ur­skoð­unar er að stuðla að úrbótum þar sem horft er til ákveð­inni atriða þar á meðal með­ferðar og nýt­ingar rík­is­fjár, hvort hag­kvæmni og skil­virkni gætir í rekstri stofn­ana og fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins og hvort fram­lög rík­is­skins skili þeim árangri. Í lög­unum segir að við mat á frammi­stöðu skal meðal ann­ars líta til þess hvort starf­semi sé í sam­ræmi við fjár­heim­ildir, þá lög­gjöf sem gildir um hana og góða og við­ur­kennda starfs­hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár