Pósturinn hættir að selja gos og sælgæti á pósthúsum

For­stjóri Póstsins segir að fyr­ir­tækið hafi legið undir mik­illi gagn­rýni fyrir að selja vörur ótengdar grunn­starf­semi hans á póst­húsum og að það sé ekki sjá­an­legur neinn ábati í þeirri vöru­sölu til fram­tíðar.

Birgir Jónsson er forstjóri Póstsins.
Birgir Jónsson er for­stjóri Póstsins. Mynd: Pósturinn

Rík­is­fyr­ir­tækið Póst­ur­inn mun hætta að selja gjafa­vörur, sæl­gæti, gos, rit­föng og aðrar vörur sem seldar hafa verið á póst­húsum fyr­ir­tæk­is­ins frá og með 1. febr­úar næst­kom­andi. Eftir breyt­ing­una mun Póst­ur­inn ein­ungis bjóða upp á vörur til sölu sem tengj­ast starf­semi þess með beinum hætti, eins og kassa, umslög, pökk­un­ar­vörur og frí­merki.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Póstinum.

Þar er haft eftir Birgi Jónssyni, sem tók við for­stjóra­stöð­unni hjá Póstinum fyrr á þessu ári, að þegar Póst­ur­inn hafi byrjað á vöru­sölu á sínum tíma hafi hug­mynda­fræðin snú­ist um það að við­skipta­vinir gætu fyllt upp í næsta kíló en verð­skrá póst­fyr­ir­tækja í pakka­send­ingum er byggð upp á kíló­verðum. „Það var því talið vera við­bót­ar­þjón­usta við við­skipta­vini að þeir gætu keypt sæl­gæti eða aðrar tæki­færis vörur til að geta nýtt send­ing­una að fullu. Fljót­lega var svo byrjað að bæta við öðrum vörum en rekstur póst­húsa var afar þungur á tíma­bili. Nú höfum við hins vegar ákveðið að hætta vöru­sölu en ástæð­urnar fyrir því eru tvær. Sú fyrri er sú að það er tölu­verð hag­ræð­ing fólgin í því að hætta vöru­sölu en mikil umsýsla og utan­um­hald er í kringum þessar vörur.

[adspot]Önnur ástæðan og í raun sú stærsta er hins vegar sú að vöru­salan teng­ist ein­fald­lega ekki kjarna­starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins, við höfum legið undir mik­illi gagn­rýni vegna þess­arar starf­semi og sjáum engan ábata í að vera í henni til fram­tíðar. Við erum að líta í öll horn rekstr­ar­ins í hag­ræð­ing­ar­skyni en það er ekki síður mik­il­vægt að horfa til þess að skapa breið­ari sátt um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins, við teljum að með þessu skrefi séum við að gera það.“

Umdeilt endastöðvargjald

Póst­ur­inn hefur verið í miklu hag­ræð­ing­ar­ferli á und­an­förnum miss­erum til að bregð­ast við ósjálf­bærri stöðu sem komin var upp í rekstri hans, og hafði fengið að festa rætur á und­an­förnum árum. Á meðal þess sem gert hefur verið er að grípa til upp­sagna starfs­fólks og breyta afhend­ing­ar­máta með því að fjölga t.d. póst­boxum.

Í sept­em­ber síð­ast­liðnum voru sam­þykktar breyt­ingar á lögum um póst­þjón­ustu sem heim­il­uðu Póst­inum að inn­heimta svo­kallað enda­stöðva­gjald. Í kjöl­farið hækk­aði mót­töku­gjald erlendra póst­send­inga til muna. Sam­kvæmt umfjöllun Neyt­enda­sam­tak­anna um málið kostar nú að lág­marki 850 krónur að fá send­ingar fá ­Evr­ópu­lönd­um og 1.050 krónur að lág­marki fyrir send­ingar frá löndum utan Evr­ópu. Þetta hefur haft áhrif á að neyt­endur panta minna af ódýr­ari vöru frá t.d. Kína en áður.

Neyt­enda­sam­tökin hafa mót­mælt gjald­inu harð­lega og hafa meðal ann­ars beint mál­inu til Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA þar sem sam­tökin telja að gjaldið gæti brotið í bága við EES samn­ing­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár