Íslandspóstur afskráði dótturfélag án samþykkis

Íslands­póstur afskráði dótt­ur­fyr­ir­tæki sitt ePóst þann 13. des­em­ber síð­ast­lið­inn án sam­þykkis Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Eft­ir­litið á eftir að taka afstöðu til þess hvort um brot gegn sátt frá árinu 2017 sé að ræða.

Íslands­póstur hlaut ekki sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins áður en dótt­ur­fyr­ir­tæki þess, ePóstur, var sam­einað móð­ur­fé­lag­inu. Í sátt sem fyr­ir­tækið gerði við Sam­keppn­is­eft­ir­litið í febr­úar 2017 segir að ekki megi sam­eina dótt­ur­fé­lög móð­ur­fé­lag­inu nema sam­þykki eft­ir­lits­ins liggi fyrir. Frá þessu var greint í Frétta­blað­inu í dag. Félag atvinnu­rek­enda hefur sent frá sér til­kynn­ingu vegna umfjöllun Frétta­blaðs­ins í morgun, í til­kynn­ing­unni segir að þetta mál sýni enn og aftur fram á þörf­ina á að gerð verði óháð úttekt á Íslands­póst og öllum þeim „röngu ákvörð­unum“ sem þar hafi verið teknar, ekki síst um sam­keppn­is­rekstur eins og ePóst.

Íslandspóstur lánaði ePóst 300 milljónar

Hinn 13. des­em­ber síð­ast­liðin var ePóstur afskráð úr fyr­ir­tækja­skrá og inn­limað inn í Íslands­póst. Í 9. grein sáttar Íslands­pósts og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins frá því í febr­úar 2017 kemur skýrt fram að ekki megi sam­eina nokkur dótt­ur­fé­lög Íslands­pósti, þar á meðal ePóst, án sam­þykkis Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og álits sér­stakrar eft­ir­lits­nefndar, sem fram­fylgir því að sáttin sé haldin. Samruni félag­anna var ákveð­inn síð­asta sumar, sam­kvæmt umfjöllun Frétta­blaðs­ins, en eft­ir­lits­að­ilum var ekki til­kynnt um fyr­ir­ætl­un­ina fyrr en fjórum mán­uðum síðar. Beiðni um afstöðu eft­ir­lits­nefnd­ar­innar var hins vegar ekki send fyrr en þremur dögum eftir að Félag atvinnu­rek­enda kærði Póstinn í októ­ber, sam­kvæmt Félagi atvinnu­rek­enda.

Fyr­ir­tækið ePóstur var stofnað var árið 2012. Samkvæmt árs­reikn­ingi 2013 fékk fyr­ir­tækið 247 millj­ónir í lán frá móð­ur­fé­lagi sínu. Tap á rekstri var 80 millj­ónir það rekstr­arár og eig­in­fjár­staða félags­ins nei­kvæð sem því nemur. Árið 2014 fékk fyr­ir­tækið aftur lán frá Íslands­póst, nú upp á 55 millj­ónir. Fyr­ir­tækið skil­aði rekstr­ar­tapi upp á 90 millj­ónir það ár og var eigið fé nei­kvætt um 151 milljón. Lán Íslands­póst til ePóst nam því rúmum 300 millj­ónum króna en lánið hefur nær enga vexti borið. Í fyrr­nefndri sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir að reikna skuli vexti á lánin. Séu lánin látin bera mark­aðsvexti má reikna með að tap Íslands­póst af ePósti nemi hátt í hálfan millj­arð króna.[adspot]

Afstaða Samkeppniseftirlitsins liggur ekki fyrir

Ekki liggur fyrir afstaða hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu um hvort aðgerð Íslands­póst sé brot gegn sátt­inni. Í skrif­legu svari Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins við fyr­ir­spurn Frétta­blaðs­ins segir að ekki liggi fyrir hvort að gripið verði til aðgerða gag­vart Íslands­póst en að fram kemur að málið sé í skoðun.

[links] Fyrir jól sam­þykkti Alþingi 1,5 millj­arða neyð­ar­láns­heim­ild til Íslands­pósts vegna bágrar fjár­hags­stöðu. Íslands­póstur hefur ekki staðið undir sér und­an­farin ár meðal ann­ars vegna mik­ils sam­dráttar í bréfa­send­ingum og nið­ur­greiðslu erlendra póst­send­inga. Dreif­ing­ar­dögum pósts­ins hefur verið fækkað og póst­burð­ar­gjald hefur þre­fald­ast á tíu árum. Fjár­fest­ingar fyr­ir­tæk­is­ins hlaupa á millj­örðum og fyr­ir­tækið hefur tapað hund­ruðum millj­ónum króna vegna lána til dótt­ur­fé­laga Íslands­pósts. Íslenska ríkið ákvað að lána Íslands­pósti stórfé þrátt fyrir að ekki liggi fyrir grein­ing á því hvað valdi miklum rekstr­ar­vanda. Frá því hefur verið greint að Rík­is­end­ur­skoðun telji það óheppi­legt að ekki liggi fyrir hvernig eigi að taka á vand­anum áður en fjár­magn sé sett í það.

Beðið um afstöðu Samkeppniseftirlitsins eftir kæru frá Félagi atvinnurekenda

Í fyrr­greindri til­kynn­ingu frá Félagi atvinnu­rek­enda segir að félagið hafi kært Íslands­póst til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í októ­ber síð­ast­liðnum vegna þess að ekki höfðu verið reikn­aðir mark­aðsvextir á lán félags­ins til ePósts, eins og sáttin kveður þó skýrt á um. Í svörum Íslands­pósts til eft­ir­lits­nefnd­ar­innar, sem Félag atvinnu­rek­enda greindi frá 5. des­em­ber síð­ast­lið­inn, kom fram að ekki hefði verið farið að ákvæðum sátt­ar­innar um vaxta­út­reikn­ing­inn af því að ákveðið hefði verið að sam­eina ePóst móð­ur­fé­lag­inu ann­að­hvort árið 2017 eða í júní 2018, stjórn­endum Íslands­pósts ber ekki saman um það, sam­kvæmt til­kynn­ingu FA.

Slíkt er hins vegar óheim­ilt án þess að afla fyrst álits eft­ir­lits­nefnd­ar­innar og svo sam­þykkis Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Beiðni um afstöðu eft­ir­lits­nefnd­ar­innar var hins vegar ekki send fyrr en þremur dögum eftir að Félag atvinnu­rek­enda kærði Póstinn í októ­ber, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni FA.

Félag atvinnu­rek­enda fékk stað­fest frá eft­ir­lits­nefnd­inni 4. des­em­ber síð­ast­lið­inn að afstaða hennar til beiðni Íslands­póst um sam­ein­ingu við ePóst lægi ekki fyrir. Eftir að í ljós kom að ePóstur var afskráður úr fyr­ir­tækja­skrá hinn 13. des­em­ber sendi félagið eft­ir­lits­nefnd­inni enn kvörtun og spurði hvort afstaða nefnd­ar­innar eða sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hafi legið fyrir við sam­ein­ingu félag­anna. Hvorki nefndin né Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur svarað félag­inu, en í Frétta­blað­inu í morgun stað­festir Sam­keppn­is­eft­ir­litið að ekki liggi fyrir hjá stofn­un­inni afstaða til þess hvort aðgerðin sé brot á sátt­inni.

Segir Íslandspóst hafa falið hið raunverulega tap á fyrirtækinu sem sé nálægt hálfum milljarði

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, segir í til­kynn­ing­unni að þetta mál sé með miklum ólík­indum. „Íslands­póstur telur sátt­ina við Sam­keppn­is­eft­ir­litið aug­ljós­lega lít­ils virði. Það vekur furðu okkar hversu svifa­seint eft­ir­litið með fyr­ir­tæk­inu er af hálfu sam­keppn­is­yf­ir­valda. Augljós brot liggja í augum uppi - það þarf ekki annað en að kunna að lesa til að átta sig á því. For­svars­menn Íslands­pósts verða jafn­framt upp­vísir að ósann­indum um sam­skipti sín við sam­keppn­is­yf­ir­völd en við­brögð eft­ir­lits­nefnd­ar­innar og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins láta á sér standa. Eft­ir­lits­nefndin var 18 mán­uði að svara annarri kæru FA vegna sátt­ar­innar, sem sneri að sendi­bíla­þjón­ustu Póstsins. Það væri fárán­legt ef það tæki sam­keppn­is­yf­ir­völd jafn­langan tíma að bregð­ast við í þessu máli,“ segir Ólafur.

Hann segir jafn­framt að með því að koma sér hjá því að reikna vexti á lán ePósts hafi Íslands­póstur falið hið raun­veru­lega tap á fyr­ir­tæk­inu, sem sé nálægt hálfum millj­arði króna.

„Með því að sam­eina félögin býr Íslands­póstur sér svo til mögu­leika á að skrá kostn­að­inn vegna ePósts á alþjón­ust­una og krefj­ast þess að hann verði bættur úr sam­eig­in­legum sjóðum eins og annar tap­rekstur fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta mál sýnir enn og aftur fram á þörf­ina á að gerð verði óháð úttekt á Íslands­póst og öllum þeim röngu ákvörð­unum sem þar hafa verið teknar, ekki síst um sam­keppn­is­rekstur eins og ePóst,“ segir Ólafur að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár